Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 9 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . M A Í 2 0 1 8 heia norge! tilboðsdagar 14 – 27 maí til gode priser! flotte mobiler Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir gæsa/steggjapartýið Finndu okkur á öflugur liðstyrkur Fréttablaðið í dag SKOÐUN Kári Stefánsson skrifar ríkissaksóknara opið bréf. 11 SPORT Kjartani Henry Finn- bogasyni hafa borist hótanir frá reiðum stuðningsmönnum. 18 TÍMAMÓT Í dag eru átta ár liðin frá því að eldgosinu í Eyjafjalla- jökli lauk. 17 LÍFIÐ Leikhópurinn Lotta setur veðurofsa á vorin ekki fyrir sig. 26 PLÚS 3 SÉRBLÖÐ l FÓLK l MARKAÐURINN l  KÓPAVOGUR *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 VIÐSKIPTI Fagfjárfestasjóðurinn ORK, sem er að mestu í eigu íslenskra lífeyrissjóða, hefur áform um að selja 12,7 prósenta hlut sinn í HS Orku. Formlegt söluferli hófst í síð- ustu viku, samkvæmt heimildum Markaðarins, en væntingar eru um að sjö til átta milljarðar króna geti fengist fyrir hlutinn. Miðað við það er markaðsvirði orkufyrirtækisins um 55 til 63 milljarðar. Talsverður áhugi er sagður vera á hlutnum í HS Orku, bæði á meðal erlendra og innlendra fjárfesta, en gert er ráð fyrir að óskuldbindandi tilboð muni berast í næsta mánuði. Gangi áætlanir eftir gæti salan klár- ast í lok sumars. – hae / sjá Markaðinn Lífeyrissjóðir vilja selja hlut í HS Orku KOSNINGAR Samtök iðnaðarins gagn- rýna hæga málsmeðferð sveitarfélaga í skipulags- og byggingarmálum í nýrri úttekt. Hæg afgreiðsla mála getur staðið í vegi fyrir íbúðaupp- byggingu sem er eitt stærsta málið í komandi sveitarstjórnarkosningum. Framkvæmdir tefjast og því fylgir kostnaður. „Ég held að það sé bráðnauð- synlegt að þessu verði breytt hjá borginni. Þetta er eitt af því sem hefur tafið uppbyggingu íbúðar- húsnæðis í borginni og valdið kostnaði,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykja- vík. Hann segir að hægt væri að flýta afgreiðslu mála með því að einfalda kerfið. „Kerfið er orðið svo flókið, málin fara á milli svo margra aðila. Betra væri að minnka kerfið og að það yrði raf- rænt,“ segir hann. „Þetta endar allt á fólkinu sem er að kaupa íbúðir,“ segir Eyþór um kostnaðinn sem hlýst af þessum töfum. „Laga- og reglugerð- arumhverfið er mjög flókið og það má bæta,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylking- arinnar, um ástæður þess að málin dragist. „Við höfum gert tillögur um hvernig er hægt að stytta þennan tíma.“ Aðspurður hvers vegna tillög- urnar hafa ekki náð fram að ganga í ljósi þess að flokkur hans hefur verið lengi í meirihluta segir Dagur að ástæðurnar liggi annars staðar. „Vegna þess að þær þurfa að fara í gegnum Alþingi og ríkisstjórnir og það hafa verið nokkuð ör ríkis- stjórnarskipti sem hefur ekki hjálpað. Til dæmis kom húsnæðissáttmálinn fram í síðustu ríkisstjórn,“ segir Dagur og vísar þar í sáttmála um húsnæðis- mál með fjórtán aðgerðum til að bregðast við vandanum á húsnæðis- markaðnum. Í sáttmálanum var kallað eftir tillögunum sem Dagur minnist á. „Það er ekki ljóst hvaða umbótamál þessi ríkisstjórn hyggst halda áfram með,“ bætir hann við. – gþs, jhh / sjá síðu 6 Sveitarstjórnir tefja uppbyggingu íbúða Samtök iðnaðarins segja hæga afgreiðslu sveitarstjórna leiða af sér tafir á framkvæmdum við íbúðir og aukinn kostnað. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, segir boðleiðir of flóknar. Borgarstjóri segir tillögur sem einfalda regluverkið stranda á Alþingi. Eyþór Arnalds og Dagur B. Eggertsson Það ríkti sannkölluð gleði hjá aðstandendum kvikmyndarinnar Kona fer í stríð á sérstakri hátíðarsýningu í Háskólabíói í gærkvöldi. Myndin naut mikillar hylli á nýafstaðinni kvikmynda­ hátíð í Cannes. Hér stilla sér upp þau Ólafur Egilsson, Davíð Alexander Corno, Benedikt Erlingsson, Jóhann Sigurðarson, Halldóra Geirharðsdóttir og Davíð Þór Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D E -5 6 1 C 1 F D E -5 4 E 0 1 F D E -5 3 A 4 1 F D E -5 2 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.