Helgarpósturinn - 16.11.1979, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 16.11.1979, Blaðsíða 8
8 —helgar pósturinn_ útgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjafi sem er dótturfyrirtæki Alþýðublaðs- ins. en með sjálfstæða stjórn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð- mundsson. Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf- steinsson. Blaðamenn: Guðjón Arngrimsson, Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund- ur Arni Stefánsson og Þorgrímur Gestsson. Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason. Auglýsingar: Elin Harðardóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir Dreifingastjóri: Sigurður Steinarsson Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðu- múla U, Reykjavík. Sími 81866. Af- greiðsla að Hverfisgötu 8-10. Simar: 81866, 81741, 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift (með Alþýðublaðinu) er kr. 4.000.- á mánuði. Verð i lausasölu er kr. 200.- eintakið. SLUNGIN SLAGORÐ Slagorð eru ómissandi þáttur aiirar almennilegrar kosninga- baráttu. i slagorðasmiði er það gullvæg regla að iáta slagorðin stuðla eða rima en það fer lltið fyrir sliku i þeim atkvæðaslag sem nú stendur yfir og reyndar má segja um alla stjórnmála- flokkana stóru, að þeir eru vart svipur hjá sjón i þessum efnum nú um stundir. Sjálfstæðismenn hafa að visu verið að burðast við að koma sér upp slagorði, þegar þeir vöklu yf- irskriftina á kosningaþlagg sitt — Leiftursókn gegn verðbólgunni. Þetta er afleitt slagorð. Fyrir utan það nú að það er hvorki stuðlað né rfmar, þá hefur það gefiö andstæðingum ótal tækifæri til skopstælinga og útúrsnúninga á borð við það sem Ailaballarnir nú stunda, sem hafa snúið mottóinu upp I Leiftursókn gegn lifskjörum. Það hljómar langtum betur — enda stuðiað. Þaö er skritið að sjálfstæðis- menn skulu ekkert hafa lært af reynslunni I sla gorðasmlði. Sagan sýnir nefnilega að i hvert sinn sem þeir hafa haldiö vig- í eifir til kosningabaráttu með slagorðsem hvorki eru stuðluöné rimuö þá hefur flokknum vegnab dapurlega. Hver man ekki eftir Afram-slagorðinu á viðreisnarár- unum, þegar þeir urðu fyrir veru- legu fylgistapi, eða þá siðast þegar þeir gengu til kosninga án slagorða eða með slagorö sem enginn skildiog allir vita hvernig þá fór. Þar áöur— þegar flokkur- inn hins vegar státaði af stuðluð- um slagoröum, eins og Varist vinstri slysin eða Báknið burt, þá vann hann sinn stærsta sigur. Hinir flokkarnir hafa ekki verið eins dugr-iklir Isamræmdri slag- orðasmlöi, enda ekki af sökum aö spyrja,— þessir flokkar hafa ekki nánda nærri eins marga kjósend- ur og sjálfstæöismenn, þrátt fyrir allar hrakfarir. Hins vegar er eftirtektarvert aö þegar Alþýðu- bandalagið og Alþýöuflokkur sameinuðust um stuðlaö slagorö fyrirsiöustu kosningar — Kjósum gegn kaupráni, þá unnu þessir flokkar báðir sina stærstu sigra og fengu nákvæmlega jafnmarga þingmenn. Núna rikir sem sagt hálfgerð slagorðakreppa. Það eru helst einstakir fylgismenn sumra flokkanna sem eitthvaö hafa lagt til af viti i þessa veru. Karl Steinar kallaði Alþýðuflokkinn „Vörn gegn vitleysu” — ágætlega stuðlað slagorð sem kratar hafa ekki enn haft klókindi til að hampa. En iangmest finnst mér samt koma til slagorös Dagbjartar Höskuldsdóttur á kvenna f ra mboösf undinum á dögunum — Það má stóla á hann Óla. Svona lika prýðilega rimað