Helgarpósturinn - 06.06.1980, Blaðsíða 22
nnrv ív.í
V -A
r.c
rr
22
Föstudagur 6. júní 1980. helgarpósturinn-
Tvær merkar listakonur
Geröur
náttúruna og myndefniö eru
hvarvetna augljós. Þaö er
upplifun manneskju sem fædd
er i sjálfu myndefninu og túlkar
þaö af innri þörf og sann-
færingu. Myndir Kristinar eru
ekki málaöar I belg og biöu til
aö hala inn hámarksgróöa eins
og nú er tiska margra lands-
lagsmálara.
Yfirlitssýningin á verkum
Geröar Helgadóttur er ekki
siöur kærkomin. Hún markar
timamót, þar sem hún er fyrsta
yfirlitssýning á verkum þess-
arar afkastamiklu listakonu.
Geröur er af kynslóö þeirra
listamanna sem héldu utan,
skömmu eftir seinni heims-
styrjöldina.
Verk Geröar eru flest öll
unnin erlendis, enda dvaldi hún
mestan hluta ævi sinnar I
Frakklandi. Geröur helgaöi sig
höggmyndalistinni og á seinni
hluta ævinnar fékkst hún viö
glermyndagerö. Hún hefur
greinilega veriö mjög bráö-
þroska i köllun sinni. Högg-
myndir sem geröar eru á fyrsta
námsári hennar i Handiöa- og
Saga islenskrar nútimalistar
er sérstæö. Hvergi minnist ég
þess aö hafa fundiö i listasög-
unni timabil, sem státar af jafn-
mörgum afrekskonum. Gluggi
menn I heimslistasögu 20.
aldarinnar, rekast þeir á sárafá
kvenmannsnöfn. Fæstar þess-
ara kvenna voru I fararbroddi,
yfirleitt voru þær undir „vernd-
arvæng” einhvers þekkts
myndlistarmanns af hinu
kyninu. Þessi kvenfæö i lista-
sögunni er ekki undarleg sé aö
þvi gáö, aö konum var meinaöur
aögangur aö listaskólum allt til
loka 19. aldar. Þær sem fengu
aögang voru fyrirsætur sem
karlmenn máttu teikna og
mála. Konur máttu undir
engum kringumstæöum teikna
eöa mála nakta karlmenn og
helst ekki naktar kynsystur
sinar.
Rússar voru fyrstir til aö
hleypa kvenfólki inn i sinar
keisaralegu akademiur. En
þrátt fyrir aö sú þjóö ætti seinna
Þær eru partur af stórum hópi
kvenna sem voru áhrifavaldur i
listum. Þær stóöu ekki i skugga
neinna „karlkynsmeistara”,
heldur leiddu þær islenska
myndlist á óliku sviöi og ólikum
tlma. Kannski má þakka
þennan fjölda listkvenna þvi
fordómaleýsi sem litil eöa engin
hefö skapar. Þessar konur
þurftu aldrei aö bera kross
aldagamallar útskúfunar og
stóðu þvi jafnfætis karlpen-
ingnum aö mótun islenskrar
myndlistar.
Kristin Jónsdóttir er einmitt
af fyrstu kynslóö Islenskra
málara og stundar nám i Kaup-
mannahöfn um sama leyti og
Jóhannes S. Kjarval og Júliana
Sveinsdóttir. Asamt Júliönu er
hún þvi brautryðjandi fyrir
listakonur yngri kynslóöa.
Sýningin aö Kjarvalsstööum
opinberar um 140 myndir eftir
hana og er þaö frábært yfirlit á
verkum Kristinar.
Hér er á feröinni mikilhæfur
og persónulegur málari. 011
Myndlist
eftir Halldór Björn Runólfsson
eftir aö taka upp kerfi sem
tryggja skyldi konum fullan
rétt, viröastsovéskar listakonur
sist fleiri en starfssystur þeirra
annars staöar. Um aldamótin
fengu konur svo loksins aö
teikna módel (I flestum
löndum), en án slikrar þjálfun-
ar var ekki um neina mynd-
listarsköpun aö ræöa i þá daga.
