Fréttablaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 0 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 1 . M A Í 2 0 1 8
Vinningar í hverri viku - Happdrætti DAS
Það eru 1000 milljónir!
Kauptu miða á das.is eða í síma 561 77 57
Nýtt happdrættisár hefst í maí
Meira en milljarður í vinningum ár hvert
Hannes Hannesson er skynsamur og spila
r í Ha
ppd
ræt
ti D
AS
• Sex 30 milljóna króna vinningar á tvöfaldan miða
eða 15 milljónir króna á einfaldan miða
• Drögum út meira en 51 þúsund vinninga á árinu
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Þórlindur Kjartansson
skrifar um páfagaukalærdóm. 11
SPORT Guðrún Brá segir að það
sé öðruvísi pressa sem fylgi lífi
atvinnukylfings. 15
LÍFIÐ Tony Adams sendir kveðju
í bol frá Einstök. 28
PLÚS SÉRBLAÐ l FÓLK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
STJÓRNMÁL Skráðum einstaklingum
sem eiga lögheimili í Árneshreppi
fjölgaði um 39 prósent á tveggja
vikna tímabili, frá 24. apríl til 4. maí.
Í minnisblaði sem unnið hefur verið
fyrir Árneshrepp kemur fram að um
sé að ræða málamyndaskráningar
vegna sveitarstjórnarkosninga.
Stærsta kosningamálið í hreppnum
er fyrirhuguð bygging Hvalárvirkj-
unar, en hart hefur verið deilt um
áformin.
Árneshreppur hefur gert Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga viðvart
og Þjóðskrá Íslands mun tilkynna
innanríkisráðuneytinu um málið,
að því er fram kemur í minnisblað-
inu sem Sókn lögmannsstofa gerði
fyrir Árneshrepp. Málið sé litið
alvarlegum augum, enda varði það
bæði röskun á grundvallarreglum
um lýðræði og geti varðað við lög.
Í lögum um kosningar til sveitar-
stjórna kemur meðal annars fram
að það teljist til kosningaspjalla
að gefa upp villandi upplýsingar
um búsetu, sem leitt geti til þess að
maður verði settur á kjörskrá sem
ekki á rétt á að vera þar. Í minnis-
blaðinu er einnig bent á að sam-
kvæmt hegningarlögum geti tveggja
ára fangelsi legið við því að afla sér
eða öðrum ólöglega færis á að taka
þátt í atkvæðagreiðslu.
Fyrir 24. apríl voru 44 skráðir með
lögheimili í Árneshreppi. Sautján
skráðu lögheimili sitt í hreppnum
á umræddu tveggja vikna tímabili.
„Aðrir eins lögheimilisflutningar
eru líklega einsdæmi, hlutfallslega,“
segir í minnisblaðinu.
Fram kemur að Þjóðskrá hafi
að eigin frumkvæði ákveðið að
endurupptaka afgreiðslu lögheim-
ilisskráninga þessara einstaklinga.
Réttmæti skráninganna ráðist
væntanlega af því hvort föst búseta
þessara einstaklinga hafi raunveru-
lega breyst fyrir 4. maí síðastliðinn.
Málið mun vera í flýtimeðferð hjá
Þjóðskrá en í minnisblaðinu er
stungið upp á því að hreppsnefnd-
arfundur verði boðaður þegar stofn-
unin hafi fjallað um málin. „Miðað
við það þarf hreppsnefnd að fella
aðila út af kjörskrá til samræmis við
ákvarðanir Þjóðskrár Íslands.“
Meirihluti hreppsnefndar er fylgj-
andi virkjunaráformum. – bg
Íbúum fjölgað
um 39 prósent
í aðdraganda
kosninganna
„Málamyndaskráningar,“ segir í minnisblaði Árnes-
hrepps, en íbúum fjölgaði um 39 prósent á tveimur
vikum. Stærsta kosningamálið er Hvalárvirkjun.
Aðrir eins lögheimilis-
flutningar eru líklega eins-
dæmi, hlutfallslega.
Úr minnisblaði sem unnið var fyrir
Árneshrepp
Vætutíð fram undan Rigning var víða um land í gær, sem kom ekki að sök í tilviki þessarar konu sem var við öllu
búin. Líkur eru á áframhaldandi rigningarveðri um sunnan- og suðaustanvert landið í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
FÓTBOLTI Heimir Hallgrímsson og
þjálfarateymi íslenska karla-
landsliðsins í knattspyrnu til-
kynna í dag 23 manna leik-
mannahópinn sem fer á
Heimsmeistaramótið í Rússlandi.
Tveir mikilvægustu leik-
menn Íslands, Gylfi Þór
Sigurðsson og Aron
Einar Gunnarsson, eru
meiddir en ættu að vera
klárir í slaginn þegar
flautað verður til leiks í Rúss-
landi.
Við veltum fyrir okkur hvaða
nöfn verða í flugvélinni sem
ferðast til Rússlands. Hvaða
leikmenn eru öruggir með
sæti sitt, hverjir eiga enn
tækifæri og hverjir
þurfa að bíta í það
súra epli fá ekki far-
miða til Rússlands.
– iþs, kpt
HM-hópurinn tilkynntur í dag
KJARAMÁL Meðalhækkun fyrir verk
samkvæmt nýjum rammasamningi
sjálfstætt starfandi ljósmæðra í
heimaþjónustu við Sjúkratryggingar
er 16,5 prósent. Algengustu liðirnir
hækka um sem nemur rúmum tíu
prósentum.
Samkvæmt samkomulaginu
hækkar einingaverð um 4,4 prósent
úr 283,5 krónum á einingu upp í 296
krónur. Fyrir hverja vitjun fá ljós-
mæðurnar greitt ákveðið margar
einingar en þær eru mismunandi
eftir því hvort um heima- eða keis-
arafæðingu er að ræða eða eftir því í
hvaða heilsufarsflokk sængurkonan
fellur. Einingum fyrir hvert verk var
fjölgað með samkomulaginu.
„Við þurfum að vinna ansi mikið
til að vera með einhver laun. Þessi
breyting nú var aðeins það lágmark
sem við gátum sætt okkur við,“ segir
Arney Þórarinsdóttir, sjálfstætt
starfandi ljósmóðir. – jóe / sjá síðu 4
Lágmark sem ljósmæður sættust á
Aron Einar
Gunnarsson.
1
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
D
-F
4
0
C
1
F
B
D
-F
2
D
0
1
F
B
D
-F
1
9
4
1
F
B
D
-F
0
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K