Helgarpósturinn - 04.10.1984, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 04.10.1984, Blaðsíða 12
Hafsteinn Austmann listmálari í Helgarpóstsviðtali eftirÞórhatlEyþórsson mynd JimSmart Gamli Skerjafjörðurinn er líkastur dálítilli vin íþeirri auðn sem myndast af einskismannslandi Vatnsmýrarinnar annars vegar og dauðasvæðis flugbrauta Reykjavíkurflugvallar hins vegar. Húsaþyrpingin sem getur að líta á þessum stað er einhvem veginn á skjön við önnur hverfi þessarar borgar, kannski þess vegna tilvalinn staður fyrir listamenn að búa á. Það hefur að minnsta kosti Hafsteini Austmann listmálara þótt — og hann hefur ekki látiðþar við sitja að eiga þarna hús, heldur reisti hann sér fyrir fáum árum forláta vinnustofu sömuleiðis. „Á þetta nokkuð að vera œvisaga?“ spyrHafsteinn mig á meðan hann skenkir kaffi og meðþví. Ætli þetta verði ekki fremur svona viðtal af tegundinni „í fáum dráttum“, málaraferill Hafsteins Austmanns er orðinn alllangur. Á Kjarvalsstöðum hefur hann að undanförnu verið með sýningu á myndum frá þrjátíu ára ferli. „Það er ekkert úrval,“ segir hann, „heldur aðeins vörður á lífs- leiðinni, valdar afhandahófi. “ Samtímis þeirri sýningu opnaði Hafsteinn sýningu á nýlegum vatnslitamyndum í Gallerííslensk list á Vesturgötunni. — Fyrst langar mig til að vita hvaða Aust- mann Hafsteinn hefur að geyma. „Það var heppileg tilviljun fyrir mig,“ svarar Hafsteinn sposkur á svip, „að ég skyldi ekki þurfa að taka mér sérstakt listamannsnafn, en fá þetta í skírnargjöf: Austmann. Nafnið er lík- lega síður til komið af því að ég eigi til aust- manna úr Noregi að teija en af þeirri staðreynd að ég er fæddur austur á Vopnafirði; ég er hálfur Austfirðingur og hálfur Sunnlendingur. Ekki er loku fyrir það skotið að foreldrar mínir hafi verið með hugann við roðann enn lengra í aust- urátt þegar þau voru að velja mér nafn, en þau voru víst heldur á róttækari kantinum þcir sem pólitík var annars vegar. Allt um það — þrátt fyrir austrænuna hef ég alið aldur minn meira og minna hér syðra frá fjögurra ára aldri.“ — í inngangsorðum að listaverkabók um Kjarval sem Helgcifell gcif út fyrir margt löngu spurði Halldór Laxness: „Hvert var það undur sem rak úngan svein á afskektu landshomi fyrir fimtíu árum til að fara að búa til málverk?” Þegar Hafsteinn Austmann var að alast upp voru að sönnu breyttir tímar hér á landi frá því sem verið hafði í æsku Kjarvals,- engu að síður var það ugglaust djarft hugsað hjá unglingi í gagnfræðaskóla í kringum 1950 — jafnvel þótt drátthagur væri — að einsetja sér að gera myndlist að lífsstarfi. Hafsteinn rifjar upp að hann hafi verið fsirinn að hafa gaman af að n <da eitthvað um tíu ára gamall. „Og í gagntí , :óla var þetta orðin ástr Sa. Það er í raunirmi verkefni sálfræðinga að tinna út hvers vegna þvíumlíkt getur gripið mann svo gersamlega að ekkert annað komist ■ð. E auk þess átti ekki 'uinnstan þátt í því að c.g íxí éð að leggja út ssa braut — ég var orðinnalv.