Opnun sýningar á verkum
Kristinar Jónsdóttur og Geröar
Helgadóttur á Kjarvalsstööum
1. júni (I tilefni listahátiöar),
vekur upp þanka um ofan-
greinda sérstööu Islenskrar
íistasögu. Þessar tvær lista-
konur eru engin sértilfelli.
vinnubrögö Kristinar viröast
hafa einkennst af einlægri og
þróttmikilli túlkun, hvort heldur
er litiö á landslagsmyndir
hennar, mannamyndir eöa upp-
stillingar. Verk hennar bera
vott um djúpan skilning á eöli
túlkunar. Það sem augaö sér og
hjartaö skilur, vixlverkun form-
rænna og tilfinningalegra þátta
viröast ná fullkomnu jafnvægi i
myndum hennar. Tjáningarrik
litameöferð ber formskyniö
aldrei ofurliöi.
Þaö er þvi miður oröiö sjald-
gæft aö sjá landslagstúlkun sem
er jafn sterk og sannfærandi og
túlkun Kristinar er. Tengslin viö
Kristin
myndlistaskólanum bera vitni
miklum hæfileikum.
A sýningunni aö Kjarvals-
stööum má rekja þróun Geröar
gegnum hin griöarlegu afköst
og meö hjálp litskyggnuskerms
er reynt aö bregöa upp heillegri
mynd af þeim verkum sem eftir
hana liggja erlendis.
Fjölhæfni Gerðar er ótrúleg.
Sama er hvort um er aö ræöa
höggmynd, steindan glugga eöa
mósaikverk, allt viröist gert af
sömu leikni og vandvirkni.
Afrakstur ævistarfs þessarar
listakonu sem féll frá svo sorg-
lega snemma, er jafnmerkur
hvar sem á hann er litiö. Þaö
viröist aldrei hafa háö Geröi aö
hún vann jöfnum höndum að
sa mk e pp n is v er kum og
pöntunum, meðan hún skóp sér
nafn sem persónulegur mynd-
höggvari. Þannig ber skreyti-
listin hvergi ofurliöi aöra þætti
listsköpunar hennar.
Hvert verk Geröar er rökrétt
framhald fyrri verka. Hún
fellur aldrei fyrir hrárri endur-
tekningu þrátt fyrir hiö gifur-
lega magn verkefna sem henni
voru falin. Hver úrlausn er sér-
stæö, liöur I markvissri glimu
viö efniö, leit aö fullkomnun.
Þaö aö gera þessum stór-
brotnu listamönnum tæmandi
skil i svo stuttu spjalli, er von-
laust. Ég vil aðeins þakka Kjar-
valsstööum þetta merka fram-
lag fyrir hönd listunnara sem nú
fá tækifæri til aö kynnast ferli.
þessara tveggja kvenna.
Sýningin er vel upp sett I hvi-
vetna. Þaö er mikil bót að sjá
málverkin fest á hvit spjöld þar
sem næg birta leikur um þau.
Eins er þaö timabær ráöstöfun
aö fýlgja úr hlaöi yfirlits-
sýningu, meö birtingu lit-
skyggna af verkum, sem ekki
veröa flutt á sýninguna. Yfir-
litssýning er ætiö betri eftir þvi
sem hún er meira tæmandi. Hér
hafa Kjarvalsstaðir veitt
upplýsirigar af örlæti og mætti
slikt verða til eftirbreytni i
framtiöinni.
Þessi sýning aö Kjarvals-
stööum er veröugt framlag til
listahátiöar 1980, sannkölluö
listahátiö fyrir þá sem unna
góöri myndlist.
NÓTUR AÐ NEÐAN
A undanförnu ári og reyndar
lengur hefur veriö mikil gróska i
rokktónlist, einkum i Bretlandi og
Bandarikjunum, sem skapaö hef-
ur af sér fjölda nýrra hljómsveita
og nýja rokkmenningu. Flestar
þessara nýju hljómsveita eru hér
á landi nánast óþekktar og á
vafalaust sinn þátt i þvi hátt verö
á hljómplötum og takmörkuð
upplýsingamiölun i fjölmiölum.
Þykir okkur rétt að nota þessar
fáu linur, sem viö höfum til
umráöa, aö minnast m.a. á
nokkrar þeirra litt þekktu
hljómsveita, sem nýlega hafa
sentfrá sér plötur. Hugmyndin er
aö skrifa reglulega undir ofan-
greindu nafni pistil, þar sem
kynntar veröa i stuttu máli nýjar
athyglisveröar hljómplötur, þvi
ógerlegt er meö nokkurri
nákvæmni aö fjalla um allar þær
ágætu hljómplötur, sem nú koma
út.
