Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 26. febrúar 1982 helgarpústurinn eftir Guðlaug Bergmundsson Streep, Melvyn Douglas. Leik- stjóri: Jerry Schatzberg. Joe Tynan er ungur öldunga- deildarþingmaður i Washing- ton, og eins og svo margir á þeim bæ, á hann sér þann draum æðstan að ná á toppinn, auk þess sem hann leggur fram frumvarp til hjálpar atvinnu- lausum, svona rétt til að sýna lit. Joe Tynan er frjálslyndur maður. Og hvernig kemst frjálslyndur maður áfram i stjórnmálunum? Jú, hann er fremstur i flokki þeirra, sem berjast gegn þvi að nátttröll frá tima kynþáttaaðskilnaðar kom- ist til æðstu valda og metorða. Joe Tynan vinnur sem sagt eins og skepna, heldur framhjá konu sinni með aðstoðarstúlku sinni, og vanrækir fjölskylduna, sem býr einhvers staðar fyrir utan Washington. Joe Tynan er þvi ekki heima nema um helgar og þó ekki allar. JoeTynantekstaðkoma iveg fyrir að svertingjahatarinn Anderson komist i hæstarétt, og tekur sú barátta tvo þriðju sjóbissness og það vita allir, og ekki er Alda að deila á það, þvi Joe Tynan tekur þátt i þeim leik á fullu. Hins vegar er kúltúr- leysi hins nýja ameriska þing- manns sýnt á afar skemmti- legan hátt. Melvyn heitinn Dogulas leikur hér gamlan skrögg, hálfruglaðan að þvi er höfundar myndarinnar vilja meina, sem á það til að slá um sig með tilvitnunum i franska klassikera. Að sjálfsögðu skilja hinir ekki bofs og hrista bara hausinn. Að hætti standardframleiðslu frá Hollywood er ekki hægt að setja neitt út á tæknilegu hlið- ina, nema hvað allt er óskap- lega ófrumlegt i alla staði. Eins og með fleiri ameriskar myndir, á ég bágt með að sjá hvaða tilgangi hún þjónar utan heimalandsins. Hún er aðeins fallegur spegill fyrir amerisku þjóðina, sem segir við sjálfa sig: Ferlega erum við liberal að stöðva helvitis negrahatarana. Svo vita þeir náttúrlega ekk- ert hvað er að gerast við bak- dyrnar. —GB V/GDÍSÍASÍ Kvikmyndir Listasafn alþýðu hefur nú sett upp sýningu á verkum Vigdisar Kristjánsdóttur vefara, en hún lést snemma á siðasta ári, þá 76 ára gömul. Umsjón með sýning- unni hefur haft Hrafnhildur Schram listfræðingur og er hún öll hin vandaöasta. Nær 40 verk prýöa veggi safnsins, auk A þessu timabili sýnir Vigdis bæöi heima og erlendis, fer i kynnisferðir til fjölmargra landa og stundar málaralist og vefnað jöfnum höndum. Af helstu sýningum á verkum hennar má nefna ; einkasýningu i Sýningarsalnum að Hverfis- götu 8-10, 1958, yfirlitssýningu i vinnuteikninga. Þá er brugðið upp á skerm æviatriðum og listferli Vigdisar, en hún fékk snemma áhuga á myndlist. A árunum 1920-24 stundaði Vigdis myndlistarnám i Reykjavik og var það i kvöld- skóla Stefáns Eirikssonar og Rikharðs Jónssonar. Þá sótti hún tima I oliumálun hjá Guð- mundi Thorsteinssyni (Muggi), siöasta árið sem hann kenndi. 1926 tók hún þátt i Samsýningu islenskra listamanna i Reykja- vik og 1930 sýndi hún vefnaðar- verk á Heimilisiðnaðarsýningu sem haldin var i höfuðborginni. Tvær greinar lista toguðust á i lifi Vigdisar og 1930 hefur hún nám i píanóleik viö Tónlistar- skólann i Reykjavik og heldur siðan tfl Þýskalands.Þardvaidi hún Ieitt ár við tónlistarnám, en stundaði jafnframt myndlist sina. Ibyrjun fimmta áratugar- ins innritast hún i Handiða- og myndlistarskólann og lýkur þaðan teiknikennaraprófi árið 1945. Þá heldur hún til Kaup- mannahafnar, á Konunglega Akademiið og dvelur I 6 ár við nám hjá Kræsten Iversen og siöan nemur hún myndvefr.að við Statens Kvinnelige Industri- skole i Osló (1953-55). tilefni af 65ára afmæli iistakon- unnar (Bogasal Þjóðminja- safnsins, 1969) og „Norræn vefjalist” á listahátiö 1974. Vigdis hafði að baki óvenju litrikan listferil og átti ekki auð- velt með að gera upp á milli hinna ýmsu greina. Tónlistin