-i ímiim jksextánára—aðég var af. ::!ega heppin; með kennara. Það var einkup' rphéðimi idsson teiknikennari sem mig til a era ódeigur að haida áfrant lála,- hann hefur verið næmur á hversu ■ 'inn var bn andi. Hann taldi ekki eftirsé • ieyfamérað • natilsínmeðmynd- ir — ei! '■ iíka óspar krítíséra þær. ixtks kani: á5- vera. að ára.« n sem ég sýndi í öðrui nsgreinuns i bent til þess að ég . : frekar.'að hei, dg nhverri þeirra í framúöinni heiduren; ;..stir ni.“ G.ir/ ■Xt'ao'i knr,.öv>j: Ot,*jS maa. ivt, • v.j , . i — En dæmi hverra gat ungur áhugasamur Hafsteinn Austmann fylgt í list sinni? „Sextán — sautján ára, líklega á þeim aldri sem maður'er einna hrifnæmastur, byrja ég að fara á sýningar. Um það leyti voru margir þeirra sem síðar kölluðu sig Septem-hópinn að koma heim frá útlöndum. Það sem þeir voru að gera þá var fyrir mér svipað því sem ég hugsa að Nýja málverkið sé í augum ungu mannanna núna: það var eins og þetta væri það sem ég hefði alltaf verið að bíða eftir. í Septem-hópnum voru spámenn þess tíma. Maður leit upp til þeirra fyrir það hvað þeir voru kjarkaðir og höfðu mikla ást á listinni. Listin var þeim allt, og fyrir hana voru þeir reiðubúnir að hætta efnahags- legu öiyggi, fjölskyldulífi og öllu öðru. Síðustu og verstu tímar Eg kynntist snemma Þorvaldi Skúlasyni, og fann strax og þótti mikið til um hversu heiðar- legur hann var í list sinni og tók starf sitt alvar- lega. Menn eins og Þorvald skipti meiru að mála en sýna. Núna er aftur á móti oft líkast því að fólk vilji halda sýningu um leið og lágmarks- kvóta er náð. Og um sölu var þá naumast að tala; Snorri Arinbjamar, til dæmis, seldi sára- lítið, og sama var að segja um Gunnlaug Schev- ing íram undir 1960. En það var til marks um þann hug sem var í þessum mönnum, og ég dáðist að, að þeir hvikuðu hvergi, þótt fæstir þeirra gætu gert sér vonir um nokkur laun fyrir vinnu sína. Og ef við nú förum lengra aftur í tímann: Kjarval slær ekki í gegn fyrr en í lok seinna stríðs, en er útskrifaður úr akademíunni í Kaupmannahöfn, að mig minnir, í endann á fyrra stríði! Mitt eigið stríð hefur hins vegar staðið í þrjá- tíu ár. Ætli ekki sé óhætt að segja að það hafi verið indælt stríð, þrátt fyrir að ekki hafi virst blása byrlega framan af. Mér finnst mikils virði að hafa tekist að stunda málunina sem aðal- starf, þótt ég hafi að vísu alltaf þurft að vinna að öðru meðfram, þá aðallega kennslu. Núna er gjarnan haft á orði að þetta séu hinir síðustu og verstu tímar og allt sé að dragast samcin; svo sé komið að fólk geti ekki lengur leyft sér listina. En hefur þetta ekki ævinlega verið svona? Að minnsta kosti voru horfur ekki bjartari þegar ég var að byr ja minn feril. Það eina sem menn hafa .luw, u'j auTifctdi r« r* 'Tt "•>' •« r.» t > *• r- ■ i r* ér' * upp úr krafsinu með þessu eilífðartali um hvað allt sé bölvað er að þeim líður verr en vera þyrfti, ekki satt?