Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 32
as PIZZAHUSIÐ GRENSÁSVEGI 10 108 R. Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni. Njótið þægilegra veitinga í þægilegu umhverfi Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu heim eða pantið í síma 39933. eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur myndir Jim Smart G. Þórarinsson að iðnaðarráð- herra, en landsbyggðarmenn munu ekki una slíkri ráðstöfun. Ennfrem- ur er talið að Steingrímur geti ekki lengur gengið fram hjá þeim Páli og Guðmundi Bjarnasyni við skipan ráðherra. Á ráðherrabiðlista Sjálf- stæðisflokksins eru tilnefndir menn eins og Pálmi Jónsson, Halldór Blöndal og Ólafur G. Einarsson. Þeir gætu þurft að bíða lengur ... Talið er að æ meiri líkur bendi til þess að núverandi stjórnarflokk- ar myndi einnig næstu ríkisstjórn. í þröngum hópi eru menn þegar farn- ir að reifa ráðherraskipan, — og nýj- asta hugmyndin kemur úr leyndum stað áhrifamanna. í þeirri ráðherra- skipan er gert ráð fyrir málamiðlun milli eldri og yngri deildar í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins. Þannig kæmi Friðrik Sophusson nýr inn í ríkisstjórnina, en ráðherralisti Sjálf- stæðisflokksins yrði þann veg skip- aður í heild: Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra, Friðrik Sophus- son menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson sjávarútvegsráð- herra, Ragnhiidur Helgadóttir, heilbrigðisráðherra, Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra. Ekki er talið gerlegt fyrir ungu forystuna að gera meiri brey tingar á ráðherra- lista sínum en þetta vegna jafnvægis sem þarf að gæta milii kynslóða og landshluta. Af hálfu Framsóknar- flokksins kæmu hins vegar fleiri ný- ir menn inní ríkisstjórn: Steingrím- ur Hermannsson, utanríkisráð- herra, Halldór Ásgrímsson fjár- málaráðherra, Páll Pétursson landbúnaðarráðherra, Guðmund- ur Bjarnason, iðnaðarráðherra. Ýmsir fleiri kostir um skipan þess- ara manna í ráðherraembætti eru fyrir hendi; þannig gæti Páll orðið menntamála- eða samgönguráð- herra, Friðrik dómsmála- og sam- gönguráðherra o.s.frv. Innan Fram- sóknar er talið að Steingrímur hafi mikinn áhuga á að gera Guðmund annan á 24.000 krónur en hinn á 85.000. LAUNÞEGAVERÐ — En er mikid aö gera? „Já, það hefur verið meira en nóg að gera, allt frá fyrsta degi. Að vísu verðum við vör við þann misskiln- ing að fólk haldi að hér fáist ekki fatnaður á launþegaverði og nokkr- ir koma bara til að skoða og kynna sé hvað er boðið upp á og hvað það kostar. Varðandi þessi silkipils sem við vorum að ræða um áðan get ég sagt þér að ein kona kom hingað í búðina og skoðaði föt en var alltaf að líta í kringum sig. Loks sagði hún mér ástæðuna: Henni hafði verið sagt að þessi pils kostuðu yfir 100.000 og væru geymd í glerskáp! — Önnur saga sem mér barst til eyrna hljóðaði á þá leið að það væri dyravörður við dyrnar sem sæi um að hleypa fólki inn í hollum! Fólk hefur greinilega ekki mikið við tím- ann að gera ef það nennir að búa til svona sögur! Annars skipta þær okkur í rauninni engu máli. Það fólk sem kemur hingað er að ieita sér að fatnaði en er ekki komið til að hneykslast. Dýr fatnaður á íslandi er ódýrari en sams konar fatnaður erlendis, það er alveg ljóst. Það er hins vegar ódýrari fatnaðurinn sem við getum fengið enn ódýrari