slagorö. Það er bara verst að Óli skuli ekki vera I framboöi um land allt og kannski enn verra að hann skuli ekki vera i forseta- framboöi i Bandarikjunum. Maður með svona slagorö á sig- urinn visan. Aðsíöustu — ein tillaga um slag orð fyrir S-Iistann I Norðurlands- kjördæmi eystra: Sólness er eldhress! — BVS Föstudagur 16. nóvember 1979 Það er engum blööum um þaö aö fletta, aö fylgisaukning Sjálf- stæöisflokksins i aöventukosn- ingunum veröur ekki eins mikil og reiknaö var meö um þaö leyti sem þing var rofiö. Þá voru all- ar ytri aöstæöur fiokknum mjög i hag, en skjótt skipast veöur i lofti, og allt getur gerst I pólitik- inni, eins og sagt er um knatt- spyrnuna. Þaö er hrein og bein fjarstæöa aö halda þvl nú fram aö nokkur möguleiki sé fyrir Sjálfstæöisflokkinn aö fá hrein- an meirihluta á Alþingi. Til þess þyrfti hann aö bæta viö sig hvorki meira né minna en 13 þingmönnum, en sjálfstæöis- menn mega þakka fyrir ef þeir bæta viö sig 3 þingmönnum nú i Það verður spennandi á Vest- f jörðum og Austurlandi kosningunum og kannski veröa þeir ekki einu sinni svo margir. Nú er það upplausn hjá Ihaldinu en ekki á vinstri væng stjórnmálanna Klofningaframboö sjálf- stæöismanna i tveimur kjör- dæmum geta átt eftir aö kljúfa flokkinn endanlega, þrátt fyrir aörar yfirlýsingar hjá „klofn- ingunum” I Sjónvarpinu á þriöjudagskvöld. Þaö er ekki neinn friöarstóll sem Geir Hall - grimsson situr á þessa dagana i Valhöll. Hann var aö visu bros- leitur á vinnustööum og um borð I togaranum á Eskifiröi um siö- ustu helgi, en þaö var nú bara á yfirborðinu og á meöan hann var I Austurlandskjördæmi. Sannleikurinn er nefnilega sá, aö I þvl kjördæmi virðist vera einna mestur friöur innan Sjálf- stæöisflokksins. Þrátt fyrir mjög erfiöar landfræöilegar aö- stæöur var haldiö þar prófkjör, og eins og viö var aö búast sigr- aöi Sverrir Hermannsson glæsi- lega. Þar ógnar honum enginn. Hinsvegar varö mikiö stjörnu- hrap hjá efsta heimamanninum á listanum viö siöustu kosning- ar, Pétri Blöndal framkvæmda- stjóra á Seyöisfiröi. Hann hefur verið I ööru sæti og komiö á þing I fjarveru Sverris, en þangaö á hann llklega ekki oftar eftir aö koma. Hinsvegar mun bændum bætast góöur liösstyrkur á þingi þegar Egill ráöunautur Jónsson kemur inn I fjarveru Sverris. — En Sverrir er I hættu. — Frá þvi kjördæmabreytingin var gerö, 1959, hefur Sjálfstæöisflokkur- inn aldrei fengiö eins fá atkvæöi á Austurlandi og slöast, eöa 1062. 1 kjördæminu eru um sjö þúsund kjósendur, og Alþýöu- bandalagiö vantaöi ekki nema rösklega 240 atkvæöi til aö fella Sverri og ná þriöja kjördæma- kjörna manninum, en hann fór inn á uppbót sem kunnugt er. Austurland: Framsókn telur sig fá þrjá Austurlandskjördæmi er sá staöur á landinu þar sem Fram- sóknarmenn eygja þá von að vinna mann, og þaö er heldur ekki útilokað. Kaupfélagsstjór- inn ungi sem er I þriöja sæti lista Framsóknar er óþekkt stærö, og þaö heföi veriö sterk- ara ef Halldór Asgrlmsson heföi viljaö fórna sér I þriöja sæti, en þá átti hann lika á hættu aö vera á vergangi eftir þessar kosning- ar eins og eftir kosningarnar I fyrra. Framsókn haföi þrjá menn á Austurlandi þar til I fyrra. Þaö var fyrsta skiptiö llka sem Eysteins Jónssonar naut ekki viö, — og þaö munar um minna. A Austurlandi geta atkvæöi Alþýöuflokks og Sam- takanna frá þvl I slöustu kosn- ingum skipt sköpum. Bjarni prófessor Guönason reytti þar upp töluvert fylgi, en Guö veit hvar þaö er niöurkomiö núna. Þá áttu Samtökin rösklega 200 atkvæöi á Austurlandi siöast, en bjóöa ekki fram þar nú. Hins- vegar er annar „maöur” á lista Samtakanna þá, nú kominn á lista Alþýöubandalags. Þetta er Agústa Þorkelsdóttir húsfreyja á Refstaö I Vopnafiröi kvenre'tt- inda kona og skörungur mikill. Hún er fjóröa á listanum aö mig minnir og fær aö halda ræöur. 