“ — Nógu satt, býst ég við. En skyldi ekki okkar kynslóð samt vera ólánsamciri en hin fyrri, vegna þess að við þekktum aldrei Laugaveg ellefu? Það er kannski ekki að undra að á þessu augnabliki hringir síminn. Að loknu símtalinu veltir Hcifsteinn vöngum stundcirkom, en tekur svo aftur upp þráðinn: „Laugavegur ellefu — já. Þar kostaði molakaffið túkall, og átti maður þó ekki alltaf fyrir því. Þetta var kaffihús, eins og hvorki hefur verið til fyrr né síðar hér í bænum. Við mynduðum klíku nokkur saman og kölluð- um okkur Sólskinsdeildina. Þegar ég var í Myndlistaskólanum umgekkst ég alltaf miklu meira nemendur Þjóðleikhússkólans en mynd- listarnema, líklega af því að konuefnið mitt Guðrún Stephensen var í þeim skóla. Eins og nærri má geta vom menn óskaplega heitir í pólitík; þegar farið veir út í þá sálma í samræð- unum var Geir Kristjánsson rithöfundur jafnan lífið og sálin í hópnum, rnan ég eftir. Auðvitað var haft vín um hönd, en það var aldrei neitt fyllerí að ráði. Það var setið heima hjá þeim sem réðu yfir skástu vistarvemnum og hlustað á plötur — svona á milli diskúsjóna. Grafið fyrir klóaki Árið 1951 innritaðist ég í Myndlistaskólann, en hann var þá til húsa á Grundarstíg 4. Vægast sagt var skólinn mjög frábmgðinn því sem núna er — nemendur miklu færri og aðstaðan næsta fátækleg. En við vorum engu að síður látin gera þar allt mögulegt, meira að segja batík og silki- þrykk. Synd væri að segja að allir hafi verið jafn brennandi í andanum. Einni stelpu man ég til dæmis eftir sem var þama af þeirri ástæðu einni, að hún sagði, að skólinn var fyrir hádegi; hún var morgunsvæf með afbrigðum, en vildi pína sig til að vakna á morgnana. Eftir að hafa verið í Frístundcimálcu-askólcin- um gamla tvo vetur fór ég í Handíða- og mynd- listaskólann, sem svo hét þá; síðar var nafninu snúið við, eins og kunnugt er, og myndlistir hafðar númer eitt, en handíðir númei tvö... í skólanum var ekki verið að halda að manni neinum stefnum. Maður lærði nauðsynlegustu undirstöðuatriði í tækni og myndbyggingu; þar átti ekki síst hlut að máli Sigurður Sigurðsson, sem þá var kennari við skólann. Hann var ekki þess konar kennciri sem tekur nemendur og hengir þá upp á löppunum. Hans kennsluaðferð fólst fremur í að segja sögur, á meðan hann sýndi manni hvemig ætti að bera sig að, ef þú skilur hvað ég meina. Prívat var Sigurður ex- pressjónisti — Cézanne og Matisse, það vom hcms postular, og ekki nema gott eitt um það að segja. Utan skólans málaði maður töluvert, en í þá daga kom ekki til greina að sýna fyrr en búið var að klára námið. Erró, til dæmis, og Bragi Ásgeirsson, sýndu hvorugur héma heima fyrr en þeir höfðu verið úti. Það var nokkuð viðtekin regla að fara ekki á flot með slíka hluti fyrr en í fyllingu tímans, ef þannig má komast að orði.“ — Og þar kom að einnig Hafsteinn Austmann hleypti heimdraganum og hélt út í veröldina. Um þær mundir vom ekki námslánin til að greiða götu námfúsra unglinga með útþrá, ekki svo mikið sem víxillán... „En ég held,“ segir Hafsteinn og omar sér við endurminninguna, Jtí.H .l <c.,,c.i, i i' j'i', i ‘., „c,: <: J.iól „að tengdamóður minni hafi tekist að pranga nokkmm myndum eftir mig inn á hrekklaust fólk sem hún þekkti til. Að auki aflaði ég mér dálítilla peninga með þvf að vinna í byggingar- vinnu, grafa fyrir klóaki vestur á Bræðraborgar- stíg, og loks varð ég svo forframaður að