átti itök i henni og erfitt var að velja milli vefnaöar og málara listar. Þó er margt sem bendir til þess, að hún hafi valið rétti- lega listvefnaðinn. Það sést best á þessari yfirlitssýningu í Lista- safni ASt. Næmtauga Vigdisar fyrir fin- gerðum hlutum, sprottnum úr náttúrunni, þjóðsögum og ævin- týrum, viröist mér hafa fundið sig einkar vel i myndvefnaði, þar sem margslungnir og blæ- brigðarikir þræðir ná að tjá rómantiska lifssýn hennar. Vig- dis mun sjaldan hafa gert sig ánægða með þá liti einvörð- ungu, sem fengust á venjuleg- um markaði, enda var hún brautryðjandi i jurtalitun vef- bands. Þannig jók hún til muna litbrigði verka sinna og færði þau nær náttúrunni, sem hún var jafnan i náinni snertingu við. Ég tel að á þvi leiki enginn vafi, að lita- og efnisvali Vigdis- anförnum sex eða sjö mánuðum og hef ekki gert annað siðastliðna fjóra mánuöi”. Verk Steinunnar eru aöallega unnin úr leir, sem hún mótar á vinnustofu sinni, en aðstööu til hrábrennslu hefur , hún annars staðar i bænum. Endanleg brennsla fer hins vegar fram i ofni i garðinum heima hjá henni. Auk leirsins notar hún svo gips, dálitið af járni og gleri og ýmsa aðskotahluti. Hún segist mundu vilja nota gler meira en hún gerir, en það sé erfitt vegna aöstöðunn- ar. Mennirnir I myndum Stednunn- areru gjarna með alls kyns rör og vimet og mæla á lfkamanum og virðast þvi ekki gefa sérlega upplifgandi mynd af mannskepn- unni. Steinunn segir þó,að hún liti ekkert endilega á verk sin sem depressif. ,jÉg held að það fari eftir þvi hvernig þú skoðar þau”, sagði hún. En hvers vegna er henni sam- skiptaleysiö miili mannanna svona hugleikið? „Af þvi, að mér finnst það orðiö svo áberandi I seinni tið. Ég held, að ég sé ekki að halda fram, aö þetta þurfi aö vera svona, heldur að það þurfi það ekki. En auð- vitað er þetta ekki alltaf svo, þvi maður ýkir i þessum úrfærslum ”. — Hafa þessi verk þin eitthvað hjálpaö þér sjálfri? ,,Maður fær alltaf vissa útrás Steinunn og Draumurinn: útfærsla verksins birtist henni I draumi. Steinunn Þórarinsdóttir sýnir á Kjarvalsstööum: UM MANNINN, SAMSKIPTI OG SAMSKIPTALEYSI myndarinnar. Þá er fjölskyldu- lifið komið i rúst og allt bendir til.aðhver fari i sina áttina. Joe notar þvi siðasta þriðjung myndarinnar til að redda þeim málum og má ekki tæpara standa. Þaö er ekki fyrr en fimm sekúndum fyrir leikslok, að allt fellur i ljúfa löð, frammi fyrir æpandi skrilnum, og áhorfendur vikna. Ekki veit ég hvað hefur vakið fyrir Alan Aldaj- þegar hann Gvu hva éo er líbó! Laugarásbió: Tæling Joe Tynan (The Seduction of Joe Tynan). Bandarisk, árgerö 1979. Hand- rit: Alan Alda. Leikendur: Alan Alda, Barbara Harris, Meryl skrifaði handritið að mynd þessari, ef tilgangurinn hefur verið annar en sá, að fá að vera á tjaldinu svo tii allan timann. Efnið er nauðaómerkilegt, eða skulum við frekar segja efnis- meðferðin. Myndin segir okkur svo sem ekkert nýtt. Stjórnmái i Ameriku eru fyrst og Jremst Myndlist eftir Halldór Björn Runólfsson Steinunn Þórarinsdóttir mynd- listarmaður hefur hreiörað um sig I gömlu reiöhjólaverkstæði, þar sem hún hefur dundaö viö eins konar höggmyndagerð á undanförnum mánuöum. Af- raksturinn af vinnu sinni ætlar hún svo aö sýna á Kjarvals- stööum og opnar sýning hennar á laugardag. Þetta er önnur einka- sýning Steinunnar, en sú fyrri var haldin I Suðurgötu 7 áriö 1979. Helgarpóstsmenn litu inn til Steinunnar i vikunni og var hún fyrst beðin að segja frá sýning- unni. ,,Ég verö með ellefu verk á sýn- ingunni og þau eru öll tengd þemanu um manninn”, sagöi hún. „Þetta eru verkum manninn sem einstakling, einnig um sam- skipti hans við annað fólk, og samskiptaleysi. Mörg verkanna i Suðurgötunni voru um mig. Þessi eru það lika, en i viðara