Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 21
Yfirlit yfir iagasögu Islands.
21
kalla hann þann, »er bókina setti« '). En hitt er um of,
þegar sagt er, að hann hafi verið sá, «er löghók sendi til
íslands, þá er kölluð er Jónsbók«, því að það var ekki
fyr en eptir dauða Magnúsar (hann dó 9. maí 1280), að
Eiríkur sonur hans sendi þá Jón Einarsson lögmann og
Loðinn Lepp með lögbók þessa til íslands með það fyrir
augum, að fá hana lögtekna1 2). Um liaustið og um vet-
urinn fengu menn að kynna sjer lögbókina, en það kom
þegar í ljós, að mönnttm þótti mjög ísjárvert að samþykkja
liana3). Bændum þóttu ýms fyrirmæli í lögbókinni ríða í
bága við hag almennings og þaríir, og hegningarákvæðin
þóttu þeim of ströng. En Arna biskupi og klerkunum
þótti hins vegar sjer og kirkjunni að ýmsu leyti of nærri
höggvið. þegar á alþingi kom, báru því bæði biskup og
bændur fram margar og miklar mótbárur gegn lög-
bókarfrumvarpinu; lýstuþeir yfir því, að þeir myndu ekki
samþykkja það, nema því væri breytt í ýmsum atriðum.
Loðinn Leppur brást í fyrstu reiður við þessa mótspyrnu
og krafðist, að menn þegar í stað hlýddu boði konungs
og játuðu. allri bókinni; síðan gætu menn beðið, að fá
lögbókinni breytt í þeim atriðum, sem þeim virtist nauð-
syn bera til að fá umbætur á. Bændur neituðu þessu og
kváðust eigi myndu tapa frelsi landsins. Árni biskup var
engu leiðitamari; vitnaði hann bæði í brjef erkibiskups og
í skipanir þær,. sem gjörðar höfðu verið á kirkjuþingi í
Björgvin árið áður. J>egar Loðinn Leppur sá, að hann
gat engu áorkað með ofsa, þá gerði liann sig blíðari og
1) Flbk. I. bls. á8.
2) Flbk. I. bls.,28.
3) Arna bps. s. kap. 25. bls. 715. Annálar. a. 1280.