1 tengslum viö uppkomu hinna
nýju rokkhljómsveita hafa komiö
fram fjöldinn allur af litlum
hljómplötufyrirtækjum, sem gef-
iö hafa út flestar plötur þessara
hljómsveita. Engu aö siöur hefur
frá árinu 1977 allt stefnt I þá átt aö
gömlu og rótgrónu hljómplötu-
fyrirtækin gleypi hin smærri og
þeirra listamenn. Þó hafa nokkur
hinna nýrri útgáfufyrirtækja fest
sig i sessi og starfa enn sem kom-
iö er á sjálfstæöum grundvellí.
Helst og sjálfsagt merkast þeirra
er Rough Trade, sem aftur hefur
fylgt fordæmi hinna stærri og sér
nú um dreifingu fyrir hljómplötu-
fyrirtæki þeim smærri, sem áöur
störfuðu sjálfstætt. Hin gömlu og
virtu hljómplötufyrirtæki hafa
sjálf aö nafninu til sett á fót ný
fyrirtæki, sem ætlaö er aö gefa út
plötur meö nýjum rokkhljóm-
sveitum. Má I þessu sambandi
t.d. nefna undirmerki EMI,
Cobra, og fyrirtækiö Fiction
Records, sem stjórnaö er af
Polydor.
Fiction Records hafa á þvi
rúma ári, sem þaö hefur starfað
gefiö út nokkrar merkilegar plöt-
ur. Nú nýlega gaf þaö út aöra
plötu hljómsveitarinnar The
Cure, sem nefnist Seventeen
Seconds. Þessi plata The Cure
fékk fremur neikvæð umskrif i
nokkrum breskum músikblöðum I
þaö minnsta samanboriö viö fyrri
plötu hljómsveitarinnar, sem
almennt var mjög rómuö. Hvaö
sem þvi veldur þá erum viö þess-
um gagnrýnendum hjartanlega
ósammála. Mikil þróun hefur átt
sér staö i tónlist Cure og hefur
koma hljómborösleikara gefiö
tónlistinni fágaöra yfirbragö.
Fyrri plötuna einkenndi
skemmtileg og heillandi
frumstæöni i hljóöfæraleik og
útsetningum og var engu likara
en þeir hafi gengiö einn góöan
veöurdag inn I stúdió og spilað
plötuna beint inn. Greinilegt er aö
mun meiri vinna og hugsun liggur
aö baki Seventeen Seconds og
skilar þaö sér fyllilega i gæöum
plötunnar. Erfitt er aö skilgreina
tónlist Cure en til aö gefa
einhverja en engu aö siöur óljósa
visbendingu þá má finna margt
sammerkt meö þeim og t.d.
hljómsveitinni Talking Heads og
er þaö fyrst og fremst i gegnum
þau áhrif sem Brian Eno hefur
haft á heildarmynd tónlistar
Talking Heads. Þó er tónlist Cure
mun fágaöri og i henni er fólgin
svifandi stemmning einfald-
leikans meö þeirra séreinkenn-
andi hljómfalli. I fáum orðum
sagt er Seventeen Seconds ein
Hinir upprunalegu Cure
heilsteyptasta og besta plata,
sem undirritaðir hafa lengi heyrt.
Skömmu fyrir útkomu plötu Cure,
Seventeen Seconds, gaf sama
fyrirtæki, Fiction Records, út
fyrstu plötu hljómsveitarinnar
The Passions, Micheael &
Miranda, Hljómsveitin er skipuð
tveim konum og jafnmörgum
karlmönnum og sjá konurnar af
mikilli prýöi auk annars um
bassaleik og mest allan söng.
Tónlist The Passions minnir
óneitanlega á Cure og þá öllu
heldur á fyrri plötu þeirra. Þaö er
einkum einfaldur hljóöfæraleikur
og svipaö hljómfall sem gerir
samanburöinn eölilegan. Likt og
hjá Cure er bassaleikurinn mjög
framarlega og áberandi og auk
þess aö stýra hinu sérstæöa
hljómfalli þá fléttar hann sina
eigin en þó tengdu laglinu inn i
heildarmynd lagsins. Ekki er
hægt ab segja annað en ab þessi
óþekkta hljómsveit, The
Passions, hafi komið á óvart með
sinni fyrstu plötu.
