Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						r-Jie/garpósturínrL. Föstudag

ur 6. apríl 1979

Slú ð*

Bryndls  Schram mátar  búninga

niðri í Þjóðleikhúsi

HP-myndir: Friðþjofur.

Ekki vitum við hvernig Visir

fer að, þegar leikritið um prins-

sessuna á bauninni kemur á svið

Þjóðleikhússins. Gagnrýnandi

blaðsins, Bryndis Schram hefur

nefnilega gert sér lltið fyrir og

tekið að sér eitt hlutverkanna í

leiknum, svo að varla kemur hún

til með að leggja blaði sínu til

leikhúspistil eftir þá frumsýn-

ingu.

Bryndís hefur ekki leikið f Þjóð-

leikhúsinu frá þvi veturinn 1970 i

barnaleikritinu Dimmalimm eftir

Helgu Egilsson þvi að haustið

eftir flutti hún vestur til Isafjarð-

ar, þar sem hiin hefur þó reynt að

halda sér i æfingu með þvi að

leika með Litla leikklúbbnum á

lsafirði meðan hún dvaldist þar

sem menntaskólakennari og

skólameistari á stundum.

Hvernig finnst henni að vera

horfin úr áhorfendahópnum upp á

sviðið, úr hlutverki gagnrýnand-

ans i hlutverki leikarans?

„Er ekki stundum sagt, að mis-

lukkaðir rithöfundar reyni að ná

sér niður á kollegum sinum með

þvi að gerast bókmenntagagn-

rýnendur. Kannski ég sé engu

betri," svarar Bryndis. „Ég kom

annars inn i leikhiisið aðeins 12

ára að aldri og hvarf þaðan 15

árum seinna. Þetta var stórkost-

legur timi en mí finnst mér ég

vera hálfgerð boðflenna og tima-

skekkja."

—AB

Fréttastofu Sjónvarps hefur nú

bæst nýr liðsauki þar sem er

Ingvi Hrafn Jónsson, gamal-

reyndur blaðamaöur af Morgun-

blaðinu, og viðar. Hann verður

þar i þrjá mánuði og leysir af

Sonju Diego, sem er i leyfi. Sonja

mun verða hjá Efnahagsbanda-

lagi Evropu i Brussel.

Ingvi Hrafn sagði i samtali við

Helgarpóstinn, að sér litist ágæt-

lega á þetta. „Það er mjög

skemmtilegt að fást við nýja teg-

und fréttamennsku. Vinnan við

Sjónvarpið er aö þvi leyti frá-

brugðin vinnu við dagblöðin, að

fyrir sjónvarp þarf að skrifa

miklu styttra mál, en um leið

gæta þess, að kjarninn komi fram

i þvi sem lesið er. Einnig þarf aö

aðlaga fréttirnar myndefni".

Ingvi Hrafn hefur unnið sjálf-

stætt sem blaðamaöur siðastliðið

ár, og gerir ráðfyrirað halda þvi

áfram eftir að vistinni hjá Sjón-

varpinu lýkur.

,,í:g hef mikinn áhuga á lax-

veiöum. Það passar þvi vel fyrir

mig aö þetta er búið 30. júni. Ég

kemst þá i laxinn i julí. Annars á

ég nú von á því að ég veröi half-

partinn i vöölunum hérna siðasta

daginn", sagöi Ingvi Hrafn Jóns-

son að lokum.

—GB.

Þrír framhjóladrífnir valkosf%

allir jaf n þýskir!

Pa.8sa.tinn er "stóri" bíllinn hjá Volkswagen.

Sportlegur bíll sem fœst í mismunandi gerðum:

2ja eða 4ja dyra, einnig með stórri gátt að aftan og

í "station" útfærslu.

Við erfiðustu akstursskilyrði bregst hann

ekki, hvort heldur í snjó, hálku, rigningu eða

miklum hliðarvindi.

Ekki sakar útlitið: Passatinn er glœsilegur

vagn, rýmið mikið, frágangur og innréttingar

frammúrskarandi vandaðar.

Golfinn er léttur og lipur í umferðinni.

Hugvitsamleg hönnun hans veldur því að innra

rýmið er mikið og drjúgt en ytri mál eru miðuð við

að smjúga í umferðinni; það stœði finnst vart

8em Golfinn smeygir sér ekki inn í.

Á vegum úti er Golfinn eins og hugur manns.

Hægt er að breyta honuni í sendibíl á svipstundu.

Það vekur athygli að Loftleiðir völdu Golfinn

af bllum þeim aragrúa bíla, sem bjóðast hér á

landi fyrir bílaleigu sína.

52 VOLKSWAGENGOLFNÚÍNOTKUNHJÁ

BÍLALEIGU LOFTLEIÐA!

Það er eitt að kaupa bíl,annað að reka hann:

Þú sem vilt tryggja þér góða þjónustu,

VOLKSWAGENÞJÖNUSTU, velurþvíGolf, Derby

eða Passat. Einhver þeirra þriggja er

bíllinn fyrir þig og þína.

¦     |pi#|      J\      |     ¦¦—

Laugavegi 170-172 Sími 21240

Derby sameinar smekklegt útlit, framúrskar-

andi aksturseiginleika og þýska natni í frágangi.

Aðrir helstu kostir Derbys:

Haeð undir lægsta punkt er 22,5 cm.

Sparneytinn svo af ber.

Farangur8rýmið er óvenju stórt, 515 lítrar.

Afþesau má sjá að Derby er tilvalinn ferða- og

fjölskyldubíll sökum sparneytni, hœðar frá

vegi og farangursrýmis.

Miðstöð 25% kroffmeirí

Sparneyt nir

Framhjóladrifnir

Háirávegi

Sérhœfð varahluta-og

viðgerðaþjónusta

Ingvi Hrafn án vaðlanna á fyrsta

degi á skrifstofu sinni Iijá sjdn-

varpinu.

1 nýjasta tölublaði timaritsins

Sweden Now, sem gefið er út á

ensku um sænsk málefni mátti

lesa eftirfarandi klausu I sliiður-

dálki blaðsins: „Iceland's For-

eign Minister Benedikt Gröndal

made an official visit to his

colleague Hans Blix and was

entertained at one of the gayest

parties of this snowiest of wint-

ers..." Sem útieggst: „Utanr&is-

róðherra Islands Benedikt Grön-

dal kom I opinbera heimsókn til

starfsbróður sins Hans Blix

(utanrikisráðherra Svia) og hon-

um til heiðurs var haldið eitt

„glaðværasta parti hingað til á

þessum snjóþunga vetri."

Hið virðulega bandarlska stór-

blað The New York Times hefur

nýlega gefið út sérblað þar sem

kynnt eru ferðalög til Evrópu-

landa. Þar er fjallað um öll lönd

Stefán.

álfunnar og þeim gefin einkunn.

Farið er mjög lofsamlegum

orðum um tsland, og segir að

Bandarikjamenn séu alltaf jafn

glaðir að heyra, að við, íslending-

ar, höfum GoKstrauminn, sem

færir okkur svo gott veður.

1 sama blaði er leitað til ferða-

skrifstofumanna og þeir spurðir

hvað þeir hafi upp á að bjóða.

Fyrir tslands hönd svarar Stefán

J. Richter. Hann nefnir lág flug-

fargjöld innanlands og ýmis sér-

fargjöld með áæltunarbilum, t.d.

hringmiöann. Með slikum miða

er hægt að ferðast hringinn i

kringum landið, ogtaka eins mik-

inn tima i það ög hverjum

hentar.

—GB.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
12-13
12-13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24