Fréttablaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 4
TILBOÐSVERÐ FRÁ: 1.990.000 KR. – LISTAVERÐ FRÁ: 2.390.000 KR.
ÚTFÆRSLUR Í BOÐI: POP, LOUNGE, BEINSKIPTUR/SJÁLFSKIPTUR, BLÆJU OG 105 HESTAFLA TWINAIR (TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI)
FIAT 500 Á FRÁBÆRU FIAT-SUMARTILBOÐI
MAMMA
MIA!
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF · UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI · WWW.FIAT.IS
ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS · OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 · LAUGARDAGA 12-16
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í Heima-
völlum var 1,24 krónur á hlut í lok
fyrsta viðskiptadags með bréfin í
Kauphöll Íslands í gær og er það
tæplega 11 prósenta lækkun frá
meðalgengi í hlutafjárútboðinu fyrr
í mánuðinum sem var 1,39 krónur
á hlut.
196 milljóna króna velta var með
hlutabréf í íbúðaleigufélaginu í
gær. Fyrstu viðskipti dagsins voru
á genginu 1,39 krónur á hlut en
gengið fór hins vegar lækkandi eftir
því sem leið á daginn.
Að loknum fyrsta viðskiptadegi
er félagið Stálskip, í eigu hjónanna
Guðrúnar Lárusdóttur og Ágústs
Sigurðssonar, stærsti hluthafi
Heimavalla með um 8,6 pró-
senta hlut. Félögin Snæból, í eigu
hjónanna Steinunnar Jónsdóttur og
Finns Reyrs Stefánssonar, og Gani,
í eigu Tómasar Kristjánssonar, fara
með 7,5 prósenta hlut hvort.
Þrír lífeyrissjóðir, Birta, Lífsverk
og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda,
eru í hópi tuttugu stærstu hluthafa
félagsins. – kij
Bréfin lækkuðu
um 11 prósent
frá útboðsgengi
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heimavalla, hringir
bjöllunni í Kauphöll Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
VERKALÝÐSHREYFINGIN „Það var öfl-
ugur meirihluti fyrir þessu en í öllum
stjórnum eru skiptar skoðanir, þegar
um er að ræða svona stórar stjórnir,“
segir Ragnar Þór Ingólfsson, for-
maður VR.
Hann segir aðeins tvo stjórnar-
menn af fimmtán hafa lagst gegnt
vantraustsyfirlýsingu á Gylfa Arn-
björnsson, forseta ASÍ, í gær. Einn
hafi ekki tekið afstöðu, einn ekki
svarað en ellefu samþykkt. Verka-
lýðsfélag Akraness lýsti einnig van-
trausti á Gylfa í gær. Ragnar segir að
stjórn VR hafi verið nauðugur einn
kostur að lýsa vantrausti á Gylfa.
„Forsetinn virðist vera í sóló-
hlutverki. Ætlar að fara að ræða við
stjórnvöld án þess að hafa formlegt
umboð frá félögunum eða stefnu.
Við sáum okkur ekki annað fært
en að lýsa því yfir að hann hafi ekki
okkar traust til að fara með umboð
okkar gagnvart stjórnvöldum.“
Forseti ASÍ er af VR og VLFA sak-
aður um að vinna gegn hagsmunum
félagsmanna og hunsa ákall um
breyttar áherslur.
„Eins og framganga forsetans
hefur verið, í auglýsingaherferðum
þar sem verið er að gera lítið úr
kröfum um breytingar innan verka-
lýðshreyfingarinnar. Það er dapur-
legt að horfa upp á þetta. En þetta
var líklega kornið sem fyllti mælinn,
að ætla að fara einn að ræða við
stjórnvöld án þess að telja sig þurfa
til þess umboð,“ segir Ragnar Þór
Ingólfsson. – smj
Tekist á um vantraust en samþykkt með miklum meirihluta
Ragnar Þór og Gylfi Arnbjörnsson hafa eldað grátt silfur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
SKIPULAGSMÁL „Það er hiti í íbúum
og það snýr sérstaklega að því að
þetta hverfi er á milli stórra um-
ferðar æða, Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar,“ segir Tryggvi Sch.
