Röðull - 09.06.1925, Blaðsíða 1

Röðull - 09.06.1925, Blaðsíða 1
Ávarpsorð. Víösvegar um landið eru nú farin að koma út fjölrituð sveitablöð. Er það gleðilegt spor í áttina til vakn- ingar um hin sameiginlegu velferðar- mál, því í fásinninu eru menn oft furðu viðkvæmir og þarf því ekki altaf mikið til þess að reisa þá úr sinnu- leysisrotinu. RöðuJI hóf göngu sína sem fjölrit- að þorpsblað og varð þá þegar meira ágengt um áhugamál sín, heldur en vonir stóðu til. í hinni nýju mynd sinni vonar hann þó að geta orðið mun liðtækari í þeim málum, sem hann ber fyrir brjósti. Þar sem margt fólk er samtn komið, er óeðlilegt, að mjög sé hljótt um velferðarmál þjóðarinnar. Þó kveður svo ramt að því í hinum fjölmennari þorpum lands vors, að undrun sætir. Og að sjálfsögðu er ástandið einna lakast á þeim stöðum, sem fjærstir eru höfuðborg landsins og kaupstöð- unum, þar sem blöðin halda mönn- um vakandi. Hér á Austurlandi eru allmörg fjöl- menn þorp, en aðeins eitt prentað blað. Afleiðingin er sú, að vér kvört- um ósjaldan um það, hver í sinu skoti, að þessi landshluti sé hafður út undan. Ef slíkar umkvartanir eru réttmætar, þá megum vér vissulega sjálfum oss um kenna, að miklu leyti, því það verður ekki af oss þvegið, að vér höf- um hingað til gert miklu minna en hinir fjórðungar landsins, til þess að sýna það — í orði og verki — að hér eru þúsundir manna, sem hafa sömu áhugamál og gera sömu kröfur til lífsins og alirent gerist meðal sið- aðra þjóða. — Vér verðum sjálfir að vekja athygli á oss, áður en vér get- um látið hátt um það, að oss sé gleymt „á hærri stöðum“. Röðull vill stuðla að því, að á þessu fáist bót, með því að verða málgagn þeirra manna, sem áhuga hafa á að sameina Austfirðinga um velferðarmál sín og vekja þá til framtakssemi. Væntir hann samvinnu allra þeirra, sem þreyttir eru á fásinninu og vilja framfarir þjóðarinnar á öllum sviðum. Þegar menn láta sér mjög á sama standa um meðferð hinna opinberu mála, er viðbúið, aö þeir vakni alt í einu með andfælum og sjái, að alt er komið í hið mesta öngþveiti og að velferðarmál þeirra eru ekki að öðru orðin en að pólitiskum skóþveng óhiutvandra manna. Og þá er ekkert áhlaupaverk úr að bæta, því óhæfu- verkin standa oft á gildum stoðum sundrungar og skammsýni. En fyrir slíkt verður aðeins tekið með því að sýna þeim, sem með völdin fara, að haft sé vakandi auga með starfrækslu þeirra. Á þessu er einna mest þörf í sjávarþorpunum, þar sem stjórnað er eftir löngu úieltum lögum og alt er undir sveitarstjórninni komið. Þess- vegna munum vér sérstaklega vera á varðbergi þar, sem vér höfum pata af því, að verið sé að tefla málefnum þorpanna í voða. — í hverju máli mur.um vér leggja kapp á það, að segja sannleik- ann og ekkert annað en sannleikann. En oss dylst þó eigi, að til þess get- ur komið að hreyfa verði við málefn- um, sem mjög eru á huldu og þar sem hið sanna getur fyrst komið í Ijós við ýtarlegar umræður. í slíkum tilfellum munum vér að sjálfsögðu ætíð leiðrétta það, sem af ókunnug- leik kann að verða missagt í blaðinu. Vér munum aldrei hirða um, að „láta satt kyrt liggja", ef oss virðist auðsætt, að af því gæti óheill stafað. — Auk þess að fjalla um hin op- inberu velferðarmál, munum vér kapp- kosta að gera blaðið sem fjöibreytt- ast, bæði með úrvals sögum, fréttum og ýmiskonar fróðleik. Heimsmynd. Ægilegasta heimskan í allri veröld- inni er veruleikastefnan. Hinn sýnilegi heimur er blekking. Hann er aðeins brot, örlítið korn, úrgangsefni ljósvak- ans, stirðnuð orka. En hún er stirðn- aður Ijósvaki. En hann er myndaður af andanum. Af andanum eru allir hlutir. Við skynjum hann ekki. Við (skynjum alls ekki tilverunu eins og hún er. Oss vantar skynfæri til þess. Hið sýnilega er myndað af hinu ósýni- lega. Guð hefir skapað heiminn. Við skynjum ekki sjálfa oss. Aðeins líkamann og örfáar ljósvakasveiflur, sem koma fram í minningum og til- finningum. Persóna vor er í mörgum lífsmyndum neðan frá efnislíkamanum og allu leið upp úr andanum, tengd við guðdóminn. Og eins og við skynj- um ekki andann, tilveruna eins og hún er, eins skynjum við ekki persónu vora eins og hún er. Hún er pýra- mídi, neðsta lagið er mold, efsta lag- ið er guð sjálfur, hún nær alla leið inn í himininn, en við sjáum aðeins neðsta lagið. Fyrst þegar við sjáum alla persónu vora erum við fullkomin. Þá höfum við ekki 5 heldur 5X5X5 skynfæri. Þá sjáum við ósýnilega heiminn, þá skynjum við tilveruna eins og hún er, andann og það efni, sem honum er ofar. Þá erum við orðnir hæfileika- menn og kunnum hin réttu tök á hlutunum. Þá skiljum við sjálfa oss og þekkjum, einnig alla aðra menn. Þá getum við lagað allar misfellur, bætt alt böl. Aðeins réttur skilningur á al- tilverunni og full þekking á henni gjörir þennan heim eins og hann á að vera. Alt framfárabrölt án fullkomn- unar mannsins er fánýtt. Hann verð- ur að læra að þekkja sig allan, meira en þann hlutann, sem hann sér. Hann er auk efnis, orka, Ijósvaki, andi, ósæi og guð. Trúarþörf mannsins er þörf hans að þekkja sjálfan sig. Sig. Gíslason. Af Austurlandi. Brúin á Eskifjarðará. Hinn l.þ. m. var haldinn opinber hreppsnefndarfundur á Eskifirði, til þess að taka endanlega ákvörðun um byggingu brúarinnar. Var samþykt með 4 atkv. gegn 3 að koma brúnni upp í sumar og réði atkv. oddvita úrslitunum. Þeir sem mótat- kvæði greiddu voru: Torger Klausen, Auðbergur Benediktsson og Siguröur Jóhannsson.

x

Röðull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Röðull
https://timarit.is/publication/1348

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.