Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Í lok síðasta árs var veiðibúðin Flugubúllan opnuð í Hlíðasmár-anum í Kópavogi en hún hafði
verið starfrækt sem vefverslun um
rúmlega eins árs skeið. Megin-
markmiðið hefur þó alltaf verið
það sama; að bjóða upp á stanga-
veiðibúnað og vörur frá þekktum
merkjum á betra verði en tíðkast
annars staðar, að sögn Halldórs
Gunnarssonar, eins af þremur
eigendum Flugubúllunnar. „Ferða-
lagið hófst að vísu ári áður, eða
á haustmánuðum 2015, en þá
hófum við sölu á silunga- og laxa-
flugum undir engu sérstöku nafni.
Við vorum orðnir þreyttir á þeirri
verðlagningu sem var í gangi og
vorum við ekki einir um það. Enda
gekk salan mjög vel árið 2016, en
við seldum silunga- og laxaflugur
langt undir því verði sem var í
gangi á þeim tíma.“
Flugubúllan var stofnuð af æsku-
félögum sem auk Halldórs eru
Sigurður Hafsteinsson og Steinþór
Jónsson og hafa þeir verið for-
fallnir veiðimenn til fjölda ára.
Gamalgróin merki
Þeir gerðu í upphafi dreifingar-
samning við breska fyrirtækið
Madison um umboðs- og dreifing-
arrétt á stangaveiðivörum undir
merkjum Leeda og Wychwood
sem eru að sögn Halldórs gamal-
gróin og virt bresk merki í veiði-
heiminum þó þau hafi ekki verið
mjög þekkt hér á landi. „Vefversl-
unin gekk vonum framar og við
svöruðum ákalli viðskiptavina
okkar um hefðbundna verslun, við
hlið netverslunarinnar sem er enn
aðalsmerki okkar. Galdurinn á bak
við ört stækkandi rekstur okkar
er þó ekki flókinn; fullkomin
þjónusta, góðar vörur og rétt verð-
lagning.“
Fluguveiðin í fyrirrúmi
Flugubúllan sérhæfir sig í vörum
ætluðum fluguveiði þó aðrar vörur
séu einnig fáanlegar að einhverju
ráði. „Við seljum flugur frá fjórum
framleiðendum fyrir utan eigin
framleiðslu. Þetta eru Fulling
Mill sem eru gríðarlega stórir og
þekktir á heimsvísu, skoska fyrir-
tækið Fario Fly sem sérhæfir sig í
framleiðslu á ýmiss konar silunga-
flugum, Shadow Flies og Turrall.
Fyrr á árinu gerðum við umboðs-
og dreifingarsamning við banda-
ríska fyrirtækið UMPQUA sem er
með stærstu fluguframleiðendum
heims. Í sumar munum við selja
laxaflugur frá UMPQUA en þær eru
sagðar betri en bestu laxaflugur
heims. Við bjóðum einnig upp á
mikið úrval af tólum og tækjum frá
UMPQUA og gott úrval af töskum.“
Mikið úrval
Wychwood Game er það merki
sem verslunin hefur haft í fyrir-
rúmi frá því hún hóf rekstur enda
um gríðarlega vandaðar og góðar
stangaveiðivörur í milliverðflokki
að ræða, segir Halldór. „Wych-
wood býður upp á flest sem snýr
að þörfum fluguveiðimannsins,
hvort sem um er að ræða stangir,
hjól, línur, fatnað, eða vöðlur.
Vörur þeirra hafa verið að gera
það gríðarlega gott í gegnum árin
og viðskiptavinir okkar hafa verið
afskaplega ánægðir með
stangir frá þeim.“
Meðal annarra
vörumerkja
sem Flugu-
búllan hefur til
sölu má nefna
finnska merkið
Alfa Fishing sem
m.a. býður upp
á hágæða flugu-
hjólalínu sem
kemur í ótrúlega
glæsilegu litaúr-
vali og risa-
merkið Guide line
en innan þess eru
mjög breiðar vörulínur í tengslum
við fluguveiði. „Guide line er auk
þess dreifingaraðili fyrir önnur
vörumerki og njóta viðskiptavinir
okkar þess. Þar má t.d. nefna hina
vinsælu vöðluskó frá bandaríska
fyrirtækinu Kork ers.“
Spennandi vörur í sumar
Í sumar verður að sjálfsögðu boðið
upp á margar nýjar vörur, segir
Halldór. „Þar má nefna nýjar flugur
frá UMPQUA sem hafa ekki verið
fáanlegar hér á landi í mörg ár.
Wychwood Game kemur með nýja
flugu-
stöng
seinnipartinn í júní sem ber nafnið
Wychwood RS Competition og er
mun kraftmeiri en jafnframt léttari
en eldri stangir. Svo erum við að
hefja sölu á nýstárlegum flugu-
stöngum frá Alfa Fishing í júní, en
það er Orion 4D flugustangalínan
sem er hönnuð með hinni nýstár-
legu 4-D tækni sem byggir á að
sameina flugustöng og hjól í eina
heild.“
Opnunartími sem hentar
Verslun Flugubúllunnar er opin
á óhefðbundnum tíma að sögn
Halldórs. „Við opnum kl. 16 alla
virka daga og lokum kl. 20. Við
fundum fyrir því að viðskiptavinir
okkar vildu helst vera í rólegheit-
unum hjá okkur eftir að vinnudegi
lyki í stað þess að vera í spreng í
hádeginu eða um miðjan dag.
Um helgar er svo hefðbundinn
opnunartími. Vissulega höfum við
verið með séropnanir fyrir leið-
sögumenn og erlenda veiðimenn
sem koma þá alla jafna beint af
flugvellinum til okkar. Það hefur
ekki verið vandamálið og bara
sjálfsögð þjónusta.“
Allar vörur sem keyptar eru í vef-
verslun Flugubúllunnar eru sendar
um allt land samdægurs eða næsta
virka dag. „Þetta er einfalt og gott
fyrirkomulag fyrir viðskipta-
vini, sérstaklega þá sem búa úti á
landi. Við bjóðum alla velkomna
í verslun okkar að Hlíðasmára 13
í Kópavogi og tökum vel á móti
veiðimönnum.“
Nánari upplýsingar á www.flugu-
bullan.is.
Halldór Gunnarsson og starfsmenn Flugubúllunnar, Ómar Smári og Árni Kristinn, taka vel á móti viðskiptavinum. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI
Alfa fluguhjólalínan kemur í ótrúlega glæsilegu litaúrvali. Flugubarinn er oftast á yfirfalli og mikið úrval.
Fallegar töskur frá UMPQUA.Gott úrval af vöðluskóm frá Korkers,
Guideline og Wychwood.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . M A Í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
A
-A
B
F
C
1
F
D
A
-A
A
C
0
1
F
D
A
-A
9
8
4
1
F
D
A
-A
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K