Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 16
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is MAGNESÍUM VÖKVI FRÁ FLORADIX Magnesíum er nauðsynlegt líkamanum. Magnesíum hjálpar til við vöðva og taugaslökun. Bragðgóð steinefnabland sem inniheldur magnesíum úr lífrænum jurtum. Fæst í apotekum, heilsuvörubúðum og heilsuhillum verslana Salsakommúnan er sprottin upp úr frjóum tónlistar-jarðvegi Menntaskólans við Hamrahlíð en úr honum hafa meðal annars sprottið sveit- irnar Hjaltalín, Móses Hightower, Sprengjuhöllin, Nýdönsk og Stuð- menn. „Salsakommúnan var stofnuð fyrir árshátíð Hamrahlíðarkórsins fyrir fjórum árum þar sem við lékum fyrir dansi,“ segir Baldvin Snær Hlynsson, píanóleikari sveitarinnar, um tildrög hennar. „Svo lagðist hljómsveitin í dvala í tvö ár en var vakin til lífsins aftur fyrir tveimur árum og þá fórum við beint í að semja efni sem við höfðum ekki gert áður.“ Fljótlega kom í ljós að efnið vildi á plötu og hún lítur dagsins ljós um þessar mundir. Platan heitir Rok í Reykja- vík og inniheldur frumsamin lög og texta eftir meðlimi sveitarinnar. Aðspurður um af hverju salsa hafi orðið fyrir valinu segir Baldvin að þar hafi áhugi Símonar söngvara og Sölva, sem spilar á slagverk, ráðið mestu. „Þegar við vorum ráðnir í okkar fyrsta gigg á árshátíðinni voru þeir á kafi í pælingum um salsatónlist og í gegnum þá fórum við Jakob van Oosterhut að pæla í þessari tónlist og svo bættust hinir í hópinn. Og það er eiginlega bara stemmingin, dansinn og gleðin sem heillaði okkur í bandinu og gerir enn.“ Sveitin er sprottin úr stórum vinahópi í MH og meðlimir því fleiri en færri. „Við erum yfir- leitt ellefu talsins,“ segir Baldvin. „Ryþmasveitin samanstendur af píanói, kontrabassa og gítar sem á ættir að rekja til Kúbu og kallast tres, svo er blásarasveit þar sem eru tveir trompetar, básúna og saxófónn, og svo er slagverkið sem eru timbales, kongatrommur og bongótrommur.“ Fastir meðlimir í Salsakommúnunni eru ásamt Baldvini þeir Símon Karl, Sölvi Rögnvaldsson, Sæmundur Rögn- valdsson, Jakob van Ooster hout, Þorgrímur Þorsteinsson Jón Arnar, Björgvin Ragnar, Helgi Reyr, Snorri Skúlason og Helge Haahr. „Eins og staðan er núna eru uppruna- legir meðlimir sveitarinnar dreifðir hingað og þangað um heiminn,“ segir Baldvin sem sjálfur hefur nám við Konunglega tónlistar háskólann í Stokkhólmi í haust, „þannig að við höfum þurft að fá sessjón spilara með okkur þegar sveitin heldur tón- leika.“ Þannig kemur einnig nafnið á hljómsveitinni til. „Nafnið spratt af því að við erum mjög fjölmenn hljómsveit en líka af því að við erum margir hverjir mjög uppteknir og áttuðum okkur á því að það yrði ekki alltaf sama grúppan sem myndi spila svo við erum alltaf að kalla inn fólk héðan og þaðan og því er þetta eiginlega svona kommúna.“ Hljómsveitin heldur útgáfu- tónleika og ball næstkomandi fimmtudagskvöld í Iðnó og Baldvin lofar sannkallaðri salsasprengju. „Dansarar frá Salsa Iceland mæta hálf níu og kenna dans og svo byrjum við hálf tíu. Þannig að fólk getur farið á dansnámskeið og svo strax farið að nota það sem það lærði.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Salsakommúnan blæs til dansleiks. „Við höfum haldið svona böll áður, bæði í Hörpu og Iðnó, og það hefur alltaf verið smekkfullt og mikil stemming og mjög gaman. Og nú ætlum við að halda útgáfu- tónleikana okkar í þessu ballformi þar sem bæði tónlistin og dansinn verður í fyrirrúmi. Ég mæli með því að þeir sem hafa sérstakan áhuga tryggi sér miða tímanlega svona í ljósi reynslunnar,“ bætir hann við og lofar að þó að veðurspár geri ráð fyrir að það verði rok í Reykjavík á fimmtudaginn verði hlýtt í Iðnó. Útgáfutónleikarnir verða eins og áður sagði fimmtudaginn 24. maí í Iðnó en miðasalan er á tix.is. Rok í Reykjavík en hlýtt í Iðnó Salsakommúnan stendur fyrir salsaballi á fimmtudaginn, 24. maí, í Iðnó. Ballið er þó ekkert venju- legt ball heldur líka útgáfutónleikar fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar, Rok í Reykjavík. Baldvin Snær í Iðnó þar sem útgáfutónleikar Salsakommúnunnar fara fram á fimmtudaginn. MYND/StefáN KaRlSSoN Salsakommúnan er skipuð ellefu vinum úr MH sem féllu fyrir salsanu svo ekki varð aftur snúið. MYND/HaNS VeRa 4 KYNNINGaRBlaÐ fÓlK 2 2 . M a í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 2 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D A -B F B C 1 F D A -B E 8 0 1 F D A -B D 4 4 1 F D A -B C 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.