Fréttablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Tónlistin er stór þáttur í lífi Snorra og Heiðu og þau verja miklum tíma saman
í að hlusta á tónlist og taka upp.
Í stofunni prýða myndir af syninum veggina og þar verja heimakærir löngum stundum í að hlusta á tónlist og velta fyrir sér líðandi stund og framtíðinni.
Snorri og Heiða hafa verið saman í rúm fjögur ár og hafa búið saman nánast frá
því þau byrjuðu saman. „Við erum
mjög samhent og líður afskaplega
vel saman. Við eigum einn dásam-
legan gutta sem er rúmlega tveggja
og hálfs árs og heitir einmitt líka
Snorri Snorrason. Svo átti Snorri
fyrir þrjá dásamlega drengi sem
eru orðnir stórir, Alexander Leó,
22 ára, og tvíburana Mikael og
Gabríel, sem eru tvítugir.“
Heiða starfar sem flugfreyja hjá
Icelandair ásamt því að syngja út
um allar trissur og Snorri er tón-
listarmaður og upptökustjóri og er
með síðuna fjarupptökur.is. „Við
erum bæði mjög heimakær, eigum
reyndar vel saman á mjög margan
hátt. Okkur líður best þegar við
getum notið samveru með fjöl-
skyldu og vinum sem við reynum
að gera eins oft og hægt er.“
Þegar þau eru heima er matur
og eldamennska í fyrirrúmi. „Við
erum bæði miklir áhugakokkar
og sameinumst vel í eldhúsinu og
finnst gaman að prófa nýjar upp-
skriftir. Matur og að elda er eitt
af áhugamálum okkar þannig að
við verjum miklum tíma í það og
eldum mikið saman,“ segir Snorri
og Heiða bætir við: „Uppáhalds-
eldhúsáhaldið mitt er fagurrauða
KitchenAid-hrærivélin sem Snorri
gaf mér í afmælisgjöf fyrir þremur
árum og hún er mikið notuð.“
Uppáhaldsstaðurinn á heim-
ilinu er stórt og stækkanlegt
borðstofuborð sem þau völdu
einmitt með tilliti til elda-
mennskuáhugans. „Við erum oft
með matarboð og vildum þess
vegna geta stækkað borðið en
svo sitjum við líka mikið þar og
spjöllum, eigum stefnumótakvöld
heima þar sem við eldum góðan
mat, prófum nýja rétti, gerum upp
daginn og auðvitað plönum næstu
skref í tónlistinni.“
Þau viðurkenna að tónlistar-
herbergið sé líka í uppáhaldi. „Þar
tökum við upp hugmyndir og
pælum í tónlistinni okkar. Þegar
við erum heima erum við mest að
elda og grúska í tónlistinni okkar.“
Annað sem er í miklu uppáhaldi
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
hjá þeim er plötusafn sem faðir
Snorra skildi eftir sig en hann
lést árið 2007. „Hann var mikill
músíkspekúlant og og átti ógrynni
af plötum sem við fáum að njóta.
Sonur okkar hefur mjög gaman af
þeim en hann er líka mikill músík-
áhugamaður eins og foreldrarnir.“
Það er ýmislegt skemmtilegt
á döfinni hjá Snorra og Heiðu í
tónlistinni. „Við bjuggum okkur
til Facebook-síðu fyrir skömmu
sem heitir Topplögin með Snorra
og Heiðu þar sem við gerum okkar
útgáfur af þekktum slögurum
úr öllum áttum og núna erum
við á fullu í gömlum Eurovision-
lögum og lögum sem hafa keppt
í Söngvakeppninni í gegnum
tíðina. Þar er sko aldeilis af nægu
að taka en við erum búin að velja
úr lög sem við flytjum á Hard Rock
í kvöld ásamt æðislegri hljóm-
sveit, þar sem Þórir Úlfarsson
leikur á píanó, Pétur Valgarð á
gítar, Ólafur Þór Kristjánsson á
bassa og Þorvaldur Ingveldarson
er á trommunum. Við fáum líka
þrjá gestasöngvara með okkur,
þau Dag Sigurðsson, Ernu Hrönn
og Siggu Eyrúnu en þau hafa öll
keppt í Söngvakeppninni og eru
bara öll svo æðisleg.
Við byrjum á slaginu tíu og
erum hrikalega spennt og lofum
því að gestir fara glaðir heim. Svo
erum við alltaf að semja líka og
þau lög fá vonandi að líta dagsins
ljós í komandi framtíð líka.“
Plötusafn sem faðir Snorra skildi eftir sig er í miklu uppáhaldi en þar má meðal
annars finna fjársjóði eins og þessa smáskífu með Gleðibankanum en Snorri og
Heiða munu flytja Eurovision-lög á Hard Rock í kvöld ásamt góðum gestum.
Þegar við erum
heima erum við
mest að elda og grúska í
tónlistinni okkar.
Heiða Ólafsdóttir og
Snorri Snorrason
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
Stendur undir nafni
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . m A Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
0
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
8
-7
1
2
8
1
F
B
8
-6
F
E
C
1
F
B
8
-6
E
B
0
1
F
B
8
-6
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K