Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 4

Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 4
4 0pið 6ref fil íslcnpkra ftennara. Heiðruðu stéttarbrœður! Um leið og ég nú sendi 1. tölubl. „Kennarablaðsins" frá mér, finn ég sórstaka ástæðu til að ávarpa yður nokkrum orðum. Blaðið verður nú sent yður með þeirri ósk og í þeirri von, að þór gerið það sem í yðar valdi stendur til áð greiða fyrir því. Þetta getið þór gert á tvennan hátt. Fyrst og fremst getið þér gert það með þvi að gerast sjálflr áskrifendur þess og fá aðra til hins sama. Og í öðru lagi getið þér það með því að senda því ritgerðir um einhver þau atriði, er að kenslumálum og uppeldismálum lúta. Að því er fyrra atriðið snertir, er það kunnugra en frá þurfi að segja, að efnahagur almennings er á þessum tímum óvenjulega þröngur, og þetta er ef til vill helzta orsökin til þess, að bókakaup munu nú á síðari árum hafa verið venju fremur lítil víðsvegar um landið. fegar tekið er tillit til þessa, hlýtur það að vera hverjum manni auðsætt, að það er ekki gróðavon í peningalegu tilliti, sem vakir fyrir mér, þegar ég ræðst í að gefa út þetta blað. Án fjárframlags þess, sem Kennarafélagið hefir ákveðið að veita til fyrirtækisins, hefði ekki verið hugsanlegt að byrja. á því. Og þótt styrkur þessi sé svo ríflegur, sem framast er unt að vonast eftir af jafn fámennu félagi, þá verður hann þó tæplega nægiiegur til að borga helminginn af kostnaði þeim, sem fyrirtækið beinlínis hefir í för með sér, þótt alt ómak við útgáfu blaðsins só að engu metið. Auk þess má búast við, að félagið verði eigi fært um að veita svo ríflegan styrk til lengdar. Þegar ég nú samt sem áður hefi von um, að blaðið muni geta borið sig, — því hærri vonir geri ég mér ekki að öllu óreyndu —, þá skal ég játa það, að þessi von er að mjög miklu leyti bygð á yður, kennurunum, á áhuga yðar og vilja til að hlynna að því. Að vísu er hún bygð á öllum þeira, sem mentun og sönnum framförum unna, öllum þeim, sem ant er um að fræða og þroska hina vaxandi kynslóð og tryggja þann grund-

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.