Fram

Tölublað

Fram - 11.09.1917, Blaðsíða 2

Fram - 11.09.1917, Blaðsíða 2
156 .1 FRAM Nr 43 Iega yfirvegun ráða yfir hleypidóm- um og heimskulegum vana. Engin dirfist að mótmæla því að ofdrykkja sé öllum skaðleg, og með- an ofdrykkja á sér stað meðal þjóð- arinnar, er henni full þörf á að hömlur séu lagðar við því að þessi vogestur þrífist og haldist við. Bannlögin eru ekkert annað en há- stig bindindisstarfseminnar — al- þjóðarbindindi. Og mér finst ekki hægt að saka forgöngumenn þeirra fyrir neitt annað en það, að lögin hafi komið alt of seint. Rjóðinni var þörf á bannlögunum löngu fyr. Hefði hún átt því láni að fagna, að vera búin að starfa svo sem tvær aldir undir áhrifum áfengisbannlag- annna, myndi margt líta öðru vísi út en nú er. En þrátt fyrir það að lögin komu of seint, meigum við vera stolt af því, að hafa orðið á undan nágrönnum okkar. Peir koma á eftir áður en mörg ár líða. Rað er engin þjóð svo vel á vegi stödd að alt það, sem stefnir að því að bæta hag hennar, sé henni ekki kær- komið, og það er einber fásinna að snúast öndverður móti nýungum þó þær brjóti bóg við gamla venju. Rekur nokk- ur nauðsyn til bannlaga brota. Allir kannast við málsháttinn: »Nauðsyn brítur lög.« Pað er að skilja á þann veg, að barátta einstaklings og þjóðar fyrir tilverurétti sínum geti eigi lot- ið þeim lögum sem leggja hömlur á náttúrlegan þroska og velsæld. Og þó munu allir gætnir menn sam- mála um það, að öllum lögum beri að hlýða, á meðan þau gilda. Séu þau skaðleg, eigi að fá þeim breytt í betra horf. Öll lagabrot séu órett. En nú skulum við athuga, hvort bannlögin standa velmeigun og þroska þjóðarinnar að nokkru leyti fyrir þrifum. Læknisvísindin segja nautn áfengis skaðlega. Hagfræðing- ar og siðameistarar eru á sömu skoðun. Mikilmenni stórþjóðanna segja áfengisnautnina baka þjóðun- um meira böl, en kólera, berklaveiki og taugaveiki til samans. F*að hefir enginn reynt að sýna né sanna, að bindindismaðurinn sé að nokkru leyti vansælli en áfengisneytandinn, og það er heldur ekki hægt Eitt af því er andbanningar halda hæst á lofti er það að bannlögin skerði persónufrelsi einstaklingsins. Sjálfsagt mun flestum finnast orðið lítið úr persónufrelsi ofdrykkjumann- sins, sem ekki er lengur sinn eigin herra. Pessvegna hljóta andb. að eiga þar við »hófdrykkjumennina« svokölluðu; mennina sem kunna að fara með vínið. Peir eiga að vera frjálsir gjörða sinna. En þetta eraf- káralegur misskilningur. Hófdrykk- jumennirnir eru nú flestir — strangt á litið — ofdrykkjumenn, þó þeir séu ekki kallaðir það í daglegu tali. Og það eru einmitt »hófdrykkju- mennirnir« sem hafa mest spillandi áhrif á meðbræður sína. Vínið er skaðræðisgripur í höndum þeirra. Við skulum taka tvö dæmi. Margir kannast við söguna, sem hefir gerst og gerist enn þann dag í dag. Fjárglæframaðurinn, sem sjálf- ur er í peningaþröng, þarf að fá ábyrgð valinkunns manns fyrir stórri fjársummu í bankanum. Enginn gæt- inn maður kastar þeirri byrgði á sig algáður. En leiðin er þekt. Aðferð- in margreynd. Brallarinn býður þeim «sterka» heim tjl sín, eða á eitthvert «þekt» kaffihús. Vínið »hressir og fjörgar,« vináttuböndin styrkjast um stund. Veitandinn notar tækifærið og «sá sterki skrifar upp á.» Rað hefði hann aldrei gert, ef hann hefði ver- ið allsgáður. Og langoftast eru eftirköstin þau, að ábyrgðarm. verð- ur að «borga brúsann.» Rjóðfélagið á að takavínið af þessum mönnum. Pá mun ekki öllum ókunnugt um það, hvílíkt þarfameðal áfengið er í höndum misindismannanna, sem skaðlegastir eru fyrir æsku og sak- leysi ungu stúlknanna. Skyldi vera stór synd að taka áfengið af þeim. Nei, syndabaggi «hófdrykkkjumann- anna» er alt of þungur til að þjóð- in álíti sig skylda til að bera hann með þeim. Reir sem háværast láta um skerðing persónufrelsis einstakl- ingsins, eru oftast allra manna fljót- astir til að selja samfæringu sína og hugsjónafrelsi fyrir stundarhagn- að. Vegna slíkra manna á þjóðin ekki að líða bannlagabrot, eða kasta bannlögunum frá sér. Það finst engin knýjandi nauðsyn ti/ bannlagabrota. En hvers- vegna eru þá bannlögin brotin ? Orsakirnar eru margar. Afengis- þosti ræður at- höfnum sumra lögbrjótanna, en þó ekki flestra. Fjárgræðgi smúlar- anna leiðir þá afvega. Sumirbrjóta lögin af »fikti,« ef svo mætti að orði komast, aðrir til að fara í kring- um og storka lögreglunni og s.frv. En aðalorsök brotanna er spiltur hugsunarháttur æðri stétta þjóðar- innar, sem kallaðar eru og þar af leiðandi