Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						—Jie/garpÓStUrínrL- Föstudagur 6. apríl 1979

Styrjaldarátök á 29

stöðum í veröldinni

I öllum heimshornum geisa styrjaldir. Það sem hér

fer á eftir sýnir að í augnablikinu eiga sér stað 29 meiri-

eða minniháttar átök.

Sjálfsagt er talan ennþá hærri. i mörgum löndum

Rómönsku Ameríku er skilulögð andspyrna gegn harð-

stjórn hersins. I Afríku eru átök milli ættfiokka. En

þessar deilur ná sjaldan til vestrænna f jölmiðla.

Astandiðer verst iþriðja heminum/ þar sem sjálfstæð-

ið hefur skapað vandamál, sem reynt er að leysa með

vopnavaldi.

Það eru ekki nema f rásagnir um stærstu átökin sem ná

til lesenda iönríkjanna, en í hinum smærri eru líka dag-

legar orrustur með særðum og látnum. Og alltaf kem-

ur það harðast niður á óbreyttum borgurum, konum og

börnum.                  -

1: Guatemala

„Andspyrnuher hinna fátæku"

(El Ejercito Guerillo de los

pobres) heldur uppi stöðugri

baráttu gegn hinni afturhalds-

sömu og spilltu herforingiastjórn.

Skæruliöar eru um 1000 talsins.

Þeir hafa mikiö haft sig i frammi

en litt orðiö ágengt.

2: Nicaragua

Baráttan gegn varðstjóranum

og einræðisherranum Anastasia

Somosa hefur aukist mikið sfðast-

liöið hálft ár. Eftir ósigrana i

borgum Nicaragua i fyrrahust,

héldu „Sandinistar" upp til fjalla

og yfir landamærin til Costa Rica.

Þaðan herja þeir á þjóðvaróliða

Somosa.

3: Columbia

Columbia kallar sig lýðræðis-

riki, en þar viðgengst valdniðsla,

spilling og pólitisk morð. Þar eru

starfandi tvö skæruliðasamtök.

FAR 2 (Fuerzas Armadas

Revolucionarias de Columbia) og

M 19 (19. april hreyfingin). Það

var 19. april 1970, að rikisstjórnin

lýsti þvi yfir að hún myndi ekki

sjálfviljug leggja niður völdin. M

19 hefur sætt stöðugum ofsóknum

undanfarin ár, en fregnir herma

að baráttan haldi áfram.

4: Venezuela

Ennþá halda um það bil 200

skæruliðar sig i fjöllunum. Þeir

heyra til samtakanna „Bandera

Riga", Rauði Fáninn. Þeir herja

á afskekkta bæi og rútur á fjall-

vegum, -en vigstaða þeirra fer

versnandi.

5: Norður-irland

Eftir nokkurt hik var N-lrland

tekið með. Þar rikir ekki beint

striðsástand, en stöðugur ótti og

sprengjuherferðir gera það að

verkum að ekki er hægt að tala

um frið. IRA heldur áfram

baráttu sinni fyrir sjálfstæði.

6: Spánn

ETA berst fyrir sjálfstæði

Baskahéraðanna. Samtökin hafa

lýst yfir strfði á hendur stjórninni

i Madrid. Fram að þessu hefur

baráttan verið háð með aðferðum

skæruliða, þ.e. morðum á

embættismönnuin og lögreglu-

mönnum.

7: Vestur-Sahara

Sjálfstæðishreyfingin Polisario,

sem nýtur stuðnings Alsir, hóf

baráttu sina þegar spænsku V-

Sahara var skipt á milli

Máretaniu og Marokkó.

Uppreisnarmönnum varð nokkuð

ágengt, en mættu mikilli mót-

spyrnu frá Marokkó. Eftir her-

foringjabyltingu i Máretaniu I

fyrra sumar, minnkaði til muna

vilji þeirra til að berjast við

Polisario. Reynt hefur verið að

hefja friðarviðræður, en með

litlum árangri hingað til. Eyði-

merkurstrlðið heldur áfram.

8: Tchad

Sjálfstæðishreyfingin Frolinat

hefur i þrettán ár barist við her

stjórnarinnar i höfuðborginni

N'Djamena. Frolinat nýtur

stuðnings múhameðstrúarmanna

sem búa I norðurhéruðum lands-

ins. Einn af leiðtogum Frolinat

var gerður að forsætisráðherra I

þeirri von að binda endi á strlöið.

Fyrir nokkru hóf hann baráttu við

forsetann. Nú litur út fyrir að

Malloum forseta hafi tekist að

bæla niður uppreisnina, en Frol-

inat heldur baráttunni áfram.

