Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 50

Litli Bergþór - 01.07.2017, Blaðsíða 50
Ég elska þessa himnesku sumarmorgna þegar við systir mín vöknum á undan öllum öðrum og hlaupum berfættar út á grasið. Þessa morgna þegar sólin er nýkomin upp í austri og farin að læðast í áttina að Heklu en er ekki enn farin að speglast í víkinni sem er suður af bænum. Og ekki enn búin að þurrka upp döggina á grasinu. Við skríkjum af kátínu og eintómum fögnuði yfir því að vera einar í heiminum með fuglum himinsins og kúnum sem heyrast baula í fjarska. Bræður okkar eru enn ekki vaknaðir til að sækja kýrnar, en fljótlega koma þeir niður og þess vegna er um að gera að nýta stundina vel. Döggin er svalandi á iljarnar en okkur er ekki kalt. Við flögrum um eins og álfaprinsessur í skrautlegu náttfötunum á milli hríslanna og upp og niður brekkuna í garðinum. Stundum látum við okkur falla í grasið en þá blotnum við og okkur verður kalt svo við stöndum fljótt upp aftur og höldum áfram að dansa í dögginni. Þegar eldri bræður okkar eða foreldrar vakna er gamanið búið. Stundum erum við skammaðar, stundum er bara glott út í annað og okkur sagt að klæða okkur. Við gegnum því en ekki fyrr en við höfðum hitað okkur vel undir sænginni. Það getur verið svalt þessa morgna en við tökum yfirleitt ekki eftir því fyrr en eftirá. **** Dansinn í grasinu Ég er yngsta barnið en á systur sem er einu ári eldri og vill alltaf vera að passa mig og svo þrjá eldri bræður sem stríða mér stundum af einskærri aðdáun. „Dekurrófa“ segja bræðurnir um leið og þeir hossa mér og henda á milli sín. Sjálfir dekra þeir mig svo mest af öllum. Magga kallar mig litla ljósið sitt en svo er ég líka litla lipurtáin hennar mömmu og litla trippið hans pabba. „Af því þú ert svo leggjalöng“ segir pabbi, „eins og lítið folald.“ Ég tölti um tún og engi óáreitt og í hamingjuvímu yfir allri ástinni sem ég fæ og allri ástinni sem ég á innra með mér. Já, og yfir öllu þessu lífi sem ég á eftir að lifa. Það er sólskin alla daga. Ég er náttúrubarn og tek að mér að búa til hreiður handa fuglunum og tína maðka handa ungunum þegar þeir eru komnir úr eggjunum. Ég reyni að gleðja öll dýr og alla menn … enda eru allir góðir við mig. Skemmtilegast þykir mér að gleðja Möggu. Hún er alltaf svo þakklát og tárast stundum þegar ég birtist með eitthvað fallegt handa henni. Ég vanda mig alveg sérstaklega þegar ég vel blóm í blómvönd handa Möggu. Sóleyjar, fíflar og gulmaðra eru alltaf uppistaðan því gult er fallegast. Fjólubláar hrafnaklukkur og fjalldalafíflar eru líka falleg blóm í vönd og svo bláklukkur. Og Magga kyssir mig og knúsar fyrir fallegasta blómvönd í heimi. Ég á uppáhaldsdýr sem elska mig líka. Gæfa var heimalningur þegar hún var lítið lamb og ég gaf henni alltaf mjólk úr pela. Þessvegna elti Gæfa mig út um allt. Nú er Gæfa orðin fullorðin ær en hún kemur alltaf til mín þegar ég kalla. Dúfa er hænan sem hjúfrar sig saman þeg- 50 Litli-Bergþór Ólöf Sverrisdóttir: Útsýni yfir Hrosshagavíkina. Eyjafjallajökull í fjarska.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.