Skagablaðið - 10.08.1984, Blaðsíða 2
HRÆR I NGUR
Spurning
dagsins
— Hefurðu trú á að
Akurnesingar vinni ís-
landsmeistaratitilinn
og bikarkeppnina ann-
að árið í röð? (spurt í
Sementsverksmiðj-
unni).
Ásmundur Jónsson, lager-
stjóri: — Ég held að það sé
engin spurning um að Akra-
nes vinnur aftur tvöfalt.
Ólafur Guðbrandsson, lager-
maður: — Já, ég er alveg
sannfærður um að svo verður.
Frímann Jónsson, vélvirkja-
nemi: — Ég er sannfærður
um það. Er þetta ekki einfalt
mál?
Böðvar Björnsson, vélvirki:
— Mér sýnist allt benda til
þess að svo fari. íslandsmótið
er nú þegar unnið.
Þessi mynd minnir okkur á að þráttfyrir drungann ogsúldina hafa
af og til komið sólardagar í sumar.
Úr bæjarlífinu
Knattspyrnuáhugi hér á Akranesi er víst vafalítið einstæður.
Ekki aðeins eiga Skagamenn á að skipa besta knattspyrnuliði
landsins, heldur eru áhangendur liðsins þeir bestu á íslandi og
jafnvel þó víðar væri leitað. Á meðal þeirra má nefna dyggan hóp
manna, sem gengur undir nafninu „Vanir menn“ eða „Strákarnir
í ræsinu.“ Hið síðarnefnda mun þó vera nafngift gárunganna.
Starfsmenn Sementsvcrksmiðju ríkisins lögðu það á sig að
mæta til vinnu kl. 7 á laugardagsmorgni fyrir tæpum hálfum
mánuði til þess að vinnu væri lokið fyrir fyrirhugaðan leik
Akraness og Víkings. Ekkert varð úr lciknum þrátt fyrir allt
tilstandið, veðurguðirnir sáu fyrir því. Þótt máltækið: Morgun-
stund gefur gull í mund sé enn í fullu gildi átti það ekki við þcnnan
daginn.
Krossgátan
i 2 3 £ WKL 6
7
& 'ÆM Vm
éim ? /O
// /2. J|gp lHlt
/3 jj /y /5
/é mm
Skýringar við krossgátu
Lárétt: l)Fnykur, 7)Sjóði, 8)Lélegur til vinnu, 9)
Frumkvöðull í líkamsrækt, 1 l)Skriffæri, 13)Kunnur
skúrkur úr sjónvarpi, 14)Kona, 16)Sárri.
Lóðrétt: 2)Keyra, 3)Kvenselurinn, 4)Unaður (fleir-
tala), 5)Nískupúki, 6)Pvag, 8)Slafra, 10)Handlegg,
12)Dvelja, 15)Einkennisstafir.
Skákþraut
Þessa staða kom upp í skák
Svíanna Aksel Ornstein og
Thomas Ernst fyrir nokkru.
Ornstein, sem hafði svart,
átti lcik.
39. -Re2+! 40. Dxe2-
Dxcl+ og hvítur gafst upp.
Verðlauna
getraun
1) Hvaða ár varð Akrancs
fyrst Islandsmeistari í knatt-
spyrnu?
2) Hvenær fórst franska skip-
ið „Pourquoi pas“?
3) Hvaða ár var fyrst farið á
bíl yfir Holtavörðuheiði?
4) Hvaða ár var Akranes-
kirkja reist?
5) Hversu margir voru íbúar
á Akranesi fyrir 120 árum?
Síðari hluti þessarar fyrstu
verðlaunagetraunar Skaga-
blaðsins birtist í næsta blaði.
Verðlaun fyrir rétt svör eru
1.000 króna vöruúttekt.
Varðandi 5. spurninguna er
rétt að taka fram, að frávik
má vera allt að 10 manns.
