Kennarablaðið - 01.07.1900, Blaðsíða 1

Kennarablaðið - 01.07.1900, Blaðsíða 1
^ARABí.4ö/ð MÁNABARKIT UM UPPELBI OG TtEXSLlJMÁL 1. ÁRG. JULÍ 1900. 10. BLAÐ. Tfppruni lÝÖHdsfjólanna dönsl?u. Fyrirlestur, fluttur á 7. norræna kennarafundi í Stokkhólmi 1895 af Ludviq Schröder, forstöðumanni lýðháskólans í Askov. Háttvirta samkoma! í fyrsta sinn er ég ferðaðist um héraðið Smáland í Sví- þjóð, heyrði ég þennan málshátt: „Steinninn er góður sem granni." Héraðið er grýtt mjög, og verða menn að ryðja grjótinu burt, svo að hægt sé að rækta jörðina; en svo hugga þeir sig með því, að það sé gott að hafa þetta grjót að glíma við, jarðvegurinn verði þess frjósamari, þegar búið sé að ryðja hann. Þetta datt mór í hug í sambandi við umræðuefni það, sem mér veitist sá heiður að hefja hér máls á í dag. Þegar spurt er um, hvenær hugmyndin, sem liggur til grundvallar fyrir lýðháskólunum dönsku, hafi vaknað, þá verð- um vér að benda á árið 1814, hið fyrsta stóra ólánsár fyrir Danmörku á þessari öld, þegar sjö-ára-stríðinu við England var lokið, og Kílarfriðurinn, sem aðskildi Noreg og Danmörku, sýndi öllum þeim Dönum, er hlýjan hug báru til ættjarðar sinnar, voðadjúp óhamingjunnar. í’á var það, að presturinn, skáldið og sagnfræðingurinn danski, Nicolai Frederik Severin Grundtvig (sem þá var um þrítugt) farm með sjálfum sér, að hann unni ættjörð sínni, en það hafði hann, eftir sjálfs hans sögusögn, aldrei fundið fyr. Hann varð hriflnn af neyð ættjarðarinnar, ástin á henni var að vakna hjá honum, og nú vildi hann velja sér verkefni til að leysa af hendi í þarfir hennar. Með þessum

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.