ánýtjungsháttur og deyfð lögreglustjóranna. Undantekningar eru þó hér eins og alstaðar annar- staðar. Mentaskólinn (latínuskólinn) þessi aðal mentalind þjóðarinnar um lang- an aldur, hefir árlega sent út frá sér menn sem hafa lært að drekka þar, jafnframt þyí sem þeir teyguðu af bikar mentagyðjunnar. Háskólinn í Kaupmannahöfn hefir svo tekið við þeim og skilað þeim frá sér spilt- um ofdrykkjumönnum, hafi þeir ann- ars komist til háskólans. Og það hafa ekki ætíð verið þeir óefnileg- ustu, eða tossarnir, sem hafa farið þessa leiðina. Þvert á móti. Pegar þeir svo komu út á meðal þjóðar- innar, settust í embætti, hafa þeir gengið á undan öðrum og dregið aðra inn á óheillabrautina. Hér þarf eigi að tilfæradæmi og verður ekki heldur gjört. Pau þættu máske Erlendar símfréttir. Khöfn 3. sept. Nýjar kosningar eiga að fara fram í Þýskalandi og eiga allir hermennirnir að kjósa. Rússar hafa yfirgefið Riga og hörfa undan orustu- laust. Khöfn. 8. sept. Rússar halda stöðugt undan. Talið ólíklegt að Hindenburg muni hættaáað stefna her sínum til Petrograð. Fjöldi af tundurduflum hefir rekið við strendur Noregs, og eru skipaferðir þar stöðvaðar fyrst um sinn. Bandaríkin hafa bannað útflutning á gulli. helsttil nærgöngul. Margir hafa af þessu fengið þá ramvitlausu skoðun að það væri »fínt« að drekka. Efna- mennirnir, nánustu vinir^og jafningj- ar embættismannanna væru sjálf- sagðir að vera með. Kaupmanna- stéttin hafði líka, til skamms tíma, hagnað af dry!<kjuskap þjóðarinnar og ýtti vel undir. Pó einn og einn úr hópnum lægi dauður á hjarninu, félli í ána, sofnaði undir hellisskút- anum eða króknaði undir húsvegg- num, var ekki verið að fástumþað. »Sjá þú sjálfur fyrir því,« sögðu vitru mennirnir í austurlöndum end- ur fyrir löngu. Regar svo meiri hluti þjóðarinnar segir við þessa leiðtoga sína og fyrirmyndir: Hingað og ekki lengra, gægist úlfurinn út undan sauðar- gærunni. Peir, meiri háttar mennirn- ir, verða að sýna það, að þeirhafi ekki verið á skakkri braut. En bann- lögin eru samin, samþykt, staðfest og komast í framkvæmd. Og hvað skeður? Rað þekkja allir, sem hafa opin augu fyrir því sem fram fer í kringum þá. Pá er lögreglan í landinu. Vand- ræði að þurfa að minnast á þá stétt í sambandi við þetta mál, eins og fáni hennar liggur þar lágt. Hún er líka alin upp mitt í spillingunni; hefir nærst af sama spenanum og hinir höfðingjarnir. Þessvegna ekki mikils að vænta úr þeirri átt, enda lítið um stórvirki í herbúðunum þeim. Pað þykir ekki »passandi« að gjöra »höfðingjana« opinbera að lögbrot- um eða vítaverðu framferði. Steinn- inn er til fyrir »ræflana,« síður við- eigandi staður fyrir kjóla og lafa- frakka. Svo er alt látið drasla. F*ó einstaka maður gjörist svo djarfur að klaga þá brotlegu, er hængurin hjá, að draga málið á langinn þang- að til alt er horfið í gleymskunnar dá. Embættis- og efnamennirnir virð- ast vera frumkvöðlar bannlagabrot- anna og lögreglan í landinu fram- kvæmdalaus. Hvað á nú að gjöra? Afnema Eftir skeytum til Rvík. bannlögin, segja andbanningar. Herða á bannlögunum segja bannmenn. Af- nám bannlaganna kemur ekki til mála, og ekki er einhlýtt að herða á þeim — á pappírnum. F*að hlýtur að standa yfir nokkurra ára barátta ennþá. Öðru meigin stendur fjöld- inn með kröfu um jafnrétti og þjóð- arhagsæld. Hinu meigin dálítill hóp- ur af mönnum blindum af vana, sjálfsáliti, þrjósku eða lítilsvirðingu fyrir meðbræðrunum. Svo koma nágrannaþjóðirnar hver af annari og gera áfengið landrækt hjá sér og deilan um bannmálið hverfur úr sögunni. Vilji þjóðin ekki bíða eftir þessu, verður að koma hér á toll- gæslu og reka suma lögreglustjór- ana frá embætti. Skjót lagfæring á þessu máli hlýtur að hafa þetta hvortveggja í för með sér. Og máske væri réttast að snúa sér að því þegar í stað. 2. september 1917. Halldór Friðjónsson — frá Sandi. — Spakmæli. Hugsaðu um það, að þegar þú fæddist voru allir glaðir, en þú grést Lifðu svo, að allir gráti þegar síð- I asta stund þín kemur, og að þú sért sá eini sem ekki hefir ástæðu til að fella tár. F’á þarft þú ekki að óttast dauðan hvenær sem þann ber að. Ed. Labonlaye. Af þyrnum augnabliksins spretta rósir minninganna. Rasmus Nielsen. Viljir þú snerta netlu, án þess að brenna þig, þá taktu fast um hana. F*egar eitthvað pínir þig, þá farðu eins að, þá mun sársaukinn verða

x

Fram

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fram
https://timarit.is/publication/34

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.