Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						JielgarpÖsfúríhn Pöstuda9"r 'j *»**

1980.

Llkanið af útvarpshúsinu sem tciknaö var árið 1946 grotnar nú niour I

geymslu upp á Vatnsenda. Verða örlög nýja útvarpshússins þau

sömu?

útvarpsins sagði einnig ao málið

hefði verib illa kynnt, bæöi meðal

starfsmanna útvarps og sjón-

varps og meðal almennings. Þess

vegna tryöu menn hverju sem

vaeri um húsiö. A6 þetta væri

óskaplegt bákn og þar fram eftir

götunum.

Vilhjálmur Hjálmarsson arki-

tekt taldi einnig að mikið vantaði

á i sambandi við kynningu.

„Við höfum kvartað yfir þvi við

okkar hönnunarstjóra Karl Gub-

mundsson verkfræðing, að tak-

markaður hópur starfsmanna

hafi komið þarna viö sögu" sagði

Vilhjálmur. „Akvarðanir eru

teknar ofanfrá og það er eins og

það vanti eitthvert upplýsinga-

flæði þarna á milli. Það er hægt

að taka heildarskipulagið og

segja „Þetta er eins og fótbolta-

völlur, þetta eru snarvitlausir

menn" og afgreiða málið á þann

veg. En spurningin er bara ekki

um heildarskipulagið. Það er

hægt að velja byggingarmagn

alveg eftir geðþottar

Bæði útvarp og sjónvarp

komast þar fyrir

Andrés Björnsson útvarpsstjóri

sagði það rangt að málið hefði

ekki verið kynnt, sagði að bæði

hefðu verið haldnir fundir með

yfirmönnum og almennum

starfsmönnum.

„En ég veit náttúrulega ekkert

um hvort menn hafa mætt á þá

fundi eða ekki,"  sagði hann.

Eitthvað virðist nú byggingar-

nefndinni samt hafa brugðist

bogalistin i kynningunni. Ætti þó

Rikisútvarpið að hafa alla mögu-

leika á að kynna málið fyrir ölluin

þorra þjóðarinnar bæði i útvarpi

og sjónvarpi ef áhugi væri fyrir

hendi.

Helgarpósturinn sneri sér til

Péturs Guðfinnssonar fram-

kvæmdastjóra sjónvarpsins og

spurði hann álits á hinu fyrirhug-

aða útvarpshúsi. Hann sagðist

búast við að koma mætti útvarpi

og sjónvarpi fyrir i nýja húsinu

svo vel færi.

Hefur það engin áhrif á ykkar

afstöðu til hússins að starfsmenn

sjónvarpsins eru þvi mótfallnir?

„Mér er ekki kunnugt um að

það hafi breytt neinu," sagði

Pétur. „Þetta er ákvöröun tekin

af útvarpsstjóra. Við getum ekki

sagt nei við þvi sem hann ákveð-

ur. Þetta er ein og sama stofnunin

og útvarpsstjóri hefur geysilegt

framkvæmdavald um mál Rikis-

útvarpsins."

Það vantar mikiö þegar

viljann vantar

Þrátt fyrir hið „geysilega

framkvæmdavald" útvarpsstjóra

gengur hvorki né rekur I bygg-

ingarmálum útvarpsins. Lóðin er

fyrir hendi, teikningar einnig og

peningarnir i Framkvæmdasjóði

útvarpsins nema nú 1.1 milljarði

að sögn Harðar Vilhjálmssonar

fjármálastjóra Rikisútvarpsins.

En hvers vegna i ósköpunum er

ekki byggt?

„Það vantar ekkert nema

viljann" sagði Hörður. „Og það

má segja að það vanti mikiö,

þegar viljann vantar."

Það er þó ekki viljann hjá þeim

útvarpsmönnum sem vantar. Það

er vilji Samstarfsnefndar um

opinberar framkvæmdir sem

ekki er fyrir hendi. Að minnsta

kosti hefur nefndin ekki gefið

leyfi sitt fyrir áframhaldandi

framkvæmdum. Formaður

nefndarinnar Brynjólfur Sigurðs-

son hagsýslustjóri var spurður

hvers vegna.

„Þaö var i byrjun ársins 1979 að

bréf kom til nefndarinnar þar

sem óskað var eftir þvi að fram-

kvæmdir yrðu hafnar við út-

varpshúsið"    sagði   Brynjólfur.

„Þegar málið var tekið fyrir

urðum viö þess áskynja að Rikis-

útvarpið yrði jafnframt aö fara út,

I aðrar framkvæmdir. Möstrin á

Vatnsenda reyndust vera að

hruni komin og það var séð að

byggja þyrfti nýja langbylgju-

stöð. Afstaða nefndarinnar var sú

að hún taldi óhjákvæmilegt að

gerð yrði grein fyrir heildarf jár-

festingarþörf útvarpsins, ekki

bara i sambandi við útvarpshúsið

heldur i sambandi við reksturinn i

heild. Hvað þyrfti að gera, hvað

ættiað gera fyrst o.s.frv. Svar við

þessu hefur aldrei fengist, þannig

að málið er búiö að vera i kyrr-

stöðu'.'

