Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						14

Föstudagur 6. apríi 1979—he/garpásturinn-

Grétar og hátalarnir stóru i Laugarásblói

„Hristist allt og skelfur"

Laugarásbíó setur upp

„sensurround"-tæki

„Við höfum verið i þvi uiidan-

larna dag aö styrkja hliðar biós-

ins, enda hristist hér alit og skelf-

ur", sagöi Grétar Hjartarson,

bióstjóri i Laugarásbiói i samtali

viö Helgarpóstinn. Astæöan fyrir

hristingnum er að nú hafa veriö

sett upp ný tæki i bíöinu, svoköll-

uð „sensurround" tæki.

..Þetta eru 12 stórir hátalar",

sagöi Grétar, „átta eru fyrir

framan áhorfendur en fjórir fyrir

aftan, I hornunum"

„Tækni þessi, sem við höfum

kallað alhrif á islensku, er i aðal-

atriðum   fólgin   i   hljóðbylgjum .

með mjög lágri tiðni, sem hefur

þau áhrif á áhorfendur að þeir

finna fyrir hljóðunum um leið og

peir heyra þau. Hátalararnir

sem notaðir eru, eru knúnir með

þrem 600 Watta aflmögnurum, en

til samanburðar má geta þess að

við sýningar á venjulegum

myndum er aldrei notast við

meira en svona 80 wött", sagði

Grétar.

Tækin voru fengín frá Belgiu,

og einnig tæknimaður til að setja

þau upp. Heildarkostnaðurinn við

uppsetninguna er um tvær

milljónir, en tækin verða i bióinu i

6 til 8 mánuði.

Fjórar kvikmyndir hafa verið

gerðar meö þessa tækni i huga,

„The Battle of Midway",

„Rollercosster",   „Earthquake"

og „Battlestar Galactica", sem

verður páskamynd biósins i ár

(sjá umsögn i listapósti). 1 bigerð

er að endursýna eitthvað af hin-

um myndunum áður en tækin

fara aftur út, en þær hafa allar

verið sýndar i Laugarásbiói áður.

Annars er kvikmyndahúsið að

festa kaup á svokölluðu Dolby-

kerfi til hljómflutnings, en það

bætir mjög hljómburð. Að sógn

Grétars vonast hann til að búið

verði að koma þvi upp fyrir jólin

þegar „The Wizard of OZ" verður

væntanlega sýnd.

—GA

mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm

Hresst upp á

miðbæjarbraginn

Forsvarsmenn Nessy eru með

skemmtilegar hugmyndir I koll-

inuin, sem gætu oröið til að

hressa upp á miðbæjarbraginn ef

nauðsynlegt leyfi fást. 1 bigerð er

að láta koma upp á Torginu veg-

visi lyrir miðbæinn. Þegar liggur

fyrir leyfi borgarráðs en málið er

nú tilathugunar i umhverfismála-

ráoi. Mesta nýlundan er þó að

þeir Nessymenn eru að gæla við

þá hugmýnd að hressa upp á

gamla Kosentahlkjaliaraiin undir

Nýja bió, sem hér áður fyrr var

vinsæll samkomustaður i borg-

inni. Þarna er tilvalio að koma

upp einhvers konar „stúdiói" eða

vinnustofu sem Kstamenn gætu

fengið til afnota gegn þvi að al-

menningi gæfist kostur á að

fylgjasi með vinnu þeirra auk

þess að efna mætti til uppákoma

ýmis konar. Hugmyndir Nessy-

manna munu einnig vera eitthvað

i þá veru.

A.Þ.

Hotel Borg A>

á besta staö í borginni.

'í^ Föstudagur: Opið til kl. 1

*7 Diskótekið Dísa — plötusnúður Oskar Karlsson

Laugardagur: Lokað v/einkasamkvæmis (hið

síðasta í vetur)

Sunnudagur: Gömlu dansarnir 9-1. Hljómsveit

Jóns Sigurðssonar ásamt söngkonunni Mattý

^     Sími 11440    HÓtel Borg   Sími 11440

^ffi

í fararbroddi í hálfa öld.

Æ

Franski matreiðslumaðurinn Eric Paul Calmon — hæstráðandi i

Nessy. HP-mynd: Friðþjófur

Vestrakjúklingar

við Innstræti

Nessy er íslenskur veitingastaður í skoskum stíl

þar sem franskur kokkur matreiðir kjúklinga

á ameríska visu

Nýjasti veitingastaðurinn á höfuðborgarsvæðinu er

í gamla miðbænum og heitir Nessy. Þetta er heldur

huggulegur grillstaður í skoskum stíl, enda er nafn

hanssótt ígæluheiti skrímslisinsannélaða i Loch Ness

vatni og þegar staðurinn opnaði með pomp og pragt

var pantaður sekkjarpípuleikari frá Skotlandi, sem

þrammaði niður allan Laugaveg til að vekja athygli

vegfarenda á staðnum.