í út- löndum, en virkilega vandaður fatn- aður er alltaf dýr. Ef sá fatnaður sem fólk leitar eftir fæst á annað borð á Islandi þá borgar sig að kaupa hann hér og margar konur sem versla við mig koma hingað áður en þær fara til útlanda, til dæmis á ráðstefnur, því þær vilja gjarnan spara sér tíma úti og sleppa við verslunarleiðang- ur." Guðlaug segir viðskiptavini sína vera á öllum aldri og úr öllum stétt- um. „Hingað koma til dæmis fram- haldsskólastúlkur að fá sér kjóla fyrir árshátíðir, karlmenn koma mikið hingað og þá gjarnan í fylgd með konum sínum. Annars finnst mér enginn aldurshópur áberandi." 32 HELGARPÓSTURINN Pad passaöi einhvernveginn ekki ad fara inn í Markus tískuhús í gömlu kápunni. Reyndar var ferd- inni ekki heitiö til aö kaupa nýja kápu heldur ,‘il aö fá stadfest vin- scelt umrœðuefni í saumaklúbbum í vetur. Það var hægara sagt en gert að finna Markus tískuhús þar sem það er uppi á fjórðu hæð í Austurstræti lOa. Ekkert skilti eða aðrar merk- ingar vísa leiðina en indæl af- greiðslukona i Torginu er greinilega orðin vön spurningunni: „Geturðu sagt mér hvar Markus er?“ „Gengið inn um járnhliöið hérna hægra megin og upp á fjórðu hæð.“ Svona háíft í hvoru hvarflaði að mér að snúa við þegar ég leit inn í glæsilegt verslunarhúsnæðið og einhvers staðar í undirmeðvitund- inni vaknaði minning þess að hafa einhvern tímann fyrir löngu komið inn í slíka verslun í útlöndum. PILS Á 45.000??? „Það að hafa versiun ofarlega í húsi er býsna algengt erlendis," sagði Guölaug Jónsdóttir eigandi „Markus tískuhúss" og eiginmaður hennar, Asgeir Ebenezarson tók í sama streng: „Það kom aldrei til greina að hafa verslun sem þessa á götuhæð. Það er kostur að vera svona hátt uppi því viðskiptavinir eiga að geta valið fatnað í ró og næði." Það er ekki orðum aukið að þarna ríki ró enda spilar litaval þar sterklega inn í. Guðlaug segir að húsnæðið hafi verið innréttað af Helgu Benediktsdóttur arkitekt og að sínu mati hafi tekist sérstaklega vel til. En hvaö er hœft í því ad á tísku- sýningu sem haldin var tveimur dögum fyrir opnun þessarar versl- unar hafi veriö sýnd pils sem kost- uöu 45.000 krónur og peysur í stíl á 35.000? „Það hlýtur nú að vera langt um liðið síðan þú heyrðir söguna!" segir Guðlaug. „Ég heyrði hana þannig að pilsin hefðu kostað um 100.000! En það rétta er hins vegar að á sýn- ingunni voru sýnd hringskorin pils úr alsilki og þau kostuðu nákvæm- lega 39.800 krónur. Þarna var um að ræða 9 lengdarmetra af silki svo það þarf ekki að koma á óvart þótt þau hafi verið dýr. Peysurnar í stíl við þau kostuðu eitthvað um 27.000 krónur að mig minnir. Hitt er rétt að þessar flíkur seldust strax..." í versluninni er seldur kvenfatn- aður m.a. frá þýska fyrirtækinu Uta Raash, en Uta er vel þekktur hönn- uður í heimalandi sínu og víðar. Guðlaug segir verðið á fatnaðinum í versluninni vera „milliverð, en svo er hægt að fá dýran fatnað. Verð- munur felst aðallega í því að í hinum dýrari fatnaði er um að ræða dýr og vönduð efni, s.s. alsilki og þær flíkur eru einnig oft með handbróderuðu skrauti, s.s. perlusaumi eða pallíett- um.“ Hún sýnir mér tvo síða sam- kvæmiskjóla máli sínu til stuðnings, DÝR BÚÐ í FELUM UPPI Á FJÓRÐU HÆÐ VIÐ AUSTURSTRÆTI FÁST PEYSURÁ 30.000 OG KJÖLAR Á 60.000

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.