Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 1
Kosningar „Ef við höldum okkar finnst mér réttlætanlegt að ræða við Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Theodóra Þorsteinsdóttir, oddviti sameiginlegs framboðs Bjartrar framtíðar og Við- reisnar í Kópavogi. Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð mynda meirihluta í bæjar- stjórn Kópavogs. Ármann Kr. Ólafs- son, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæð- isflokksins, er líka þeirrar skoðunar að framboðin ræði saman að loknum kosningum fái þau nægjanlegt fylgi fyrir meirihluta. Ný könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is hafa gert bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn og framboð Bjartrar framtíðar/Viðreisnar fengi nægjanlegt fylgi fyrir meirihluta. Sjálf- stæðisflokkurinn fengi rúm 36 pró- sent, Samfylkingin fengi 20 prósent, Framsóknarflokkurinn fengi rúm 8 prósent, Píratar opg BF/Viðreisn fengju rúm 7 prósent hvort framboð, VG tæp 7. Miðflokkurinn fengi svo rúm 5 prósent, Fyrir Kópavog tæp 5 og Sósíalistaflokkurinn ríflega tvö. Yrði þetta niðurstaðan fengi Sjálfstæðisflokkurinn fimm full- trúa kjörna af ellefu, Samfylkingin fengi tvo og Framsóknarflokkurinn, Píratar, BF/Viðreisn og VG fengju einn hvert framboð. Hvorki Miðflokkur- inn, Fyrir Kópavog né Sósíalistar fengju fulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn gæti því myndað sex manna meiri- hluta með BF/Viðreisn en Sjálfstæðis- menn og Björt framtíð eru núna með sjö fulltrúa í meirihluta. Í kosningunum 2014 fékk Sjálf- — M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 1 4 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 6 . M a Í 2 0 1 8 Fréttablaðið í dag sport Búið er að úthluta úr afrekssjóði FRÍ. 12 tÍMaMót Hátíðin Sumar í Havarí verður haldin aftur. 14 Menning Stórsveit Reykjavíkur hitti í mark í Hörpu 18 lÍfið Benedikt Erlingsson fær góðar móttökur í Cannes 26 plús 2 sérblöð l fólK l  MarKaðurinn *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Það sem þjálfunin færir þér: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og aukin vellíðan • Trú á eigin getu, skýrari markmið og meiri árangur • Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd • Jákvæðara viðhorf og minni kvíði Sumarnámskeið hefjast: 20 til 25 ára 28. maí og 7. ágúst 16 til 19 ára 29. maí og 8. ágúst 13 til 15 ára 5. júní og 8. ágúst 10 til 12 ára 11. júní og 8. ágúst Ókeypis kynningartími 22. maí – Skráning á dale.is/ungtfolk Nánari upplýsingar og skráning á dale.is eða í síma 555 7080 Vertu þinn eiginn besti vinur Copyright © 2018 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_050918_iceland ViðsKipti Íslenska tæknifyrirtækið TeaTime, sem stofnað var meðal annars af frumkvöðlunum sem stóðu að Plain Vanilla, hefur aflað 7,5 milljóna dollara, sem sam- svarar 770 milljónum króna, í nýtt hlutafé. Áður höfðu alþjóðlegir fjárfestar lagt félag- inu til 1,6 milljónir dollara, jafn- virði 164 milljóna. Frá stofnun fyrirtækisins í júlí í fyrra hafa fjárfestar því lagt Tea- Time til tæpan milljarð í hlutafé. Þorsteinn B. Frið- riksson, forstjóri TeaTime, segir að nýsköpunarsjóðirnir sem gengu í hluthafahópinn nú séu á meðal þeirra stærstu í Evrópu og séu einn- ig umsvifamiklir í Bandaríkj- unum. „Meirihluti TeaTime er enn í eigu Íslendinga,“ segir hann og bætir við að félagið hafi einungis tvisvar fengið fjármagn frá fjárfest- um. – hvj / sjá Markaðinn Leggja 770 milljónir í TeaTime Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri TeaTime. ViðsKipti Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur ráðið fjárfestingarbankann Jefferies sem ráðgjafa í tengslum við mögulega sölu á starfsemi fyrirtæk- isins í mið- og austurhluta Evrópu. Í fjárfestakynningu sem Markað- urinn hefur undir höndum kemur fram að starfsemin hafi skilað 200 milljónum dala í tekjur á síðasta ári. Heildarvirði Alvogen í Mið- og Austur-Evrópu er þannig talið geta numið hátt í einn milljarð dala, jafn- virði 100 milljarða króna. Alvogen er í meirihlutaeigu alþjóðlegu fjár- festingarsjóðanna CVC Capital Partners og Temasek en Róbert Wessmann, forstjóri og stofnandi Alvogen, á tilkall til ríflega 22 pró- senta hlutar. Við vinnslu fréttarinnar barst Markaðinum bréf frá lögmanns- stofunni White & Case þar sem þess var krafist, fyrir hönd Alvogen Lux Holdings, að ekki yrði greint frá innihaldi kynningarinnar. Að öðrum kosti áskildi félagið sér allan rétt til þess að grípa til lagalegra úrræða, þar á meðal að fara fram á lögbann. – hae, kij / sjá Markaðinn Fá ráðgjafa til að kanna sölu Meirihlutinn í Kópavogi gæti haldið velli Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Kópa­ vogi í nýrri könnun sem Fréttablaðið og fretta­ bladid.is hafa gert. Flokkurinn gæti myndað meiri­ hluta með framboði Viðreisnar og Bjartri framtíð. skoðanakönnunin var gerð 15. maí 2018 7,1% 8,4% 4,7% 5,3% 7,4% 20,0% 36,4% 2,3% 6,7% 1,7% Aðrir stæðisflokkurinn 39,3 prósent og 5 fulltrúa, Samfylkingin fékk 16,1 pró- sent og tvo fulltrúa, Björt framtíð fékk 15,2 prósent og líka tvo fulltrúa, Framsóknarflokkurinn fékk 11,8 pró- sent og 1 fulltrúa og VG fékk 9,6 pró- sent og einnig 1 fulltrúa. Hringt var í 1.087manns með lög- heimili í Kópavogi þar til náðist í 801 samkvæmt lagskiptu úrtaki 15. maí. Svarhlutfallið var 73,7 prósent. Þátt- takendur voru valdir með slembiúr- taki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Alls tók 51 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Þá voru 12 prósent sem sögðust ekki ætla að kjósa eða ætla að skila auðu, 22,1 prósent sögðust óákveðin og 14,9 prósent vildu ekki svara spurn- ingunni. jhh, sa / sjá síðu 6 Á annað hundrað manns mættu á Austurvöll í gær til þess að sýna Palestínumönnum samstöðu. Þar á meðal Sveinn Rúnar Hauksson og Ögmundur Jónasson. Annar fundur var haldinn á Ísafirði. Í gær voru 70 ár liðin frá því hundruð þúsunda Palestínumanna hröktust frá Palestínu við stofnun ísraelska ríkisins. FréTTABlAðið/Ernir 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F C 8 -0 0 7 C 1 F C 7 -F F 4 0 1 F C 7 -F E 0 4 1 F C 7 -F C C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.