Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 26.06.1981, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 26. júní 1981 HELGARINNAR LEIÐARVISÍR HELGARINNAR LEI Laugarásbíó:^- ★ ★ Kafmagnskúrekinn (The Electric Horseman). Bandarisk, árgerö 1980. Handrit: Robert Garland. Leikstjóri: Sydney Pollack. Aöal- hlutverk: Robert Redford, Jane Fonda, Willie Nelson, John Saxon. „Þegar á allt er litiö er kvöld- stund i Laugarásbiói ómaksins virði fyrir þá sem vilja góða af- þreyingu”. — BVS Fiflið: ★ — Sjá umsögn i Listapósti Austurbæjarbíó: O Viltu slást? (Every Wich way but outloose.) Bandarisk árgerö 1980. Handrit: Jeremy Joe Kronsberg. Leikendur: Clint Eastwood, Sandra Locke og apinn. Leik- stjórinn: James Frago. „Þessi mynd hefur verið sýnd við góða aðsókn viða um lönd. Clint og apinn trekkja. Enda má vart á milli sjá hvor er mennskari. Tarsan apabróðir er fluttur i steinsteypufrumskóginn og með- höndlar ibúana eins og ljón og krókódila. Fólki sem vill láta gæla við sinar lægstu hvatir er hér með bent á Clint og Clyde i Austurbæjarbiói. Clyde er apinn. Hann þekkist til dæmis á þvi, að hann sýnir ólikt fleiri svipbrigði en Clint”. — ÞB Háskólabió: ★ Mannaveiðarinn (The Hunter). Bandarisk, árgerð 1980 Handrit Ted Leighton, Peter Hyams. Leikstjóri: Buzz Kulik. Aöalhlut- verk: Steve MacQueen. Eli Wall- ach, Katryn Harrold, Le Var Burton. „...dapurlegt verður aö teljast að Steve MacQueen skyldi ljúka sinni starfsævi eins og hún hófst þ.e. i hlutverki hausaveiðara (bounty hunter)... t The Hunter er mjög af MacQueen dregið og augljóst að hann átti skammt eftir i viðureign sinni við sjúkdóm sem vildi frekar fá hann „dead” en „alive” ” — AÞ Mánudagsmyndin: ★ ★ Þriöja kynslóðin (Die Dritte Generation). Þýsk árgerð 1979. Handrit og ieikstjórn: Rainer Werner Fassbinder. Aðaihlut- verk: Hanna Schygulla, Udo Kier, Margit Castensen, Volker Spengler, Bulle Ogier og Eddie Constantine. „Ég er ekki Fassbinder sérfræð- ingur... En þótt hæfileikar mannsins séu augljósir sýnist mér mikið skorta á að þeir séu fullnýttir. Bak við allan bægsla- ganginn er einhver privat óham- ingja og bölsýni sem veldur þvi að þrátt fyrir gildar hugsanir og raunverulegar kenndir sem finna má i kvikmyndum hans, þá ganga Hafnarbíó: Makleg málagjöld: Bandarisk. Aöalhlutverk: Charles Bronson, Liv UHman og James Mason. Ég held að Liv Ullman hafi verið á hvinandi kúpunni þegar hún lék i þessari mynd. En ef þið viljið láta hana koma ykkur á óvart, þá er þetta myndin. Dæmigerð Bronson mynd, i spennandi og viðburðarika stilnum. Regnboginn: Lili Marlene, þýsk árgerö 1981. Leikstjóri Rainer Werner Fass- binder. Aöalhlutverk: Hanna Scygulla. Efni myndarinnar er sótt i sam- nefnt dægurlag sem var vinsælt á striðsárunum. Myndin fékk lé- lega dóma i Þýskalandi, en hver veit nema þessi mynd fái góða dóma hjá kvikmyndafrikum Helgarpóstsins. yfirborðið og færa til hafnar i New York. Og þetta er tæknilega gert svoleiðis, enda leikstjórinn oröinn reyndur i stórslysamynd- um eins og Airport. En allur um- búnaður þessarar björgunargerð- ar, langsótt hasarplott og lapþunn rómantik, er ekki eins tæknileg- ur.” — AÞ. ★ ★ ★ Capricorn One. Bandarisk. Leik- stjóri: Peter Hyams. Aöalhlut- verk: EUiott Gould, Karen Black, Telly Savalas. Ein af þessum hörkuspennandi og viðburðariku myndum. kemmtistaðir Glæsibær: Um