Kennarablaðið - 01.09.1900, Blaðsíða 8

Kennarablaðið - 01.09.1900, Blaðsíða 8
184 það, er vér höfuin tekið fram um þroskaleysið og áhugaleysið hér á landi. En hór rekur að hinu sama og fyr. Þannig löguð hreifing mundi naumast geta náð neinum verulegum þroska eða komið neinu verulegu í framkvæmd, nema nokkurt fé væri fyrir hendi. Yæru lýðháskólar settir hér á stofn, þyrftu þeir að fá svo mikinn styrk af opinberu fé, að kenslan yrði nemendunum að mestu eða öllu leyti kostnaðarlaus. Annars mundi aðsóknin verða alt of lítil. Yér skulum eigi fara fleiri orðum um þessa hugmynd, en leggja hana fram til íhugunar fyrir þá, er áhuga hafa á því að bæta mentunarástand þjóðar vorrar, og vér vonum, að þeim fari ait af fjölgandi, sem sjá og viðurkenna, að eitthvað þarf til bragðs að taka í bví máli og það heldur fyr-en seinna. Jiréííir fró afcóluntim. 5 tímakennarar við barnaskólann í Eeykjavík sóttu um fasta stöðu við skólann í vor og fóru fram á 5—600 kr. laun. Bæjarstjórnin sá sér ekki fært, að samþykkja allar umsóknirn- ar og tók svo það ráð að fella þær allar. En af umræðum þeim, sem um málið urðu, mátti skilja það, að ýmsir af bæj- arstjórnarmönnum álitu fulia þörf á að bæta eitthvað kjör kenn- aranna við skólann svo fljótt sem tök væru á. Viðbótar-beklcur. Bæjarstjórnin hefir faliist, á að hæta ein- um bekk (7. bekknum) ofa-n við barnaskólann í Reykjavík í haust, ef að 20 börn fást í hann með 20 króna borgun hvert. Ætl- ast er til, að kendar verði í bekk þessum allar hinar sömii námsgreinar og í 6. bekk og enska að auki. Það er enn rneð öllu óvíst, hvort þetta þarflega fyrirtæki verður nokkuð annað en ráðagerð í þetta sinn; getur það stra-ndað á því, að of fá borgunarbörn gefi sig fram; en bæjarstjórnin viil ekki ráöast í það, nema vissa sé fyrir því að það borgi sig að mestu eða öllu leyti. -------<x>Oo^------ Munið eftir að gjalddagi „Kennarablaðsins11 var 30. júní!

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.