Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 17.05.1984, Blaðsíða 18
Islensk klassík GESTI R LISTAHATIÐAR '84 Akjarvalsstooum Tiu islenskir myndlistarmenn sem starfaö hafa erlendis undanfarna aratugi syna malverk. skulptura. videolist og fleira 10 Islendingar búsettir erlendis Lokið er frágangi á röð tónleika á Listahátíð þar sem rjóminn af ís- lenskum klassíkerum kemur fram. Þetta er hið „föngulegasta lið“, segir okkur Guðbrandur Gíslason hjá Listahátíð, og nefnir nokkur helstu atriðin á þessari dagskrá. Gunnar Kvaran cellóleikari verður með tónleika í Bústaða- kirkju sunnudaginn þriðja júní, en Gunnar Kvaran. þar hefur hann ákveðið að draga með sér upp í kórinn átta nemend- ur sína og aukinheldur söngkon- una Elísabetu Erlingsdóttur. Kvintett Jóns Sigurðssonar verður að leik á sama stað þann fimmta júní, en Helga Ingólfsdóttir á öðrum stað þann sjöunda; nefni- lega með sembaltónleika í Krists- kirkju. Helga Ingólfsdóttir. Þá leikur strengjasveit Mark Reedmans í Bústaðakirkju ellefta júní og þessari tónleikaröð lýkur svo með samleik þeirra Péturs Jónassonar gítcirleikara og Hafliða Hallgrímssonar cellóleikara í sama guðshúsi þann þrettánda júní. Allir áðurnefndir konsertar hefjast klukkan háilfníu að kveldi. Elísabet Erlingsdóttir. Framkvæmdastjóm Listahátíð- ar í Reykjavík 1984 hefur í sam- vinnu við stjórn Kjarvalsstaða boðið 10 íslenskum myndlistar- mönnum, sem búsettir hafa verið erlendis undanfama áratugi, að sýna verk sín á Kjarvalsstöðum nú í sumar. A sýningunni verða málverk, teikningar, skúlptúrar og mynd- verk af ýmsu tagi, svo og mynd- bönd. Þeir sem eiga verk á sýningunni em: Erró sem kemur frá París (með málverk) Louisa Matthiasdóttir frá New York (með málverk) Kristín og Jóhann Eyfells frá Flor- ida (með skúlptúra og fleira) Steinunn Bjarnadóttir frá New Mexico (með myndbönd o.fl.) Tryggui Ólafsson frá Kaupmanna- höfn (með málverk) Hreinn Friðfinnsson frá Amster- dam (með myndverk ýmiss konar) Sigurður Guðmundsson frá Amst- erdam (með skúlptúra o.fl.) Kristján Guðmundsson, sem bjó lengi í Amsterdam en er fluttur heim og Þorður Ben Sveinsson, sem kemur frá Dússeldorf (með teikn- ingjir o.fl.). Sýningin kemur til með að fylla hvern krók og kima Kjarvalsstaða og taka part af Miklatúni. Sýningin verður opnuð laugar- daginn 2. júní n.k. Listamennirnir eru væntanlegir til landsins vel fyrir opnun sýning- arinnar, og er gert ráð fyrir að þeir verði allir viðstaddir opnunina. POPP Svefnlausir á puttanum Roger Waters - The Pros And Cons Of Hitchhiking Það er skammt stórra högga á milli hjá liðsmönnum Pink Floyd um þessar mundir. Fyrir nokkrum vikum sendi Dave Gilmour frá sér sólóplötu og nú hefur Roger Waters sent frá sér eina slíka og ber hún yfirskrift- ina The Pros & Cons of Hitchhiking. Það leynir sér ekki á þessum plötum að þar eru liðsmenn Pink Floyd á ferðinni, en samt sem áður eru þær mjög ólíkar. Gilmour- platan minnir kannski meira á Pink Floyd áður en þeir fóru að senda frá sér sögu- plötur (concept albums) en Waters-platan sver sig mjög í ætt við síðustu plötur hljóm- sveitcU'inneu', og þá einkum þeirrar nýjustu, The Final Cut. Það er óhætt að segja að The Pros & Cons Of Hitchhiking er mun betri plata en The Final Cut, þótt að mörgu leyti séu þetta svipuð verk. Sérstaklega er það eftirtektar- vert að Waters virðist vera orðinn mjög staðnaður sem lagcismiður. Einnig er rödd hans fremur leiðigjöm og raunar finnst mér Gilmour mun betri söngvari, þótt hcinn hafi lítið fengið að spreyta sig á því sviði á síð- ustu Pink Floyd-plötum. Þá er ég ekki sáttur við að Waters þurfi að láta allar plötur sem hann sendir frá sér innihalda heila sögu í stað-styttri verka. Þá em upptaldir helstu gallar plötu þess- arar og þótt þeir kunni að virðast stórvægi- legir, þá em kostimir stærri, sem gerir það að verkum