Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 8

Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 8
8 Litli-Bergþór Nú er um ár liðið frá því að þjónustu- og framkvæmdasviði var breytt í Framkvæmda- og veitusvið Bláskógabyggðar. Stærsta breyt- ingin fól í sér að Bláskógaveitur voru færðar undir sviðið og starfsmönnum fjölgað um einn. Starfsárið hefur verið viðburðaríkt og áskor- anir og óvæntar uppákomur hafa sprottið upp bak við hvern hól. Stiklað á stóru Á framkvæmdasviðinu stendur upp úr myglu- vandinn sem kom upp í leikskólanum. Þrátt fyrir erfiðar ákvarðanir og vanda sem við stóðum frammi fyrir þegar myglan uppgötvaðist, fór allt vel og má þar fyrst og fremst þakka mjög jákvæðum og lausnamiðuðum stjórnendum og starfsfólki leikskólans og grunnskólans. Við búum líka vel að eiga að menn eins og Steina í Bisk- verk, sem er boðinn og búinn að bjarga málunum þegar á þarf að halda. Við teljum okkur vera búna að koma í veg fyrir rakann sem fóðraði mygluna og nú er beðið eftir að rakastigið í gólfi og veggjum komist á það stig að hægt sé að fara að slípa og eyða síðustu leifunum af myglunni. Það ferli gerist hægt en stefnir í rétta átt. Fráveitumál tóku drjúgan tíma fyrstu misserin. Það kom í ljós að rotþróin við tjaldsvæðið var ónýt og þurfti að hafa hraðar hendur og koma niður nýrri rotþró. Það var gert með framtíðarmarkmið í fráveitumálum í Reykholti í huga. Það verk vann Doddi (Þórarinn) í Fellskoti (BD vélar). Nú er unnið að því að tengja Aratungutorfuna, Friðheima, Gufuhlíð, Birkihlíð og Espiflöt við nýju fráveituna. Síðan verður haldið áfram í stefnumótun í fráveitumálum í allri Bláskógabyggð. Til að mynda stendur til að byggja rotþrær og hreinsistöðvar í Laugarási og Reyk- holti til að mæta ört stækkandi byggð og kröfum. Hvað varðar aðrar framkvæmdir, hefur markmiðið verið að sinna daglegum uppákomum og viðhaldi. Þar er af nógu að taka og hefur Framkvæmda- og veitusvið Bláskógabyggðar Bjarni Dan, Jónas Þóris, Loftur Jónasar, Einar Guðmunds og Steini í Bisk-verki á leið að skoða framkvæmdir við fjallaskála. Karl Ragnarsson frá Eflu mældi mjög mikla rakamettun í leikskólanum.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.