samhengi. Sum þeirra eru þó mjög persónuleg. Ég hef unnið þessi verk á und- við að skapa hluti, og min viðhorf hafa breyst. En verkin hafa örugglega mikið að segja þar sem þau eru töluverður partur af líf- inu”. — Þú sagöir áðan að þú hafir eingöngu gert þetta siðustu fjóra mánuðina. Er hægt að lifa af þessu? ,,Ég fékk þriggja mánaða starfslaun, sem hjálpuðu mikið. Þetta er það mikið handverk, að þaö tekur sinn tima. Og núna er ég alveg á kúpunni. Mér hefur ekki tekist að lifa af þessu, og ég held, að það sé erfitt. Flestir listamenn eru með önnur störf samhliöa”. Hjálmar H. Ragnarsson stjórnar Háskólakórnum af miklum móö. Háskólakórinn til Irlands Háskólakórinn stendur i stör- ræöum um þessar mundir. Um þessa helgi heldur hann þrenna tónleika i Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut. Fyrstu tónleik- arnir eru i kvöld, fötudag, kl. 20.30, aörirtónleikar á morgun kl. 17.00og loks á sunnudag kl. 20.30. Stjórnandi kórsins er Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld. „Þetta eru tónleikar með is- lenskri tónlist eingöngu,” sagði hann I samtali viö Helgarpóstinn. „öll verkin, utan tvisöngvanna, eru yngri en tiu ára, og þjóðlaga- útsetningarnar eru frá þessu ári. Sum verkin eru frá þvi i febrúar og þess vegna alveg blaut úr pennanum.” Enþað eru diki eingöngu þessir tónleikar sem biöa kórsins, þvi hann er senn á förum til Irlands, þar sem sungið verður i öllum helstu borgum og háskólum landsins. Auk þess mun kórinn koma fram i útvarpi og kynna is- lenska tónlist og islenskt tónlist- arlif. Efnisskrá tónleikanna ytra verður hin sama og verður á tón- leikunum um þessa helgi. Kórinn heldur utan hinn 4. m ars og verður dvaliö á Irlandi i eina viku. Kórfélagar hafa að mestu leyti sjálfir aflað fjár til feröar- innar með alls kyns fjáröflunar- aðgerðum. Gefin voru út styrkt- arkort og auglýsingablað með menningarlegu efni. Auk þess fengust styrkir frá menntamála- ráðuneyti, borgarráði og háskól- anum. Efnisskrá tónleikanna i Félags- stofnun stúdenta er mjög fjöl- breytt. Þar er að finna islensk þjóðlög, tvisöngva úr þjóðlaga- safni Sr. Bjarna Þorsteinssonar, ogönnurþjóölög.semHjálmar H. Ragnarsson hefur útsett. Útsetn- ingar þessar hafa ekki áður heyrst opinberlega. önnur verk eru; Heyr himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Gamalt vers eftir Hjálmar H. Ragnars- son,Tvö kórlögi minningu Benja- mins Brittens eftir Atla Heimi Sveinsson, og er það frumflutn- ingur, Á þessari rimlausu skegg- öld eftir Jón Asgeirsson, Fimm mansöngvar úr Kantötu IV eftir Jónas Tómasson, Tveir madri- galar eftir Atla Heimi og Corda Exotica eftir Hjálmar H. Ragn- arsson, og er þetta frumflutning- ur verksins. ar, uppbyggingu verka hennar og úrvinnslu, hafi betur -hentað vefnaöur en málaralist. Þar fann hún ólikar lausnir á aöskiljanlegustu vandamálum listtjáningar sinnar og notaði ýmsa kosti s.s. myndvefnaö, krossvefnað og röggvavefnaö. Þegar sýningin er athuguð, sést vel að Vigdis hefúr farið eigin leiðir i' iist sinni. Fátt bendir til þess, að hún hafi oröið fyrir miklum áhrifum frá þeim stefnum, sem efstar voru á baugi i' heimslistinni. Hvergi er að sjá neina togstreitu milii óhlutbundinnar og figúrativrar iistar i' verkum hennar. Hún notar alls konar stilbrigði jöfn- um höndum, án þess að myndir hennar tapi nokkru sinni persónulegum blæ. List Vigdi'sar ber vott um djúpa virðingu fyrir gróand- anum, öllu þvi sem hrærist, hvort heldur er i náttúrunni eða sögu þjóöarinnar. Með þessari sýningu gefst nýrri kynslóð tækifæri á aö kynnast verkum þessarar sérstæðu listakonu. „List Vigdisar ber vott um djúpa viröingu fyrir gróand- anum”, segir Halldór Björn um sýningu Vigdisar.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.