Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 12

Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 12
. 28 JJlþýðumenfun a íforþurlöndum. Til þess að geta fengið nokkurn veginn ljósa hugmynd um mentunarástand vort, og til þess að geta séð, hvort hér á landi er gert tiltöiulega mikið eða lítið til að bæta það, höfum vér ekkert betra ráð en að bera oss saman við nágrannaþjóðir vorar. Vér viijum því í stuttu máli skýra frá, hvernig hinum lægri skólamálum þeirra er fyrir komið og síðan bera ástand vort og viðleitni í þeim málum saman við ástand þeirra. 1. Danmörk. Arið 1788 linti ánauð þeirri, ei um margar aldir hafði hvílt á dönskum bændalýð, og eftir það var fyrst farið að hugsa nokkuð af alvöru um alþýðumentun í Danmörku. Ýms- ir hinna vitrari og betri manna sáu, að það mundi til lítils gagns að auka frelsi alþýðunnar, ef ekki væri jafnframt hugs- að fyrir því að bæta mentun hennar. Auðvitað skorti alþýð- una sjálfa þekkingu, hug og dug til að berjast fyrir þessu mál- efni sínu; það voru stjórnin og aðallinn, sem komu til leiðar því, er gert var. Stjórnin skipaði nefnd manna til að íhuga skólamálin, og komst nefndin brátt að þeirri niðurstöðu, að það, sem fyrst þyrfti að bæta úr, væri kennaraskorturinn. Pá var stofnaður hinn fyrsti kennaraskóli Dana (1791); sá skóli stendur nú í Jonstrup á Sjálandi. Um og eftir aldamótin var tekið að koma betra og fastara skipulagi á skólagang barna og kenslu í skólunum, og árið 1814 voru loks útgefin skólalög þau, sem Danir hafa unað við að mestu leyti óbreytt alt fram að þessum tíma. Þóttu lög þessi lengi svo fullnægjandi og skólamálum öllum svo vel fyrir komið í samanburði við það, sem þá átti sér stað í nágrannalöndunum, að menn eigi fundu ástæðu til að breyta til í neinu verulegu, En nú á síðari ár- um hafa menn æ betur og betur sannfærst um, að iögin voru að mörgu leyti orðin á eftir tímanum, einkum að því er kjör kennaranna snerti; því að margir danskir kennarar hafa átt og eiga enn við næsta þröngan kost að búa. Árið 1895 var svo flutt í ríkisþinginu frumvarp til nýrra skólalaga, Mætti

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.