Litli Bergþór - 01.07.2014, Blaðsíða 18
18 Litli-Bergþór
Seinni dagur Skálholtshátíðar var í dag. Jón Bjarnason
organleikari efndi til tónleika klukkan 11.00 og klukkan
12.15 var stofnfundur endurreists Skálholtsfélags
og tilnefndi Kristján Valur Ingólfsson formann þess,
hann er að minnsta kosti til fyrsta aðalfundar að ári
Jón Sigurðsson, fyrrv. ráðherra, seðlabankastjóri og
formaður Framsóknarflokksins. Hann er oft kallaður
á vettvang sem einskonar brúarsmiður hvort sem
menn vilja brúa fortíð og framtíð eða smíða nýja
brúarstólpa vegna einhvers sem þarf að styrkja.
Klukkan 14.00 var hátíðarmessa, upphaf hennar
tafðist um 10 mínútur á meðan beðið var pílagríma,
sumir þeirra höfðu gengið 120 km úr Borgarfirði
undir forystu sr. Elínborgar Sturludóttur. Þeir gengu
berfættir inn kirkjugólfið. Jóhann Stefánsson og
Jóhann Már Nardeau léku á tompett í tilefni af komu
þeirra. Séra Karl Sigurbjörnsson, fyrrv. biskup, flutti
frábæra prédikun og leiddi kirkjugesti aftur til ársins
1963 þegar hann 16 ára átti sem verkamaður þátt í
lokafrágangi fyrir vígslu dómkirkjunnar fyrir 50 árum.
Klukkan 16:15 hófst Skálholtshátíð, Skálholts-
kvartettinn lék, Benedikt Kristjánsson söng
og Jóhann Már Nardeau lék á trompett, Skál-
holtskórinn söng undir stjórn Jóns Bjarnasonar
sem einnig lék á orgel við athöfnina.
Herra Ólafur Ragnar Grímsson flutti ávarp og
lýsti réttilega gildi endurreisnar Skálholts fyrir
sjálfsvirðingu þjóðarinnar eftir að hún hlaut sjálfstæði.
Pétur Kr. Hafstein, fyrrv. forseti kirkjuþings,
flutti hátíðarræðu og ræddi stöðu þjóðkirkjunnar
að íslenskum lögum og stjórnarskrá. Þá flutti
Gunnar Eyjólfsson leikari hátíðarljóð sem Matthías
Johannessen orti í tilefni af vígslu Skálholtsdómkirkju
fyrir 50 árum. Matthías var í messunni og á hátíðinni.
Karl Sigurbjörnsson afhenti mynd af Sigurbirni
biskupi, föður sínum. Jón Hákon Magnússon las
gjafabréf frá konu sinni Áslaugu Harðardóttur
Bjarnasonar, arkitekts Skálholtsdómkirkju, þar sem
hún færði kirkjunni þrjá gripi frá föður sínum sem
tengjast kirkjunni. Erfingjar Guðjóns Arngrímssonar,
byggingarmeistara kirkjunnar, gáfu henni líkan
af henni sem Guðjón átti en hann hvatti um jólin
1964 afkomendur og vini til að verða á 50 ára
afmælishátíð kirkjunnar árið 2013 ef þeir gætu og
var stór hópur þeirra í messunni og á hátíðinni.
Kristján Valur vígslubiskup spurði hverjir í kirkjunni
hefðu sungið í kórnum fyrir 50 árum og risu fáeinir á
fætur. Einn þeirra Bragi Þorsteinsson er nú forsöngvari
í kórnum og kallaði Kristján Valur hann fram, heiðraði
Braga fyrir hönd allra sem hefðu komið að söng í kór
kirkjunnar og færði honum bók og rósir til þakklætis.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup lauk athöfninni
með ávarpi og bæn rétt fyrir klukkan 18.00.
Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup hélt af
sköruglegri hógværð utan um hátíðina frá upphafi
til enda, var vel og myndarlega að öllu staðið.
Dómkirkjan var þéttsetin við allar þessar athafnir.
Nýja alþingismenn þekki ég ekki í sjón og kann einhver
þeirra að hafa verið meðal kirkju- eða hátíðargesta. Ég sá
Árna Johnsen, fyrrverandi þingmann Suðurkjördæmis,
en engan ráðherra, ég tel mig þekkja þá alla í sjón.
Vissulega afhenti ríkið kirkjunni Skálholt til eignar
og yfirráða árið 1963 en þar með urðu ekki slit í
samskiptum ríkis og kirkju vegna Skálholtsstaðar. Slíti
menn þau tengsl höggva þeir á rætur þjóðmenningar.
Ég var ekki á Skálholtshátíð 1963 en fylgdist
með aðdraganda hennar og hátíðarhöldunum
úr fjarlægð. Guðmundur Benediktsson, síðar
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, bar veg og
vanda að öllu skipulagi og undirbúningi af hálfu
dómsmálaráðuneytisins og var Kristín Claessen,
ekkja hans, meðal gesta í Skálholti núna með dóttur
þeirra séra Solveigu, vígslubiskupi að Hólum.
Hátíðin vakti bæði athygli og umræður. Meðal
þess sem ýmsir eiga til minningar um hana er
minnispeningur, einskonar heiðursorða fyrir aðild að
viðburðinum. Orðan hefur ekki síst verið hugsuð sem
þakklætisvottur við hina mörgu erlendu menn sem
lögðu kirkjusmíðinni lið með höfðinglegum gjöfum.
Þar var Norðmaðurinn Harald Hope í fremstu röð.
Meðal þeirra sem heilluðust af Skálholti og áformum
um endurreisn staðarins var Bodil Begtrup, sendiherra
Dana, við upphaf sjötta áratugarins. Hún átti síðar
eftir að gegna embætti sendiherra í öðrum löndum
en að eigin ósk er hún grafin við hlið Skálholtskirkju.
Eins og áður sagði flutti Gunnar Eyjólfsson ljóðið Í
Skálholtskirkju eftir Matthías Johannessen. Gunnar
flutti ljóðið í þeim búningi sem Matthías bjó því í
nóvember 1982 og birtist í Lesbók Morgunblaðsins
27. ágúst 1983.
Í Lesbókinni stóð:
„Fyrir vígslu Skálholtskirkju fór höfundur kvæðisins
í Skálholt með Herði Bjarnasyni, arkitekt. Upp úr
Skálholtsdómkirkja 50 ára
- Í minningu ljóðs
Höfundur:
Björn Bjarnason