9: Eritrea

tbtiar Eritreu berjast fyrir

sjálfstæði sinu innan Eþiópiu.

Sjálfstæðishreyfingunum gekk

vel, þar til Sovétrikin og Kúba

veittu stjórnarhernum stuðning.

sinn. Sjálfstæðishreyfingarnar

ELF og EPLF berjast við-

stjórnarherinn I fjalla-

héruðunum. Loftárásir hafa.

leikið óbreytta borgara hart.

10: Ogaden, Eþíópía

Vopnahlé rlkir opingérlega i

Ogaden — landsvæði sem Sóm-

alia gerir kröfur til á hendur

Eþiópiu. Sómalia lagði land-

svæðið undir sig i fyrra vor, en

voru hraktir á brott af kúb-

önskum hermönnum. Forseti

Sómaliu hefur lýst þvi yfir, að

„frelsisöflinhaldiáfram baráttu I

Vestur-Sómaliu". Mikið mannfall

varð I liði Eþiópiumanna og

Kúbana.

11: Uganda

Idi Amin hefur fengið ráðningu

fyrir að hafa ráðist inn I Tanzaniu

i fyrra haust. Hermenn frá Tanz-

aniu, með stuðningi uppreisnar-

manna frá úganda, hafa byrjað

sókn að höfuðborginni Kampala.

ögnarstjórn Amins riðar til falls.

12: Zaire

1 Zaire er sjálfstæðishreyfing

sem berst fyrir sjálfstæði héraðs-

ins. I fyrra var gerð uppreisn,

sem brotin var á bak aftur af

frönskum og belgiskum her-

mönnum, eftir að skæruliðar

höfðu framið fjöldamorð á

óbreyttum borgurum. Skæruliðar

hörfuðu, en hafa haft sig I frammi

aftur að undanförnu.

13: Angola

Frelsishreyfigin MPLA situr að

völdum i Luanda. Kúbanskir her-

menn eru enn I Angola og tryggja

,stöðu   MPLA.    Umta-hreyfij

heldur uppi

landsinSj^Teö   stujflíingi   frá

Suður-Aírtku er UjÉPir til stöðugraf

vandræða  fyrir MPLA  og  Neío

rikisletðtoga.

14: Zimbabwe

SWAPO berst gegn ólöglegum

yíirráðum Suður-Afriku i

Namibiu. Eftir f.ð Suður-Afrika

kom i veg fyrir áætlanir S.Þ. um

sjálfstæði   Namibiu,   hafa   orðið

irekstr;

lli SWAPO og

hvitra hermanna S-Afriku. Kurt

Waldheim hefur lagt til að vopna-

hlé verði frá 15. mars.

16: Líbanon

Friöarsveitum S.Þ. miðar hægt

áleiðis i að halda uppi friði I

landamærahéruðum Llbanons við

Israel. Kristnir falangistar, með

stuðning frá lsrael, eru I stöðugu

striði við PLO. Það er barist á

hverjum degi.

17: Jemen

„Þjóðernissinnaða lýðræöis-

fylkingin", sem nýtur stuðning

Suður-Jemen á i baráttu við her

N-Jemen. Rikin ásaka hvort

annað um að eiga upptðk vá

vopnaviðskiptunum. Bal^r 'þ-

suðurhluta N-Jemen munu\yef8:\'

umsetnir af hersveitum frá S-

Jemen.

% fÍvp:

18: Oman

I Oman geisar „gleymt" stríð.

Uppreisnarmenn frá héraðinu

Dhofar hófu baráttu gegn soldán-

inum i Muscat árið 1965. Eftir að

hafa fengið stuðning frá iran, gat

Soldáninn lýst þvi yfir árið 1975,

að skæruhernaðinum væri hætt.

Þjóðarfylkingin    til    freisuna

Oman hörfaði upp til fj|}Jjlͧía við

landamæri    S-Jemen.    Þaðan

hafa þeir haldið uppi árásum ál

stjórnarherinn,   og   samtimisé

reynt að styrkja stöðu sina. Frajfl"

að þessu hefur soldáninn Qabós

notið stuðnings frá Iran.ym nú

hafa irönsku hersveitirnar ver^

dregnar til baka. Skæru^íftar haflj|

þvi  tækifæri  til  að  há   frekari

árangri.                  ~f

19: írak       /

Osk Kúrda um sjalfstæði hefur

hingað til ekki náð l'ram að

ganga. Þeir guidu mikið afhroð

fyrir þremur árum. Ekki alls

fyrir löngu, lýsti hinn nýi leiðtogi

Kúrda yfir þvi að baráttunni

skyldihaldið áfratn. Kúrdar lifa i

norðurhluta trak, iTyrklandi og i

Iran.

