Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 12

Kennarablaðið - 01.10.1899, Blaðsíða 12
12 beiningar- og eftirlitsferðir ætti hann svo að fara fleiri eða færri um kenslusvæðið á meðan á kenslutímanum stendur. Tíminn, sem gengur til ferða þessara, ætti að vera reiknaður með öðrum kenslutímum hans, þegar um styrkinn úr lands- sjóði er að ræða. Vilja nú ekki umferðakennararnir sjálflr taka hessi tvö atriði til íhugunar og umræðu í hinu nýstofn- aða kennarablaði ? Það má gera ráð fyrir að hvorttveggja þetta þekkist ein- hversstaðar á landinu og að það hafl verið reynt; en þá er fróðlegt að fá fregnir um, hvernig það heflr gefist, og það væri æskilegt að enn fleiri umferðakennarar ættu kost á og vildu reyna þetta húsvitjunarferðalag, en hingað til. Það þarf varia að kvíða því, að prestarnir telji með því gripið fram fyrir hendurnar á sér; þeir munu telja sig hafa ærið nóg að starfa á húsvitjunarferðum sínum fyrir því. A.—P. ^risfindómsfrœðalan. Fyrirlestub, fluttur á aðalpundi hins íslenzka Kennarapélaos 3. júlí 1899. Háttvirtu tilheyrendur! Málefnið, sem hér er um að ræða, er eitt af hinum allra- vandasömustu uppeldis- og kenslumálum, og hafa því skoðanir manna á því jafnan verið mjög skiftar og eru það eigi sízt á vorum dögum. Ágreiningsatriðin eru aðailega tvö. Hið fyrra er þetta: Hvar eiga hörnin að njóta irúarbragðafrœðslunnar? Þetta er eiginlega aðal-ágreiningsatriðið; en þar eð ég nú eink- um ætla að tala um trúarbragðafræðsluna hér á landi, get ég verið fáorður um þetta atriði. Víða í öðrum löndum, þar sem ýmsum fjarskyldum trú- arbragðaflokkum ægir saman, hafa menn hlotið að afnema trúarbragðafræðsluna í hinum almennu barnaskólum, en veita hana á öðrum sérstökum fræðslustofnunum, að svo miklu leyti sena heirailin og viðkomandi prestar eigi annast um hana,

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.