Kattarklór hjá Samstarfs-

nefndinni

Hörður Vilhjálmsson fjármála-

stjóri RUV sagöi hins vegar aö

þetta væri bara fyrirsláttur hjá

hagsýslustjóra. Samstarfsnefnd

um opinberar framkvæmdir hefði

ekkert með uppbyggingu dreifi-

kerfis sjónvarps og útvarps að

gera. Framkvæmdaáætlun Rikis-

útvarpsins væri borin undir

menntamálaráðherra árlega og

undirrituö af honum. Og Fjár-

laga- og hagsýslustofnun væri

fulikunnugt um framkvæmda-

áætlun Rikisútvarpsins næstu

þrjú árin.

„Hagsýslustjóri hefur fengið að

sjá framkvæmdaáætlunina, það

fullyrði ég"  sagði Hörður.

Andrés Björnsson útvarpsstjóri

tók i sama streng og Höröur Vil-

hjálmsson með það að það væri

menntamálaráðherra sem hefði

með dreifikerfið að gera. Og

sagði það vera algjör ósannindi

að Samstarfsnefndin um opin-

berar framkvæmdir hefði það

mái á sinni könnu.

„Þeir vita betur," sagði

Andrés. „Þeir eru að reyna að

klóra sig einhvern veginn Ut úr

þessu, en þetta er hálfgert kattar-

klór hjá þeim."

Geir Gunnarsson alþingis-

maður sagði þetta hins vegar

vera rangt.

„Samstarfsnefndinni koma við

allar framkvæmdir á vegum

rikisins, nema rikisstjórnin

akveði að þær skuli ekki gera

það"  sagði hann.

Framkvæmdasjóður á  að

byggja yfir Ríkisútvarpið

Brynjólfur Sigurðsson hag-

sýslustjóri   og   formaður   Sam-

.    ¦              J4/f>'*'



Grunnurinn aö útvarpshúsinu sem fyrirhugað er að byggja stendur

enn tómur eins og islenskra „menningargrunna" er siður. En bygging-

ar stofnana eins og Framkvæmdastofnunar spretta upp eins og gorkúl-

ur.

starfsnefndarinnar hélt einnig

fram að Framkvæmdasjóði

Rikisútvarpsins, þeim sem þeir

útvarpsmenn hafa viljað kalla

Byggingarsjóð, væri einnig ætlað

að standa undir fjárfestingum i

sambandi viö dreifikerfi Rikisút-

varpsins, samkvæmt lögum.

í lögunum um Framkvæmda-

sjóö útvarpsins segir svo:

„I sjóð er nefnist Fram-

kvæmdasjóður Rikisútvarpsins

skal leggja 10% af brúttótekjum

stofnunarinnar árlega. Fé fram-

kvæmdasjóðs skal verja til að

tryggja viðunandi húsnæöi og

tækjakost fyrir starfsemi Rikis-

útvarpsins"

„Við höfum skilið það svo að

Framkvæmdasjóður sé til þess

ætlaður að tryggja Rikisútvarp-

inu eigið húsnæði undir starfsemi

sina ásamt tækjabúnaði," sagði

Hörður Vilhjálmsson, fjármála-

stjóri Rikisútvarpsins, „en I dag

liggja þessir peningar inni á

vaxtaaukareikningum hjá Lands-

bankanum."

Þar sem mönnum bar ekki

saman um, til hvers Fram-

kvæmdasjóður Rikisútvarpsins

væri ætlaður sneri Helgarpóstur-

innsér til Gylfa Þ. Gislasonar, er

stofnaði sjóðinn i menntamála-

ráðherratíð sinni og spurði hann

að þvi hvort sjóðnum væri ætlað

að standa undir ölium fram-

kvæmdum Rikisútvarpsins.

„Þaö kom skýrt fram I fram-

söguræðu minni með frumvarp-

inu á sinum tima að þessi sjóður

skyidi notaður til þess að byggja

yfir stofnunina"                    ^

sagði Gylfi.                            W *

Stórbætf þjónusta við

GOÐA-

FOSS

...

' ':;..-

Opið kl.9-21

Helga daga

kl. 11-21 yfir

sumartímann

Bi<Es)

Utibú Kaupfélags Svalbarðseyrar við

GOÐAFOSS

veitir ferðamönnum margvíslega þjónustu:

Vistleg og rúmgóð kjörbúð

Viðlegubúnaður

Veiðibúnaður

Heitar pylsur — Kaffisala

Snyrting

BENZÍN OG OLÍUR

kaupfélag Svalbarðseyrar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28