1 þriöja sæti listans er svo blómiö I hnappagatinu hjá Alla — ball - anum á Austurlandi. Þaö er Sveinn Jónsson verkfræöingur, alnafni og barnabarn Sveins á Egilsstööum. Egilsstaöaættin getur haft mikil áhrif á þessar kosningar. Sveinn gamli var nú einu sinni sjálfstæöismaöur, en slöan mun meirihlutinn af Egilsstaðafólkinu hafa veriö kominn yfir á Framsókn. Spurningin er hvaö þaö gerir núna, þegar einn af ættinni er kominn meö annan fótinn I sali Alþingis. Skyldi þaö ekki reyna aö ýta hinum innfyrir lika? — Allavega: Úrslitin á Austurlandi veröa tvisýn og þar veröur bar- istfram á siöustu stund. Austur- landskjördæmi er eitt af þeim kjördæmum, sem er mjög viö- kæmt ef gerir vetrarhörkur. Þaö er ekki vist, aö aldraö fólk á Jökuldal og I Hrafnkelsdal, svo dæmi séu nefnd, fari á kjör- staö. Vestfirðir: Þar getur alltgerst Annaö kjördæmi þar sem úr- helgarpústurinn^ slit veröa mjög tvlsýn og vetrarhörkur geta haft mikil áhrif eru Vestfirðir. i siöustu kosningum dróst talning tölu- vert 1 Vestf jaröarkjördæmi. Þeir sem böröust þar fyrst og fremst voru Sighvatur Björg- vinsson, Karvel Pálmason og annar maöur á lista Sjálfstæöis- flokksins, Þorvaldur Garöar Kristjánsson. A Vestfjöröum var ekki prófkjör hjá Sjálf- stæöisflokknum og þessvegna er Þorvaldur Garöar enn á listan- um. Kunnugir menn þar vestra segja aö hann heföi liklega falliö út af listanum I prófkjöri, nema Matthias Bjarnason heföi haldiö sérstakri verndarhendi yfir honum. Þaö var nokkurnveginn vitaö fyrir siöustu kosningar aö Gunnlaugur Finnsson annar maöur á lista Framsóknar myndi falla. Bæöi var aö flokkurinn stóö illa þar vestra eins og annarsstaðar, og svo var hitt sem vó þungt, en þaö voru erfiöleikar Gunnlaugs á heima- slóöum. óreiöa og óorö bæöi á kaupfélaginu og I sveitarstjórn- inni þar sem hann var ráöamaö- ur. Sjálfur er Gunnlaugur stál- heiöarlegur maöur, en þeir menn sem höföu valist til for- ystu á þessum vigstöövum réöu ekki við þau verkefni, sem þeim voru falin. Þá lá þaö i loftinu að þarna myndi Alþýðubandalagið fá kjörinn mann, sem það tapaði i kosningunum 1967. Sú varð lika raunin á og Kjartan Ólafsson fyrrum Þjóðviljaritstjóri og harðlinumaður náði kosningu. Þaö var ekki fyrr en komiö var langt fram á dag, daginn eftir kosningarnar aö ljóst var aö Karvel náöi ekki kjöri. Hann var ýmist inni eöa úti meöan á talningunni stóð. og hann vant- aöi ekki nema 1*6 atkvæöi til aö fella Þorvald Garöar, — svona glöggt stóö þaö. Og aöeins mun- aöi 32 atkvæöum á Karvel og Sighvati i siöustu kosningum. Þarna stóö þvi allt mjög glöggt. Nú hafa þeir ruglað saman reitum slnum Sighvatur og Kar- vel og miöaö viö siöustu kosn- ingar eru þeir meö samtals 1584 atkvæöi og þar meö sterkasti flokkurinn i Vestfjaröarkjör- dæmi. En þetta eru nú tölurnar frá I fyrra og hvernig þær veröa nú, er erfitt aö segja til um. Þaö er hinsvegar ljóst aö sá mögu- leiki er fyrir hendi aö þeir veröi báöir kjördæmakosnir, en þá veröa