að hér er um hið ágætasta verk að ræða. Það sem einkum gerir plötu þessa jafn góða og raun ber vitni, er að hljóðfæra- leikur er cúlur sérlega góður. Útsetningar em einnig góðar og á þann veg að hljóð- færaleikararnir fá virkilega að njóta sín. Waters hefur kallað sér til aðstoðar marga fræga og hæfa menn. Fyrstan skal telja gítarleikarann Eric Clapton, sem fer víða á kostum. Það er langt síðan ég hef heyrt Clapton leika jafn kraftmikið og hann gerir á þessæi plötu. Hann stingur inn nett- um nótum hér og þar, auk þess sem stór hluti sólóa í verki þessu er leikinn af honum og þá annaðhvort á rafgítar eða dobro. Aðr- ir sem mikið koma við sögu em Andy Bown sem leikur á Hammond-orgel og 12 strengja gítar. Trommurnar lemur Andy Newman. David Sanbom blæs í saxófón og er sóló hans í 450 AM (Go Fishing) sérlega kraft- mikið og gott. Ray Cooper sér urn ýmiss konar ásláttcU'Ieik. Michael Kamen leikur á pícmó auk þess sem hann útsetti fyrir hljómsveitina, sem hann stjómar. Em þess- ar útsetningar hans nú mun sparlegri en á The Final Cut, þar sem þær hreinlega kýldu niður tónlistina í stað þess að lyfta henni eins og núna. Um bakraddir sjá þær Made- leine Bel, Katie Kissoon og Doreen Chanter og bjarga þessar raddir takmörkuðu radd- sviði Waters mjög mikið. Þá er þess ógetið að Waters leikur á ryþmagítar og bassa. Því má heldur ekki gleyma að allmikið er notast við hljóðeffekta og vissulega er Waters snillingur í notkun slíkra aukahljóða í tón- Iist sinni, en sumir þeir effektar sem hér er notast við hcifa áður heyrst hjá honum, svo sem klukkutif, mótorhjól og skvaldur en það breytir því ekki að þeir em nú rétt notaðir sem áður. The Pros & Cons Of Hitchhiking er sem sé í flesta staði vel lukkuð plata, sem ætti að falla Pink Floyd-aðdáendum vel í geð. Sjálf- um finnst mér það ekki minni kostur að þetta er einhver besta Clapton-plata sem Iengi hefur komið út. King Crimson -Sleepless Sleepless er þriðja platan sem King Crimson senda frá sér eftir að Robert Fripp endurstofnaði hljómsveitina árið 1981. Þess má líka geta að aldrei áður hefur King Crimson sent frá sér þrjár plötur í röð án þess að breytingar hafi orðið á mannaskipan hennar. Fyrri plötur þessarar nýju hljóm- sveitar heita Discipline og Beat og em það í marga staði hinar ágætustu plötur, þó vissulega standi þær alllangt að baki því besta sem út hefur komið undir nafni King Crimson, og detta mér þá fyrst í hug plötur eins og In The Court Of The Crimson King, Lizard og Larks Tongues In Aspic. Um Sleepless er það að segja að mér finnst hún standa Discipline og Beat nokk- uð að baki. Fyrri hliðin er léttari hluti plöt- unnar og er þar að finna fimm lög. Er greini- legt að þar fer mest fyrir áhrifum gítarleik- arans og söngvarans Adrian Belew. Er þessi hlið mun áheyrilegri en hin síðari, en samt sem áður hef ég heyrt kraftmeiri leik frá þeim í lögum sem svipar til þessara og sér í lagi hafa sólóin hjá Belew oft verið betri. Seinni hliðin er að stofni til þungt efni, sem að mestu er án söngs. Nú er það ekkert nýtt að efni sem þetta sé að finna á plötum King Crimson og oft hefur það verið meðal þess besta sem á þeim hefur verið að finna. Nú bregður svo við að þessi þáttur er kraft- laus, litlaus og blátt áfram leiðinlegur. Þetta virðist allt hálfgert kák, ef undan er skilin ný útgáfa af laginu Larks Tongues in Aspic, en þessi nýja útgáfa er þó til muna kraftminni en sú sem kom út fyrir ellefu árum. Frá því hin nýja King Crimson var stofnuð hef ég verið að bíða eftir verulega góðri plötu frá þeim og með Sleepless finnst mér þeir fjær því að gera slíkan grip en nokkru sinni áður. ,,Vandaður hljóð- færaleikur og snjall- ar útsetningar gera einkum hina nýju plötu Roger Waters að góðri vöru,“ segir m.a. í dómi Gunn- laugs Sigfússonar. 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.