Fréttablaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 36
„Ég veit ekki betur en að þetta sé fyrsta
bókin á íslensku um Kanaríeyjar sem
hefur verið uppáhalds áfangastaður
Íslendinga í öll þessi ár. Það eru ekki
margar ferðamannahandbækur á
íslensku,“ segir Snæfríður Ingadóttir
sem hefur gefið út bókina Ævintýraeyjan
Tenerife, stór ævintýri á lítilli eyju.
Bókin er 144 blaðsíður og er uppfull
af fróðleik og skemmtilegum hugmynd
um að ýmsu áhugaverðu sem vert er að
skoða og upplifa á Tenerife. Snæfríður
hóf að venja komur sínar til Kanaríeyja
fyrir um fimm árum í gegnum íbúða
skipti en hún er einmitt nýbúin að
gefa út bók um þann valkost. „Þetta er
sjöunda bókin sem ég gef út, önnur á
þessu vori og sú fyrsta sem er á íslensku
um Tenerife að því er ég best veit,“ segir
hún kát.
Kanaríeyjar eru sjö talsins en Snæ
fríður og fjölskylda hennar hafa heillast
sérstaklega af Tenerife og ætla þau að
dvelja þar allan næsta vetur. „Börnin
fara í skóla og við hjónin ætlum að læra
spænsku og lenda í ævintýrum,“ segir
Snæfríður og heldur áfram: „Undanfarin
fimm ár höfum við alltaf farið til Kanarí
eyja í minnst mánuð í einu. Við byrj
uðum að fara í gegnum íbúðaskipti sem
er sérlega hagstætt fyrir barnafólk því þá
er ekkert greitt fyrir gistingu. Á þessum
ferðalögum höfum við gist á öðrum
stöðum en hinn venjulegi ferðamaður
og erum oftast innan um heimamenn.
Þá höfum við líka oft fengið skemmtileg
tips frá heimamönnum á þessum ferða
lögum okkar. Handbókin um Tenerife
er byggð á þessum upplifunum okkar
og segir frá því sem mér finnst vert að
deila áfram til annarra Íslendinga sem
vilja upplifa pýramída, regnskóg, góðar
gönguleiðir, flóamarkaði, náttúrulaugar
og annað skemmtilegt sem þessi eyja
hefur upp á að bjóða.“
benediktboas@365.is
Heillaðist af eyjunum
Snæfríður kominn með bókina í hendur en hún byrjaði að fara til Tenerife fyrir um fimm árum í gegnum íbúðaskipti.
Leyndardómar Tenerife eru kynngimagnaðir og ekki allir sem njóta hennar til fulls.
Bókin er sú fyrsta á íslensku um Tenerife.
Út er komin ferðamanna-
handbókin Ævintýraeyjan
Tenerife eftir Snæfríði Inga-
dóttur en þetta er fyrsta
bókin á íslensku um eyjuna
sem Íslendingar eru svo
sólgnir í. Þetta er önnur
bókin hennar á þessu vori
og sú sjöunda alls.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Þórarinn Sveinsson
tæknifræðingur og fyrrverandi
forstjóri Stálvíkur, Garðabæ,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn
18. maí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
fimmtudaginn 31. maí nk. kl. 13.
Þuríður Hjörleifsdóttir
Þórunn Jónsdóttir Jóhannes T. Halldórsson
Sveinbjörg Jónsdóttir Gunnar Jóhann Birgisson
Jón Þórarinn, Hulda Steinunn og Jón Björgvin
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ingibjörg Karlsdóttir
(Inba Kalla)
áður til heimilis að
Selvogsgötu 13, Hafnarfirði,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á dvalarheimilinu
Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 9. maí. Útförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn
28. maí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurbjörg Hilmarsdóttir Guðmundur Björnsson
Sigrún Hilmarsdóttir Kristján Hringsson
Jónas Hilmarsson Ágústa Ragnarsdóttir
Guðríður Hilmarsdóttir Gunnar Ólafur Eiríksson
Ágústa Guðný Hilmarsdóttir Valur Helgason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Sigurjónsdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður að Sjafnargötu 12, Reykjavík,
lést á Hrafnistu að morgni 23. maí.
Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju
fimmtudaginn 7. júní kl. 13.00.
Edda G. Björgvinsdóttir
Birgir Björgvinsson Ásta Edda Stefánsdóttir
Áslaug Högnadóttir Páll Haraldsson
Andri Björn Birgisson Johanna Velásquez
Brynja Dóra Birgisdóttir Ragnar B. Ragnarsson
Týr Fáfnir Stefánsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Kristján Gunnarsson
Hraunbæ 66,
Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn
19. maí. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju
miðvikudaginn 30. maí klukkan 13.
Gunnar Kristjánsson Oddný Bára Ólafsdóttir
Unnur Kristjánsdóttir Þórir Björgvinsson
Sigríður Kristjánsdóttir Guðmundur Hilmarsson
Páll Kristjánsson Sinéad McCarron
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Fjólu Pálsdóttur
Heiðargerði 42,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum 10. apríl
síðastliðinn.
Pálmar Kristinsson Hallfríður Frímannsdóttir
Halldór Kristinsson
Gunnar S. Kristinsson Gréta Vigfúsdóttir
Sævar Kristinsson Ólöf Kristín Sívertsen
barnabörn og barnabarnabörn.
2 5 . m a í 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U R28 T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð
tímamót
2
5
-0
5
-2
0
1
8
0
5
:1
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
6
-D
A
0
4
1
F
E
6
-D
8
C
8
1
F
E
6
-D
7
8
C
1
F
E
6
-D
6
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K