llka allir frá þvl siöast aö skila sér og töluvert fleiri. Bar- áttan milli Karvels og Þorvald- ar Garöars veröur þvl hörö, en sá þeirra sem ekki veröur kjör- dæmakosinn má heita viss um að verða landskjörinn þingmað- ur. Þessi spá er byggö á þvl aö Framsókn nái aöeins einum og Alþýöubandalagiö haldi sinu. ...hákarl.... ÖRFA ORÐ VEGNA „MINNINGAR- ORÐA UM SÍÐUSTU SÝNINGU FÍM” Helgarpóstinum hefúr borist eftirfarandi opiö bréf til mynd- listargagnrýnanda blaösins, Halldórs Björns Runólfssonar vegna greinar um FÍM-sýning- una I slðasta tölublaði: Kæri Halldór: Umræöur um Haustsýninguna hafa fariö fram I stjórn og sýn- ingarnefndfélagsins.bæöi i árog undanfarin ár. Innan félagsins hafa veriö skiptar skoöanir um Haustsýninguna, kosti hennar og galla. Þegar rætt er um hvers vegna sýningunni hefur hrakaö ár frá ári, veröa menn aö hafa I huga gerbreyttar aöstæöur I sýningar- málum i dag, miöaö viö aöstæöur t.d. fyrir 10-15 árum. Ber þar hæst, aö upp hafa sprottið ýmsir fleiri sýningarhópar, sem skapað hafa breidd I islenska myndlist en jafnframt þýtt mikla blóötöku fyrir FIM. Ég vil nefna islenska graflkera, sem sýndu siöastliöiö haust, sýningarhópinn Vetrar- mynd, Septem og Mynd- höggvarafélagiö, en báöir síðast- töldu hóparnir sýndu á Kjarvals- stööum I sumar. Þar aö auki má nefna hluta ungra myndlistar- manna, sem ekki eru 1 FIM og reka galleriið I Suöurgötu af miklum dugnaöi. Þegar athugaö- ar eru þessar forsendur, er ekki aö undra, aö Haustsýningunni hafi hrakað. Margir innan raöa FIM hafa lengi gert sér þessa staðreynd ljósa, en umræöur komust fyrst verulega á skriö eftir slöustu Haustsýningu. A félagsfundi, sem haldinn var I byrjun þessa mánaöar, uröu miklar umræöur um þessi mál, sem lauk meö þvi, aösamþykkt var tillaga frá stjórn og sýningarnefnd þess efnis, aö næsta Haustsýning hafi ákveöinn kjarna u.þ.b. fimm myndlistar- manna, sem hver um sig sýni.- tiu verk. Þessir myndlistarmenn yröu valdir af sýningarnefndmeö árs fyrirvara. Aö auki gæfist öör- um félagsmönnum kostur á þvi aö senda inn verk eins og veriö hefur og þaö sama gildir um utan- félagsmenn. Meö þessu móti von- umst viö til þess aö næsta Haust- sýning fái sterkt svipmót og kom- ist úr þeirri lægö, sem hún óneitanlega hefur verið i undan- farin ár. Hvort hún svo kemur til meöaö fá þá breidd, sem þú aug- lýsir eftir, er svo önnur saga, endaövlstaöþaöséáfæri FIM aö gera slika „heildarsýningu” eins og aöstæöur eru I dag. Þaö mætti kannski tala viö Listasafn tslands eöa annan aöila? Frá mínu sjónarmiöi er höfuð- vandinn aö þjappa FIM-urum betur saman, en þaö tekur allt sinn tlma, enda eru ein- staklingarnir ólikir eins og þú veist. Meöbestukveðju Jón Reykdal.stjórnarmaöur I FIM. MED EN EKKi OG Dálitil prentvilla breytti merk- ingunni I niöurlagi bréfs nokkurra félaga I S.A.T-T. I siöasta Helgar- pósti, þar sem f jallaö var um ,,út- vikkunareyrnaaögerö” Arna Björnssonar, eyrnalystarskrifara blaösins. Rétt er niöurlagiö þann- ig: „Var ekki einleikiö meö skrif Arna, en þar sem orsökin viröist hafa legið ljós fyrir hjá viökom- andi háls, nef-, og eyrnasérfræö- ingi er aögeröina framkvæmdi væntum viö þess aö árangurinn komi fram þá og þegar með batn- andi heyrn”. I blaöinu stóö hins vegar: „árangurinn komi fram þá og þegar ogbatnandi heyrn”. Leiöréttist þetta hér með.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.