helgina mæta allir glæsileg- ustu menn (konur = menn) lands- ins þvi það er hljómsveitin Glæsir Listidnaðarsýningin á K/arvalsstöðum gengur vel 13. júni opnaði á Kjarvals- stöðum listiðnaðarsýning, sem ber heitiö Leirlist, gler, textill, gull, silfur. Sýning þessi fékk mjög lofsamlega dóma hjá list- gagnrýnenda Helgarpóstsins i siðustu viku og hringdum viö í Þóru Kristjánsdóttur forstööu- konu Kjarvalsstaöa og spuröum hvernig aösókn aö sýningunni hefði verið. „Ég held að það sé óhætt að segja að sýningin hafi gengið mjög vel. Það er ekki selt inná sýninguna, þannig að það er erfitt að giska nákvæmlega á hve margir hafa séð hana. En ef við reiknum með þvi að fjórði hver maður kaupi sýningar- skrá, má segja að um 2000 manns hafi séð sýninguna fyrir siðustu helgi. Sýningin stendur til 23. ágúst, en i Kjarvalssal er sýning á myndum eftir Kjarval úr eigu Reykjavikurborgar.” — Hvaða fólk kemur helst á sýninguna? „Það er að sjálfsögðu alls konar fólk sem kemur og núna hefur verið mikið um erlenda ferðamenn. Svo hafa verið tón- leikar hjá Musica Nova þannig að tóhleikagestir hafa litið á sýninguna i leiðinni. Ég ætti kannski að geta þess að danskur gitarleikari Tom Methling er væntanlegur um næstu helgi með tónleika og ýmislegt fleira er i ráðum.” þær meira fyrir eldsneyti list- rænnar tilgeröar en einlægra, manneskjulegra tilfinninga... En hver hefur sinn smekk. Og sitt snobb” — AÞ Gamla bió: ★ ★ Farae. Bandarisk. Argerð 1980. Leikstjóri: Alan Parker. Hand- rit: Christopher Gore. Aöalleik- arar: Lee Currery, Barry Miiler og Irene Caras. Fame gerist i menntaskóla, eða öllu heldur i listaskóla á mennta- skólastigi, þar sem unnið er að þvi kappsamlega að búa til túlk- andi listamenn á sviði leiklistar, söngs, dans og tónlistar. Ahorf- andinn fylgist með nokkrum nemum frá þvi þeir innritast og þar til þeir útskrifast fjórum árum siðar. öðrum þræði er verið að fjalla um togstreituna milli hins aka- demiska listauppeldis og hinnar óheftu tjáningar rokkkúltúrsins, en annars er þetta skemmtimynd eins og þær gerast hvað bestar — iðandi af fjöri og lifsorku. Mynd sem áreiðanlega á eftir að falla i kramið hjá unga fólkinu hér á fróni. —BVS. Ormaflóöið. Bandarisk, aöaihiutverk: Don Scardino, Patricia Earce. Þetta mun vera ein af þessum hroilvekjum, sem er ekki ætluð viðkvæmum sálum. Eða venju- legu fólki. En sumsé fyrir óvenju- legt fólk. Lyftið Titanic — (Raise the Titan- ic) Bresk, árgerö 1980. Handrit Ad- am Kennedy, eftir sögu Clive Cussler. Aðalhlutverk: Jason Ro- bards, Richard Jordan, Alec Guinnes. Leikstjóri: Jerry Jam- eson. „Þessi mynd er eiginlega ekkert nema tæknilegt verkefni um það tæknilega verkefni aö lyfta sögu- frægu risaskipi af hafsbotni upp á sem sér um fjörið. Og viti menn! Það verður Rocky og töffarinn sem gógóa eins og trylltir hundar. Missið ekki af dýrslegri gleði. Sigtún: Það verða grýlurnar en ekki Leppalúðurnar sem sjá um grill- að fjör alla helgina. Nema sunnu- dag, þvi miður. Og eins og venju- lega þá er bingó kl. 14.30 á laugar- dag. Hver fær sjálfvirka þvotta- vél? ? ? ? ? Hótel Saga: A föstudag og laugardag fjöl- mennum við á söguslóðir Ragga Bjarna. Raggi verður i essssinu sinu og tjúttar að vanda. A merk- ir atlot þin, B merkir brjóstin þin.... P. essss það er lokað á sunnudag. Stúdentakjallarinn: Gvendur Ingólfs og félagar spila fram eftir