sýsla við að setja hurðir í viðbyggingu við Elliheimil- ið. Ég var hálft í hvom farinn að hugleiða hvort ég ætti ekki hreinlega að skella mér í smiðinn! íslendingar í París En haustið fimmtíu og fjögur hélt ég út, og tók stefnuna á París; þá var eldri dóttir mín nýfædd. Ég fór á Gullfossi, á öðm plássi að sjálfsögðu; við vomm þar ekki nema eitthvað um níu tals- ins farþegarnir. Á fyrsta farrými var hins vegar aðeins einn einasti maður, sem leiddist að von- um einveran og veir cillfaf að bjóða okkur fram í til sín. Þetta var sérstök ferð, maður var að fara í fyrsta skipti út fyrir landsteinana. í samfloti við mig alla leiðina til Parísar var fornvinur minn Jes Þorsteinsson, sem upphaf- lega ætlaði líka í myndlist, en skipti um skoðun og fór í arkítektúr. Eftir þrjátíu og fjögurra stunda lestarferð frá Kaupmannahöfn stigum við út og vorum í París. Þcir tóku einhverjir á móti okkur, en ég man ekkert hverjir það voru; ég kunni ekki orð í frönsku og var að flestu leyti eins og álfur út úr hól. Hitt er jafnvíst að vetrardvölin í París var dýrlegur tími. Ég gæti nefnt þér heila mnu af íslendingum sem vom samtímis mér í borginni: Sigfús Daðason, náttúrlega, og Rafn Júlíusson. Já, og Hilmar Jónsson, nú í Keflavík; hann bjó á hóteli rétt hjá mér og þreifst helst á allra handa grösum — einhvers konar náttúmlækninga- fæði, held ég. Einatt drakk hann bara soðið af kcirtöflunum sem hann eldaði sér, en ég naut góðs af — og át þær. Stundum tók hann þó stífari kúra, fastaði í lengri tímaog neytti einskis nema blávatns... Þama vom ennfremur lags- bróðir minn Emil Eyjólfsson og Snorri fiðluleik- ari Þorvaldsson; og Þorgeir Þorgeirsson kom einn góðan veðurdag labbandi frá Vínarborg með eitt handrit í mcil sínum og annað ekki. Mikill vinur minn var Gunncir Hermannsson arkítekt, hann settist að í París, býr núna út við Versali. Á dögunum sendi hann mér tvær mynd- ir eftir mig sem höfðu verið á sýningu í Salon de Récdités Nouvelles 1955. Sjálfur sá ég aldrei sýn- inguna, því að ég var þá farinn burt frá París. Jón Óskar kom hins vegar út um vorið og sá hana. Hann sagði mér seinna að myndimar mínar hefðu hangið á góðum stað og hann skildi ekk- ert í því að ég væri að æða heim strax. Það var Nína Tryggvadóttir, sem á þessum tíma var orðin þekictur listamaður í París, sem varð völd að því að mér var boðið að taka þátt í þessari sýningu, og sýndi mér að öðm leyti ætíð hina mestu vinsemd og áhuga.“ — Aðeins meira af andrúmslofti Parísar, stefnum þar og straumum! ,J París lét maður innrita sig í skóla, Academie de la Grande Chaumier. Eg skcil fús-. lega viðurkenna að ég var þar sáralítið. Þetta Vcir einkum staður, að mér fannst, fyrir vitlausa Amríkana sem höfðu mestan áhuga á að sem oftast væri skipt um módel — vildu cilltaf nýjar og nýjar stelpur að skoða. En ég vann töluvert á herberginu mínu, sem var á fimmtu hæð á hóteli við Rue de Lambre, þar sem Steinn Steinarr og fleiri góðir menn höfðu búið á sín- iíp;. .r«./i.r^v tuz.'öh: ó.'c. ; . . -» t' r t r I • i c. V'Jo

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.