Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 4

Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 4
Forsíða Erla María Árnadóttir, Ármann Agnarsson Safnablaðið Kvistur Útgefandi Safnarútan slf. Ritstjórar Sigrún Kristjánsdóttir og Guðrún Dröfn Whitehead Ritstjóm Bergsveinn Þórsson, Inga Lára Baldvinsdóttir, Sigurður Trausti Traustason, Sigurjón Baldur Hafsteinsson Hönnun Ármann Agnarsson Myndskreytingar Erla María Árnadóttir Prentun Prentmet Pýddar greinar um hlutverk safna og ný hugtök Sunnefa Völundardóttir Höfundum greina eru færðar kærar þakkir fyrir þeirra framlag. ISSN 2298-6944 RITSTJÓRASPJALL Kæru lesendur! Hér lítur í fyrsta skipti dagsins ljós tímarit sem hefur hlotið nafnið Safnablaðið Kvistur. Blaðið á sér nokkurn aðdraganda í hugum þeirra sem að því standa en síðastliðið haust var loks álcveðið að látið til skarar skríða. Fæðingin hefur gengið eins og við er að búast, stundum sársaukafull, með hléum, óvæntum uppákomum og gleði. Við berum þá ósk í brjósti að Safna- blaðið Kvistur geti orðið vettvangur þar sem fagfólk á sviði safnamála og áhugamenn um menningu hafi aðgang að umfjöllun, slcoðana- skiptum, umræðum og fréttum af íslenskum og erlendum vettvangi og verði jafnframt málgagn fyrir safnafólk þar sem mikilvæg fagleg málefni eru rædd. í tímaritinu er stefnt að uppbyggilegri gagnrýni og umfjöllun um allar tegundir safna, svo sem listasöfn, minjasöfn og nátt- úruminjasöfn. Einnig verður lögð áhersla á samstarf og samtal milli menningar- og menntastofnana. í hverju hefti verður safnarýni þar sem einstaklingar, innan og utan safnageirans, skoða íslensk og erlend söfn og sýningar. Lögð verður áhersla á faglegt efni svo sem rann- sóknir, forvörslu, skráningarmál, sýningargerð, miðlun og fræðslu. Birt verða viðtöl við fólk sem kemur að söfnum og sýningum úr ólíkum áttum. Von er til þess að hægt verði að opna einfalda heimasíðu blaðsins á næsta ári. Greinaskrif verða í höndum fólks úr ýmsum kimum samfélagsins, safnafólks, nemenda, hönnuða, lista- manna, gagnrýnenda og annarra áhugamanna um málefni safna. Öllu áhugafólki er meira en velkomið að senda blaðinu efni eða athugasemdir (sigrun@safnarutan.is). Áður hafa komið út hefti um safna- mál en það eru Ljóri og Fréttablað safnmanna, en noklcuð er um liðið síðan það var. Fyrsta tölublaðið kemur nú fyrir sjónir lesenda og þar má finna sitt- hvað af því sem talið er upp hér að framan, en annað bíður næstu tölublaða. Hér má nefna frásagnir af Berlínarferð safnafólks nú í haust, viðtal við nýráðinn deildarstjóra sýningadeildar Listasafns íslands og skemmtilega sögu úr lífi safna- manns. Þar má einnig finna safna- rýni, stutta gagnrýni um sýningar nokkurra íslenskra safna. Með von um að lesendur hafi gagn og gaman af. Sigrún Kristjánsdóttir, Borgarsögusafni 4

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.