Þótt hljómplötufyrirtækiö
Virgin Records sé tiltölulega ungt
aö árum hefur þaö nú þegar
öölast sinn sess á meðal hinna
gamalgrónu fyrirtækja hljóm-
plötuiönaöarins. Engu aö siður
nýtur þaö sérstööu meöal þeirra,
þar sem fyrirtækiö fylgir enn
þeirri hugsjón sem grunnur þess
byggöist á og er mjög vakandi
fyrir öllum nýjum bylgjum og
fyrirbærum i rokkheiminum.
V irgin hefur þvi átt stóran hlut I
útgáfu á tónlist hinna nýju bresku
rokkhljómsveita. Ein þeirra
hljómsveita er XTC, sem vissu-
lega verður aö teljast til merki-
legustu hljómsveita sem nú
starfa i Bretlandi. Fyrir um hálfu
ári siöan kom út þribja plata
XTC, Drums and Wires.Er
þaö einkennandi fyrir XTC sem
margar aörar hinna nýju rokk-
hljómsveita hversu ör þróun er
frá einni plötu til annarrar og er
Drums and Wires engin undan-
tekning þar á. A þeim þremur
árum sem hljómsveitin hefur
starfaö hafa þeir náö aö skapa
mjög heillandi og persónulegan
stil, sem á sér aö einhverju leyti
samsvörun I fortiðinni og þá i
hinni þýsku bylgju sem gekk yfir i
upphafi siðasta áratugs, meö
hljómsveitina Can sem leiöandi
afl.
A siöasta ári gaf Virgin út
fyrstu plötu hljómsveitarinnar
Cowboys International, og sem
er þeirra eina til þessa og nefnist
The Original Sin.Af fyrstu plötu
að vera er platan ótrúlega vönduö
og markviss og tvímælalaust i
hópi athyglisveröustu platna síö-
asta árs. Má sérstaklega geta
lagsins Wish, þar sem hljóm-
sveitin er aöstoöuð af gitarleikara
PIL, Keith Levene, sem er
ógleymanlegt.
Likt og viöa má kenna i tónlist
Cowboys International er David
Bowie sterkur áhrifavaldur I tón-
listarsköpun margra breskra
rokkhljómsveita i dag. Þannig er
einnig fariö meö hljómsveitina
The Psychedelic Furs, sem
nýlega hefur sent frá) sér sina
fyrstu plötu, sem einfaldlega ber
heiti hljómsveitarinnar. Mikiö
hefur veriö skrifaö um hljóm-
sveitina á undanförnum
mánuöum og greinilegt er aö
miklar vonir eru bundnar viö þá
og réttlætir platan þaö fylli-
lega.
Endurútgáfur
Auk hinnar miklu grósku I út-
gáfu á tónlist nýrra hljómsveita
hafa ýmis hljómplötufyrirtæki
loks látiö veröa af þvi aö endurút-
gefa margar klassiskar plötur
rokksins, sem uppseldar hafa
veriö um langt árabil.
Má nefna i þvf sambandi
endurútgáfu Pye á Kinks-
plötunum, Kinda Kinks (1965),
Kinks Kontroversy (1966) og
Face To Face(1967). Útgáfa, sem
vissulega á fullan rétt á sér i dag
og hefur veriö vel staöiö aö, þar
sem engu er breytt frá uppruna-
legri útgáfu platnanna. Sama er
aö segja um endurútgáfu ESP á
tveim fyrstu plötum bandarisku
hljómsveitarinnar Pearls Before
Swine, One Nation Underground
(1967) og Balaklava (1968).
Þótt þýzk endurútgáfa á tveim
plötum bandarisku hippahljóm-
sveitarinnar Mad River, Mad
River (1968) og Paradise Bar
And Grill (1969) , sé kærkomin er
engu aö siöur leiðinlegt aö veröa
vitni aö þvi hvernig Þjóöverjinn
sendir frá sér þessar merku
plötur. Albúmineru gerbreytt og
felld inn I einhverja endurútgáfu-
seriu með tilheyrandi slagoröum
yfir albúmin þver.
Frekari upptalning verður aö
biöa sins tima, þar sem plássiö er
takmarkað.