Thorsteinsson, íbúi í Holta- og Hlíða-
hverfinu í Reykjavík.
Íbúar í hverfinu, norðan Miklu-
brautar, hittust á fundi í Háteigsskóla
í gær þar sem rædd voru skipulags-
mál. Þeir mótmæla því að byggðar
verði 200 íbúðir á Stýrimannaskóla-
reitnum svokallaða, sem bætast við
1.200 íbúðir sem eru í hverfinu eða í
byggingu þar.
Tryggvi segir íbúa hafa miklar
áhyggjur af þeirri umferð sem
muni verða um hverfið. „Menn
hafa áhyggjur af því að það sé í raun
tímaspursmál hvenær bílslys verður
þarna. Það eru krakkar sem búa
þarna og þau sækja Háteigsskóla sem
er eiginlega í öðrum enda hverfisins
og þurfa að ganga þar í gegn,“ segir
hann
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, íbúi
í Vatnsholti, tekur í sama streng.
Hverfið afmarkist af mjög stórum
umferðargötum og þess vegna sé
mjög slæmt að verið sé að taka burt
grænt svæði, sem í ofanálag er mjög
vinsælt útivistarsvæði.
Sunna leggur áherslu á að það
vanti græn svæði í hverfið. „Vegna
þess að það er ekki einu sinni gras
á skólalóðunum. Bæði Háteigsskóli
og Ísaksskóli eru með malbikaðar
lóðir.“
Sunna hefur líka áhyggjur af því að
skólarnir í hverfinu geti ekki annað
þeirri fólksfjölgun sem verði þarna.
„Svarið sem skólarnir fá þegar þeir
segja að þeir þurfi að bregðast við
þessari uppbyggingu er að það sé
hægt að setja færanlega skúra á lóð-
ina. Þá á að taka sparkvöll barnanna
í burtu,“ segir hún.
Sunna segir að það vanti frekari
þjónustu við íbúana. „Það er verið að
áætla þarna stúdentaíbúðir og það
vita allir að stúdentar eru með börn
og það eru ekki einu sinni dagmæður
í þessu hverfi. Það er ein í Skipholti
og ein á Miklubraut og þær eru alltaf
fullbókaðar.“
„Við erum mjög uggandi yfir þessu
og það er virkilegur hiti vegna þess
hversu lítið við fáum að koma að
þessum málum og hversu lítið er
hlustað á okkur,“ segir Tryggvi.
jonhakon@frettabladid.is
Íbúarnir andmæla byggingu
íbúða á Stýrimannareitnum
Íbúar í Holta- og Hlíðahverfinu í Reykjavík mótmæla uppbyggingu 200 íbúða á Stýrimannareitnum. Hafa
áhyggjur af aukinni umferð. Borgaryfirvöld leggi upp með að byggt verði á vinsælu útivistarsvæði í hverf-
inu. Þá séu skólarnir í hverfinu ekki í stakk búnir til að þjónusta fleiri börn og skortur sé á dagmæðrum.
Sameinumst í því að láta ekki þetta síðasta græna útivistarsvæði hverfisins, sleðabrekku, útsýnisundur og samein-
ingarstað hverfisbúa fara undir malbik, segir í fundarboði fyrir íbúafundinn sem fór fram í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er virkilegur
hiti yfir því hversu
lítið við fáum að koma að
þessum málum og hversu
lítið er hlustað á okkur
Tryggvi Sch. Thorsteinsson
Við sáum okkur
ekki annað fært en
að lýsa því yfir að hann hafi
ekki okkar traust.
2 5 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
6
-A
D
9
4
1
F
E
6
-A
C
5
8
1
F
E
6
-A
B
1
C
1
F
E
6
-A
9
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K