Nessy er i sundinu, sem liggur

úr Austurstræti inn að Nýjabiói,

og eigendur veitingastaðarins,

þeir Jón i óðali og Bjarni i

Brauðbæ, hafa fengið leyfi

borgaryfirvalda til að kalla

sundið Innstræti. Óðalsbóndinn

og Brauðbæjarvertinn hafa ekki

áður lagt saman krafta sina, svo

að við vitum til, en ekki mun

hafa veitt af samstilltu átaki

þeirra til að koma upp starfsemi

af þessu tagi i jafn gamalli

húsaþyrpingu og er þarna á

horni Austurstrætis og Lækjar-

götu, þvi að áður þurfti að sigr-

ast á alls kyns samþykktum

heilbrigðisyfirvalda, bruna-

málastjóra, bygginganefndar,

skipulagsnefndar, umhverfis-

nefndar og hvað þetta nú heitir

allt.

Innan dyra I Nessy er mat-

reiðslumeistarinn Eric Paul

Calmon æðstráðandi. Hann er

ættaður frá Suður-Frakklandi

en hefur verið búsettur hér sið-

ustu sex árin, réðst upphaflega

að Hótel Esju en siðan aö Oðali,

þar sem hann var þar til Nessy

opnaði. Eric býst við að dveljast

hér enn um sinn, þvi að hann er

nú giftur fslenskri konu.

Eric leggur á það áhersiu i

spjalli við okkur Helgarpósts-

menn að i Nessy leggi hann

áherzlu á sérstaka matreiðslu á

kjúklingum, þ.e. á bandariska

visu i anda Kentucky Fried

Chicken og Southern kjúklings-

ins og kalla Nessy-menn kjúkl-

inga sina „vestra". Eric tók

fram, að kjúklingarnir sem

þarna væri um að ræða væru

nýir   og  hefðu  aldrei  i   frysti

komið.

Verðið á kjúklingunum er á

bilinu 1.200 kr. til 3.650, allt eftir

'þvi hversu stóran skammt þú

færð þér en einnig er hægt að fá

fjölskyldubox fyrir 5.500 kr. og

samkvæmisbox fyrir liðlega 10

þúsund krónur. Þá er unnt að fá

5-6 tegundir af venjulegum

hamborgurum, sem kosta á frá

750 kr. og upp i 1300 kr. auk

Haggis-borgara, sem er gerður

eftir leyniuppskrift franska

matreiðslumannsins og er hið

mesta lostæti. Þá er á boðstól-

um djúpsteiktur fiskur, rækju-

karfa, hrásalat og ýmsar teg-

undir af sósum.

Nessy verður væntanlega

frekar i sviðsljósinu i næsta

mánuði, þvi að þeir Bjarni i

Brauðbæ og Jón i Öðali hyggjast

um miðjan maí fá skoska sekkj-

arpipuleikarana aftur til lands-

ins en nú kemur hann með lið-

safnað, annan pipara til,

trommara og dansara, sem

væntanlega munu fremja listir

sinar á Torginu. Þá hyggjast

þeir Nessymenn vera búnir að

flikka enn frekar upp á Inn-

strætið.

En þar til verður Eric Paul

Calmon i fullu fjöri innan

veggja Nessy með vestra sina

og borgara — franskur kokkur i

skoskum matsölustað á Islandi,

sem sérhæfir sig i ameriskri

matreiðslu. Mótsagnakennt?

„Já, óneitanlega", svara Eric,

,,en hins vegar er þetta ný

reynsla fyrir mig og mér finnst

að maður eigi að reyna allt."

Helgarrétturinn:

Piparsteik í sinnepssósu

Er ic Paul Calmon lagði okk-

ur til helgarréttinn— logandi

piparsteik sem hann kvað

hafa gert mikla lukku, og

Bjarni i Brauðbæ mælti raun-

ar mjög meö. Uppskriftin er

svohtjóðandi:

1 kg.  nautalundir eða  nauta-

ffllet

40 gr. (u.þ.b.) af heilum pipar

(gjarnan livitum)

Sterkt sinncp (ósætt)

1/4 I. rjómí

Dós af Cream fresh

Salt eflir smekk

Koniak  (í» sentilitrar)

Skerið kjötið I fjðra

skammta 250 gr. hvern

skammt Berjið kjötið litiliega

en gætið þess þó að fletja það

ekki út. Myljið piparinn gróft

(ekki í p^arkvörn þar sem

htin mylur of smátt) og stráið

slðan piparnum vel yfir

sneiðarnar en þó aðeins aðra

hliðina.

Steikið kjötið á pðrrau I

smjöri en ávait fyrst þá

hliðina sem piparinn er á.

Steikinni er siðan sniíið við og

steikt hin hliðin. Gætið þess

jafnan að snúa kjötinu dður en

piparinn byrjar að brenna.

Saltiö ei'tir smekk.

Þegar steikin er nær tilbúin

er koniakinu hellt yfir pönn-

una og kveikt i þvi þar til þaí

logar en þá er 3/4 af rjdman-

um strax hellt yfir. Snúiö

steikinni nokkrum sinnum en

siðan erhúntekinaf pönnunni.

Nú er cream fresh bœtt út i

sósuna en hún síðan iátin siga

litio eitt. Bætið út i sinnepi

eftir smekk, afganginum af

rjómanum salti ogpipar ogþá

er sósan tilbuin. HeUið henni

að lokum yfir steikina. Berið

hana siöan fram með salati úr

þvi grænmeti sem völ er á á

hverjum tíma.       f

Uppskriftin er fyrir fjóra.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
12-13
12-13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24