Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						__he/garpósturínrL. Föstudag

ur 6. apríl 1979

21

SYNG NÚ MÍN SALARLUTA

,,Way down yonder in

New Orieans"

Ariö 1718 fékk sá ágæti mon-

sjur Jean-Baptieste le Mayne

Sieur de Bienville hina prýöileg-'

ustu pappira uppá þao, aö New

Orleans væri orðin borg og hann

borgarstjóri. Borgin, sem var

afar mikilvæg samgöngumið-

stöö viö önnur lönd tengdist lat-

neskum menningaráhrifum

karabfeka hluta Ameriku miklu

fremur en engilsaxneskum kúl-

túr. Hún var oft kölluo

Paris-sur-Mississippi  par  sem

bryggjusporðinn — þvf að

hvergiíheiminum þótti sælla að

leggja skipi sinu að landi.

Jafnvel að morgni dags var

borgin engu öðru lfk. Á þeim

tíma dags áttu jarðarfarir hugi

manna og hjörtu. Fjölskyldur,

fyrirtæki, hagsmunafélög og

karlaklúbbar reyndu bókstaf-

lega aö slá hvern annan Ut f

jarðarfaratfskunni sem varð

mikil og listræn keppnisgrein i

New Orleans — svona lfkt og

fermingarveislur á fslandi nú á

dógum, sem er keppnisgrein —

en ólistræn. (Nánar verður vikið

Jazz

eftir Gunnar Reyni Sveinsson

andlegt   föðurland  var  ekkert

minna en sjálft FrakklancL

Undir suðrænni sól og í góðæri

undu heimamenn gjarna við

hverskonar gleðskap — meðan

þrælarnir sáuumpulið. Mikil og

fjölbreytt músik tilheyrði lífs-

mynstrinu og dillaði mann-

skapnum frá vöggu til grafar.

Flotastöð bandariska sjóhersins

var komiðupp i New Orleans —

og alltaf voru einhverjar deildir

flotans mátulega nýkomnar eða

réttófarnar svo að endalaus til-

efni voru til að halda uppá dag-

inn, kvöldið og nóttina í þeim

sjóbúðum ásamt aragrúa af

áhöfnum kaupskipaflota heims-

ins, sem brugðu sér upp fyrir

að jarðarfarabransanum i.New

Orleans siðar).

Frelsi litaðra manna (creola)

afkomenda Frakka eöa Spán-

verja og svertingja var með

þokkalegasta móti alla tfð,

þangað til uppúr þrælastrfðinu

1880, að sett voru ný ólög yfir

þetta fólk svokölluð Jim

Crow-lög, Reglugerðin „Louisi-

ana Legislative Code III." gæti

verið frá Suður-Afrfku vorra

daga, þar sem segir, að allir

sem ekki eru snjóhvítir séu vit-

anlega kolsvartir. Menntaðir og

tiltölulega vel settir kynblend-

ingar sem ávallt höfðu með

nokkrustolti litið á sjálfa sig frá

Evrópuhliðinni og deilt geði i

sambýli við hvfta og veriö

áhrifamiklir f leikhúsum, kaba-

rettum, óperuhúsum og kon-

sertsölum sinfóniuhljómsveita

New Orleansborgar sem áheyr-

endur og flytjendur (creolar

voru yfirleitt mjög listelskt

fólk) voru nii drifnir f einum

hvelli niðurá neðsta sviö mann-

legs líf s — i' sambýli við svert-

ingjana. — I þeim suðupotti

kraumaði óhamingjusamt

mannlifið.

„BASIN STREET IS

THE STREET"

The District -— Storyville i

gamla franska svertingjahverf-

inu var ekki nein kotströnd eða

dottandi Búðardalur á árunum

milli 1800 og 1900.

1 gleðskaparhverfinu i New

Orleans         réð         feröinni

fransk-spænskt léttlyndi og

ótæpur afríkanskur gáski. —

Einmitt þarna i Mahogany Hall

upphófst fyrir alvöru

„jam-sessionin" mikla sem

stendur yfir enn.