20: íran    wM

Heimkoma Khomemy til Iran

hefur ekki á neinn hátt komið á

friði i landinu. Hinir ýinstl skæru-

liðahópar hafa komist yfir vopn

§pg enginnviíðist hafa Irjórn á þf^

flpm ger^f I landinu.^norð-vestur'

Muta Uftdsins

pfetó^ Kúrda n

|eerl^átf>reis]

barist fyrir

trak og Iran

21: Afganistan

Nur Mohammed Tariki komst

til valda með'byltingu i Kabul i

aprll i fyrra. I fjallahéruðum

landsins hafa ýmsir herskáir ætt-

flokkar ekki viljað viðurkenna

hina marxlsku stjórn Tarikis. A

mörgum stöðum er hart barist.

22:  Burma

Burma er eitt af lokuðustu

löndum heims. Fáir vita hvaö þar

er að gerast. Landið er tekið með

I þessum lista vegna frásagna

flóttamanna, sem hafa komist til

Bangladesh. Þeir hafa sagt frá

manndrápum, ofsóknum og

átöku^^j^ð er erfitt fyrir

utanaðkomandi aðila að henda

reiöur á ástandinu, en minni-

hlutahopar hafu alla tið háð

vopnaða baráttu gegn stjórn

landsins.

23: Thailand

Skæruiiðar kommúnista ráða

yfir norðaustur landamæra-

héruðunum, að minnsta kosti að

nægurlagi. Skæruliðarnir eru vel

þjálfaðir og vopnum búnir. Dag-

lega berasí íréttii af íalli lög-

reglu- og herstöðva, en það er að

oilum likindum TP^HÍ^^^^

stjórnarherinn er engan ve

að lúta í lægra haldi.

24: Malaysía

Sama ska;ruliöahr

berst i Thailandi á einni'l

barattu við stjórnarhermenn i

Maysiu, m.a. írá stóðvum við

landamæri rikjanna. Löndin tvö

hafa komið sér samati um mikla

herferð gegn skæruiiðum undir

dulnefninu ALFA 792. l>aö má þvi

búa's^Sí^^auknum«p,ökum á

þessum slóðum.

25: Kampúchea

Uppreisnin, með stuðningi

Vfetnama gegn Rauðu khmerum

Pol POts hefur ekki Kengið eins

vel og^ppreisnarmenn gerðu sér

vonir tim. Ratáíti khmerarnir

hafa k%mið ser vel fyrir á

mörguiri: stöðum, Þeir hafa jafn

mikla r#ji£ltt og Vietnamar i

slikum hernaöi. Það er þvi ekki

auðvelt vétfefm -^em nýju vald-

hafarnir i Hnom Penh standa

frammi fyrir^ ^B

26: VíetnamJ^

Nokkrum arum eftir að striðínu

við BandarikjariefflHEH, eru

Vietnamar enn komnir i strið. 1

þetta sinn gegn Kina, slóra

nágrannanum i norðri. Daglega

berast fréttir um hörð atok og

ið mannfall á báða bóga.

aos

Meo ættflokkunnn, sem byr á

háslefcinni I norð^S^^^E lands-

ins, Ípftuir aldrei viljað viður-

kenna sfttrnina i Vientiane. Þeir

veita stöðligt harða mótstöðu, en

megna litils vegna fjölda viet-

namskra hermanna i landinu.

28: Austur Tímor,

Indónesía

Sjálfstæðishreyfingin Fretilin

berst stöðugt gegn innlimun

Austur-TImor i Indriesiu. Eftir

mannskæðar orrustur á árunum

1975-77, hörfaði Fretilin undan

Indónesum. Hreyfingin hefur enn

á valdi sinu nokkur fjallahéruð.

og er ekki á þvi að gefast upp,

jafnvel þótt fjöldi hermanna

hennar sé mjög litill, að öllum

likindum ekki nema nokkur

hundruð.

29:  Filippseyjar

Frá 1973 hefur frelsishreyfing

mtihameðstrúarmanna barist

fyrir að koma á fót eigin riki I

suður hluta Filippseyja Harðir

bardagar hafa verið háðir I Mind-

anao og i Sulu héraði. Múhameðs-

trúarmenn eru 10% af Ibúafjölda

Filippseyja og hafa barist af

hörku fyrir eigin riki Tölur um

mannfall segja að 50000 óbreyttir

borgarar og 4000 hermenn hafi

fallið.

—GB

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
12-13
12-13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24