Dagbókin
Sjúkrahúsið: Heimsóknar-
tími frá kl. 15.30 - 16.00 og
svo aftur frá kl. 19.00 - 19.30.
Síminn á sjúkrahúsinu er
2311. Símsvari fyrir bæjar-
vakt er 2358 eftir lokun skipti-
borðs.
Apótekiö: Afgreiðslu-
tími alla virka daga frá kl.
9-18.30, laugardaga frá kl. 10
- 13 og sunnudaga frá kl. 13 -
14.
Slökkviliö: Síminn á slökkvi-
stöðinni er 2222.
Lögregla: Símar 1166, 2266,
og 1977.
Sjúkrabíll: Símar 1166, 2266,
og 1977.
Byggöasafnið: Sýningartími
er frá kl. 11 -12 og 14 -17 alla
virka daga frá maí og fram í
ágúst. Frá september og fram
í apríl er safnið opið gestum
frá kl. 14 - 16 virka daga.
Sundlaugin: Opið er virka
daga frá kl. 7- 9.45,12-18.30
og 20-21.15. Á laugardögum
frá 9 - 11.45 og 13.15 - 15.45
og á sunnudögum frá 9 -
11.45.
Allir
vilja
leigja
Dallas
„Ég skal segja þér það alveg
eins og er, að þetta hefur gengið
miklu betur en ég bjóst við,“
sagði Gunnar Sigurðsson hjá Olís
er blm. Skagablaðsins leit inn til
hans í vikunni og innti hann eftir
því hvernig útleiga á Dallas-þátt-
unum gengi. „Auðvitað hefur
það spilað inn í að fólk hefur verið
mikið í sumarleyfum en mér
sýnist þetta allt vera að fara í
fullan gang.“ Því til staðfestingar
má nefna, að á meðan blm.
staldraði við komu eigi færri en
fjórir til þess að biðja um 5. og
nýjasta þáttinn.
Að sögn Gunnars virðist það
ekkert skipta máli þótt hver spóla
kosti 100 kronur í leigu hjá Olís,
en ekki enma 70-90 krónur á
flestum myndbandaleigum. „Það
er hreint ekki óalgengt að menn
láti fylla á hj á sér og velj i sér spólu
á meðan,“ sagði Gunnar og bætti
við: „Og a.m.k. eina toppgrind
hef ég selt út á þessar spólur.“
Hann útskýrði það ekki nánar.
Myndbandaleigur hér í bænum
hafa falast eftir því hjá Gunnari
að fá Dallas-þættina til útleigu.
Sótti hann um leyfi til höfuð-
stöðva Olís í Reykjavík en þeirri
beiðni var hafnað. Fólk verður
því áfram að leigja spólurnar hjá
Olís enda á félagið einkarétt á
þeim.
Sjálfur sagðist Gunnar hafa
fengið sér myndbandstæki fyrir
tveimur vikum og vígði tækið að
sjálfsögðu með einum Dallas-
þáttanna. Engum þarf að koma á
óvart, að sá þáttur bar nafnið
„Árshátíð olíukónganna.“
Freyr var
sá heppni
Freyr Reynisson heitir sá
heppni í línuhappdrætti Knatt-
spyrnuráðs Akraness. Þegar
dregið var fyrir nokkru kom nafn
hans upp. Hann fær 3 daga ferð
með Akranesliðinu á síðari leik
þess gegn belgísku meisturunum
Beveren í verðlaun.
Happdrætti þessu var hleypt af
stokkunum til þess að fjármagna
ferð Skagamanna á leikinn í Belg-
íu að hluta. Gekk það ágætlega
og sérstaklega reyndust brottflutt-
ir Skagamenn þungir á metunum.
Knattspyrnuráð er þegar komið
með annað happdrætti í gang,
skipahappdrætti. Verður dregið í
því von bráðar.
Smáauglýsing
20 fermetra bílskur til
leigu nú þegar við
Höfðabraut. Uppl. í
síma 2970 eftir kl. 20
á kvöldin (Sveinbjörn).
2