Þó að lyfturnar hjá Lulu væru

aðeins fyrir tvo, — spiluðu þeir

þarna hver um annan þveran

allir þessir gömlu góðu gaurar,

sem manni er svo endalaust

hlýtt til, svo sem „Big Eye"

Nelson, Buddyarnir King Bold-

en sem var spámaðurinn en ent-

ist illa og Petit sem hafði 20

hljómsveitir eins og Pétur rak-

ari á sfnum skærum, Bunk

Johnson, sem gleymdist illa en

liföi þá alla og fannst um sjö-

tugt, hann spilaði menn hissa

fram yfir áttrætt.

Bechet á horni Bechetstrætisog

Armstrongstrætis

Dodds bræöurnir Baby og

Johnny sem urðu klassfk og

Krupa og Goodman lærðu sitt

af, Freddie Keppard sem varð

um sioir frægur fyrir það sem

hanngerði ekki, þ.e. að neita að

spila inná fyrstu grammófón-

plötuna: ,,I didn't want anyone

to" steal our stuff" Utskýrði kall

og hneggjaði I hornið.

Kornettistinn Nick La Rocca

sem varð heimsfrægur á þver-

öfugan hátt, klarinettleikararn-

ir Jimmy Noon sem þótti meir

en góður og Sidney Bechet sem

dó i lukkulegrielli sem heiðurs-

borgari Parisar 1959, trombón-

spilarinn Kid Ory sem skóp bá-

súnustilinn,   F,__'séníið   Jelly

Roll Morton sem laug þvi til, að

hann hefði sjálfur fundiö upp

jazzinn, það fann hann út ein-

faldlega með þvl að sleppa öll-

um hinum, aftur á mdti gerði

hann píanóiö að jazzhljómsveit-

arhljóðfæri, svo var það auðvit-

að sjálfur kóngurinn — allt var

alveg sér á parti hjá King Oli-

ver. — Og svo allir hinir...

Arið 1906 gefur sú ljúfa Count-

ess, miss Wille Piazza (sem ekki

var kvenrithöfundur) út hina

ágætu Blue Book sem er með

eldri ferðamannahandbokum

þar vestra og vfear veginn

gegnum klassana i hverfinu alla

leiðuppí eigiö hús beint i fangið

á Crying Emmu, Gold Tooth

Gussie, Bird Leg Noru eða

Three Finger Annie og Tender

LionThelmu—eða einsogsegir

i blau bókinni „The shot up-

stairs, Theshot downstairs, And

the shot in the room". Ennfrem-

ur stendur I þeirri bláu „If you

have the blues — just ask f or the

countess".

Loft var aö visu lævi blandiö á

þessum slóðum og lifsháski

mikill, (það var tekiö sérstak-

lega fram, ef menn dóu eðlileg-

um dauðdaga), — en það var

lfka opið hús hjá Lulu dag og

nótt þar sem haldið var uppá

jólin — árið og öldina út — eða

til ársins 1917 — þa kom ný

harðsnúin reglugerð. Fljótlega

uppúr þvf var Basin Street og

Storyville aðeins til I ljúfsárri

minningunni.

Nokkrar ábendingar um fáan-

legar LP með leik ómengaðra

New Orleans kappa.

1.  Bunk Johnson (trompet)

Echos from New Orleans,

Storyville 670 203 (meö Georg

Lewis klarinett o.fl.)

2.   Jimmy Noon (klarinett) At

the Apex Club, Decca Dl 79235.

3.  Doddsbræðurnir (Baby

trommur, Johnny klarinett).

Johnny Dodds and.Tommy

Ladnier, Biograph BLP —12024.

4.  Jelly Roll Morton (piano).

StompsandJoys, RCA LPY 508.

Heinesen fær

H.C.

Andersen-      mmm

verðlaunin

Færeyska skáldið William

Heinesen hlaut bókmenntaverð-

laun H.C. Andersen sjoðsins slð-

asta mánudag, en einmitt þann

dag, 2. aprfl, fæddist hið dáöa

danska skáld.

Heinesen er 79 ára gamall og

hefur verið afkastamikið og mik-

ilsvirt skáld um langt skeið.