fingrum á sunnudags- kvöldið. Munið pizzurnar og léttu vinin. Klúbburinn: Sigurður i Hafskip, kallaður Siggi sjómaður heillaði þorpdisirnar, á hverri höfn. Siggi fékk siðan haf- rótarbólgu, en vitiði hvernig hún lagaðist??? Jú, Siggi fór i Klúbb- inn þar sem Hafrót sá um fjörið og kýldi sándið i botn, og mun rót- in af sjúkdómnum nú vera hjöðn- uð niður. Vá! Hollywood: A föstudag og laugardag er ; diskótek en á sunnudag er réttur j maður á réttum stað. Yfir svona fréttum getur maður glaðst.. óðal: A föstudaginn verður Fanney i diskótekinu og mun þá spila kvennarokk. (Fylgisti ekki með?) Nú en eftir Sam-syrpuna á laug- ardag mæta allir i diskóið hjá Fanney en að þessu sinni spilar hún karlarokk. Hvað gerist svo á sunnudag? Jú, enn einn sumar- sveinninn verður valinn og kval- inn og Vikingur mætir i Óðal, en það mun vera einhver sælgætis- kynning. Engin hetja eða þannig sveinarnir sjá um hetjudáðirnar. Nú svo verður þarna einhver verðlaunaafhending úr Sam- syrpunni. Snekkjan: Og hvað haldiði! Dóri feiti sem nú ætti að fara að fara i megrun finnst mér, verður með diskóið en að þessu sinni ætlar hann að spila hæga tónlist með sérstöku tilliti til fólks sem hefur við sama vandamál að striða og hann sjálf- ur. Djúpið: Það verður létt sveifla á fimmtu- dagskvöldið i Djúpinu, þvi nú er það hljómsveitin Nýja Kompaniið sem ætlar að leika af fingrum fram. Og ef að það er ekki nóg sem ég mundi nú segja, þá er allt- af hægt að fá sér eina lauflétta. Hótel Borg: Og eru það ekki litlu menningar- vitarnir sem ætla að mæta og dansa i takt við kynferðistónlist- ina sem Disa býður uppá. Býður einhver betur? Já, og það er Nonni Sig hann ætlar að syngja um Disu i Dalakofanum. Lindarbær: Þristar er hljómsveit i þróun. Þristar er tæknilega séð þrusu- grúppa og það sem meira er þá er Haukur trommari einn sá taktfastasti hér um slóðir. Og ekki má gleyma söngvurunum Mattý Jó og Gunnari Páli. Algjör negla. Þórscafé: Siðasta þema var trúir þú á galdra? Nú verður það hins vegar Drekkurðu kaffi? En Galdrakarl- ar verða samt mættir og verða með kaffikynningu. Skálafell: Léttir réttir og guðaveigar alla helgina. Jónas Þórir hjálpar upp á stemmninguna með léttum leik sinum á orgel staðarins. Naust: Það var eitthvað verið að segja mér frá andrúmsloftinu á Naust- inu. Ég frétti að það væri hlýlegt og virkilega notalegt. Tékkiði á þvi. Matseðillinn er ennþá fjöl- breyttur og Jón Möller leikur fyrir dansi og áti en barinn er lok- aður á sunnudag. Vin er böl. Hótel Loftleiðir: Blómasalur er opinn eins og venjulega með mat til 22.30 og Vinlandsbar eitthvað lengur. Leikhúskjallarinn: Nú er kabarettinn hættur svo nú eru það létt lög af plötum sem suða undir háspekilegum sam- ræðum allaballa og annarra kúlt- urhrossa Góða skemmtun. Akureyri Sjallinn er bestur staða á laugardögum. Ailtaf slangur matargesta, en fjöldinn lætur sjá sig um og upp úr miðnætti. Lifandi músik niðri, diskótek uppi. Mikil breidd i aldurshópum. Háid er vel sótt á föstudögum, yngstu aldurshóparnir áberandi á laugardögum. ókei á fimmtudög- um. örfáar hræður að drekka úr sér helgina á sunnudögum. Diskótek á miðhæðinni og neðstu, barir á öllum hæðum. Nú getur enginn ferðalangur orðið svo frægur að hafa komið til Akur- eyrar án þess að hafa litið i Háið. Matargestir fáir.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.