Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 9
Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með umræðunni um Hvalárvirkjun á Ströndum und- anfarnar vikur í aðdraganda kosn- inga. Minnsta sveitarfélag landsins er klofið í herðar niður og þrír af fimm fulltrúum sveitarstjórnar Árnes- hrepps, með sveitarstjórann í broddi fylkingar, leggja allt í sölurnar til að þröngva í gegn umdeildri og óaftur- kræfri framkvæmd. Hjólin eru smurð með margvíslegum stuðningi og lof- orðum framkvæmdaaðilans Vestur- verks, sem meðal annars hefur greitt lögfræðireikninga sveitarstjórnar og reikninga ótengda framkvæmdinni, líkt og komið hefur fram undanfarið. Hvar eru raddir þeirra Vestfirð- inga sem vilja staldra við og leyfa náttúrunni að njóta vafans? Þessar raddir eru til, það veit ég vel eftir fjölmargar heimsóknir mínar á Vest- firði í gegnum árin. Nýverið stóð ég fyrir fjölsóttum fyrirlestri á Ísafirði um ósnortin víðerni. Þeir ráðamenn vestfirskir sem mest hafa gagnrýnt viðhorf náttúruverndarsinna mættu ekki á fundinn. Nokkrum dögum síðar fjölmenntu þeir hins vegar á málþing á vegum Vesturverks á Ísa- firði. Ég hef síðan reynt að fá ýmsa aðila fyrir vestan til að skipuleggja annað málþing sem væri opið öllum og þar sem fleiri viðhorf gætu komið fram. Enginn hefur sýnt þessu erindi mínu áhuga, nema Vestfjarðastofa sem vill þó aðeins halda málþingið eftir kosningar! Tíminn til að ræða svo umfangs- mikla og umdeilda framkvæmd er hins vegar einmitt fyrir kosningar. Það er vert að íhuga af hverju raddir þeirra sem vilja vernda ósnortnu víðernin upp af Ófeigsfirði hafa ekki verið meira áberandi á Vestfjörðum. Þessi víðerni eru við þröskuld mestu náttúrugersema Vestfjarða, Dranga- skarða og friðlandsins á Hornströnd- um. Gæti skýringin verið sú að valda- miklir aðilar innan kjördæmisins vilja stýra umræðunni? Nýlega sendi Vesturverk snotran bækling inn á öll heimili á Vestfjörð- um. Þar eru kostir virkjunar tíund- aðir með aðaláherslu á aukið raf- magnsöryggi á Vestfjörðum. Aukið rafmagnsöryggi er vissulega brýnt úrlausnarefni fyrir Vestfirðinga en Hvalárvirkjun mun ekki leysa þann vanda. Lítið er rætt um hringtengingu rafmagnslína á Vestfjörðum, sem lengi vel var ein helsta röksemdin með virkjun, en þau rök virðast nú hafa misst vægi – enda ekkert fast í hendi um framkvæmd slíkrar hring- tengingar. Sama á við um fjölda langtímastarfa við virkjunina sem talsvert var gert úr um hríð en verða líklega engin. Loforð um aukið afhendingaröryggi rafmagns og aukna atvinnu fyrir Vestfirðinga eru því orðin tóm. Í sama bæklingi lofar Vesturverk að verði af virkjun muni þeir sjá um að klæða skólahúsið í Árneshreppi og leggja hitaveitu og þriggja fasa raf- magn í Norðurfjörð. Enn dapurlegra er þó fyrirheit verktakans um að opna fyrir rennsli í Hvalá yfir hásum- arið þannig að ferðamenn geti notið fossins Drynjanda með fullu vatns- rennsli, en verði af virkjun verður rennsli í honum að jafnaði aðeins 5% af meðalrennsli. Drynjandi er einn af fimm fossum á þessu svæði sem eru ómetanlegir og á heimsmælikvarða. Nafn sitt dregur fossinn af drununum sem myndast þegar vatnið fellur beljandi niður í næstum 100 metra djúp árgljúfrin sem eru með þeim tilkomumestu á Vestfjörðum. Verði af virkjun munu drunurnar hverfa og í stað hvítu ábreiðunnar blasir við veiklulegur strengur. Ég trúi því ekki að Vest- firðingar vilji fórna svona „Gullfossi“ fyrir megavött til stóriðju – enda gæti hann óvirkjaður, ásamt mörgum öðrum fossum á svæðinu, skapað íbúum Árneshrepps og Vestfirðing- um öllum ómetanleg verðmæti. Nátt- úran getur nefnilega verið meira virði ósnortin til lengri tíma en virkjuð. Munum af hverju ferðaþjónusta er orðin helsta tekjulind Íslend- inga í dag. Veigamestu rökin fyrir verndun svæðisins eru þó að gefa komandi kynslóðum Íslendinga og ferðamanna færi á að njóta þessara einstöku náttúrugersema fremur en að selja þær erlendum auðjöfrum og auðsveipum umboðsmönnum þeirra. Náttúrulaus umræða í boði Vesturverks Tómas Guðbjartsson læknir Drynjandi sl. sumar og tölvugerð mynd eins og ætla má að fossinn líti út eftir virkjun Hvalár. Fólkið efst á myndinni sýnir stærð fossins og árgljúfursins. MynD/TóMas GuðbjarTsson Sólgler með styrkleika fylgja kaupum á gleraugum. Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN S:587 2123 FJÖRÐUR S: 555 4789 Nánari upplýsingar á www.bsv.is eða bsv@bsv.is og í síma 571 4000 · Tengist símanum með Bluetooth. · HQ voice hljómgæði með „noice cancellation“ Handfrjáls búnaður í bílinn. Sekt fyrir að tala í símann undir stýri án handfrjáls búnaðar er 40.000 kr. Ég trúi því ekki að Vest- firðingar vilji fórna svona „Gullfossi“ fyrir megawött til stóriðju – enda gæti hann óvirkjaður, ásamt mörgum öðrum fossum á svæðinu, skapað íbúum Árneshrepps og Vestfirðingum öllum ómetanleg verðmæti. Nátt- úran getur nefnilega verið meira virði ósnortin til lengri tíma en virkjuð. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9Þ R i ð J u D A G u R 2 2 . m A í 2 0 1 8 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D A -B 5 D C 1 F D A -B 4 A 0 1 F D A -B 3 6 4 1 F D A -B 2 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.