Hann hefur verið búsettur i Fær-

eyjum mest allan hluta ævi sinn-

ar. Ekki aðeins hefur skáldsagna-

formið veriö honum hugleikið, þvi

mörg ljóð eftir Heinesen hafa

birst á prenti. Þetta er ekki I

fyrsta sinn, sem Heinesen hlotn-

ast heiður af þessu tagi, til að

mynda hlaut hann bókmennta-

verðlaun Norðurlandaráðs árið

1965.

H. C. Andersen verðlaunin hafa

ýmis nafntoguð skáld hlotið. Má

þar nefna Tove Ditlevsen, Tom

Kristensen og fleiri.

Trend Raf ritvélar

Japönsk völundarsmíð.

Ódýrar, liprar, sterkar og fallegar.

Skrif vélin h.f.

Suðuriandsbraut 12. Sími 8 52 77. Pósth. 1232.

fl979"

Til suburs með Surmu

Sunna býður bestu fáanlegu hótelin og íbúðirnar.

Þjónustuskrifstofur með íslensku starfsfólki


MALLORCA

íbúöahótei:

TRIANON,   PORTONOVA,   VILLA

MAR, ROYAL MAGALUF

Hótel:

GUADALUPE, ANTILLAS/BARBA-

ÐOS.HÓTEL33.

Dvalartimi 1-3vikur,

Brottfarardagar: 4. apr. — 6, apr. —

20. apr. - 11. mai - 1. júni - 22.

júní — 13. júlí — 27. júlí — 3. ág. —

17. ág. - 24. ág. og 31. ég. - 7.

sept. - 14. sept. og 28. sept. — 5

COSTA DEL SOL

íbúöahótel:

PLAVAMAR, LA CASCADA

Hðtel:

DON PABLO

Dvalartimi 1-3vikur.

BrOttfarardagar: 11. mai - I. júni -

8. júni — 22. júni og 29 [úni — 6. júli

- 13. júli - 20. júli og 27. júli - 3.

ág. - 10. ág. - 17. ág. - 24. ág. og

31. ag. - 7. sept. - 14. sept. og 22.

sept.

COSTA BRAVA

Íbúðahótei:

TRIM ARAN og ROVAL LLORET

Hótei CARIBE

Dvalartimi 3 vikur. Brottfarardagar:

ll.mai- 1. júniog22. juní 13. júli

- 3. agúst og 24. ágúst - 7. sept.

KANARIEYJAR

IbúÖahótel á PLAYA DEL INGLES:

KOOKA, ROCA VERDE, CORONA

RO JA og CORONA BLANCA

Dvalartimi: 18 26.dagar.

Brottfarardagar: 11. mai -  5. júni   -

26. júni - 17. júli - 7. ágúst - 28.

ðgúst - 18. sept. - 9. okt.

LONDON

Brottföralla laugardaga.

Hótel:    GLOUCESTER,    CUMBER

LAND,    REGENT    PALACE    og

RUSSEL

PORTUGAL

ESTORIL

Hóte! ALBERGARIA VALBOM og

LONDRES

Ibúðir VALE DO SOL

Dvalartimi 3 vikur.

Brottfarardagar: 5 júni - 26. júni

17.júli - 7. ágúst - 28. ágúst -  18.

sept.

GRIKKLAND

Hótel FENIX, REGINA MARIS og

VRAONA BAV

OASIS ibúðir.

Dvalartími 2 og 3 vikur.

Brottfarardagar: 16. mai       6. júni og

27. júni - 18. |úli - 8. ágúst og 29

ágúst -   12. sept.

ISRAEL

- GRIKKLAND

17. maiverðkf. 187.000.

Dvalartimi3 vikur.

KANADA

WINNIPEG og VANCOUVER.

Broltlarardagar: 3. júni - 3vikur, 24

júní - 4 vikur, 22. júli - 3 vfkur.

FARSEÐLAR UT UM ALLAN

HEIM

FJÖLSKYLDU. OG ONNUR

SÉRFARGJOLÐ I AJETLUNAR.

FLUGI

OLL ODÝRUSTU FLUGFAR.

GJÚLDIN

I

STÆRRI FLUGVÉLAR OG '

HAGKVÆMIR HÓTEL

SAMNINGAR LÆKKA

FERÐAKOSTNAOINN

SUNNA

REYKJAVÍK: BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 29322.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
12-13
12-13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24