Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 23
Rúrik Haraldseon í hlutverki Rómúlusar. Lárviðarsveigurinn, öðru fremur tákn hinnar keisaralegu dýrðar, orðinn blað- fár. (Mynd: Grímur Bjarnason, Þjóðleikhúsið.) Mikill maður Rómúlus Fyrsta frumsýning vetrarins hjá Þjóðleikhúsinu Þjóðleikhúsid frumsýnir á laugar- dagskvöldid fyrsta verkefni þessa leikárs, en það er Rómúlus mikli eftir Svisslendinginn Friedrich Durr- enmatt. Leikstjóri verksins er Gísli Halldórsson en með titilhlutverkið fer Rúrik Haraldsson. Leikritið segir fráRómúlusikeisaraRómarríkis, en hann varsíðasti keisari heimsveldis- ins, og um leið frá síðustu valdadög- um hans og þeirra sem honum fylgdu að málum. Þetta er stór og viðamikil sýning og í henni koma fram margir leikar- ar. Eins og fyrr segir fer Rúrik Har- aldsson með aðalhlutverkið. Sigur- veig Jónsdóttir leikur konu hans, keisarafrúna, og Lilja Þórisdóttir leikur dóttur þeirra hjóna. Aðrir sem nefna má til sögunnar eru t.d. Flosi Ólafsson, sem leikur innanrík- isráðherrann, Gunnar Eyjólfsson sem leikur keisara aust-rómverska ríkisins, sem kemur til Rómúlusar í leit að hæli sem pólitískur flótta- maður. Baldvin Halldórsson og Árni Tryggvason leika herbergisþjóna Rómúlusar, Sigurður Skúlason leik- ur hermarskálkinn, Karl Ágúst Úlfs- son leikur hermann, Magnús Ólafs- son fer með hlutverk buxnagerðar- meistara sem býðst til að bjarga rík- inu með peningum sínum. Að auki má nefna þá Arnar Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Benedikt Árnason og Þórhall Sigurðsson. Eins og fyrr var nefnt gerist leik- ritið á síðustu valdadögum Rómúl- usar keisara. Germanir sækja að ríki hans og hermenn falla unnvörp- um fyrir föðurlandið. Rómúlus er hins vegar hinn rólegasti og hefst ekkert að til að bjarga ríki sínu — mönnum sínum til mikillar mæðu. Hann hugsar einvörðungu um mat- inn sinn og hænsnin sem hann rækt- ar, enda kemur í ljós að hugmyndir hans um keisaradæmi og heims- veldi eru aðrar en títt er um menn í valdastöðum á borð við þessa. Verkið er einskonar blanda af hár- beittu gamni, ádeilu og um leið djúpri alvöru, þar sem höfundur Ieggur allan heiminn undir, þrátt fyrir að á yfirborðinu segi leikritið frá þessum forna keisara hins mikla rómverska heimsveldis. Skírskotan- ir höfundarins til sögunnar og ná- innar samtíðar eru augljósar og um leið verður meginviðfangsefnið í sjálfu sér tímalaust. Sem fyrr segir er frumsýningin þann 19da þessa mánaðar og með henni hefst leikárið hjá leikhúsinu, en óhætt er að segja að margt væn- legt eigi eftir að fylgja í kjölfarið þegar lengra líður á veturinn. -kk DJASS Bræöingur, rokk og pönk Það var mikið fjör í Hollywood fimmtudagskvöldið 3. sept. Þá dreif þar að hið ólíkasta fólk enda tónlistin fjölbreytt: bræðingur, rokk og pönk. Þar léku kvintett Björns Thoroddsen, Óðmenn og Sykurmolarnir að ógleymdum Halldóri Pálssyni, saxófónleikara, sem lengi hefur verið búsettur í Svíjsjóð. Eg er ekki frá því að þetta sé besta hljómsveit sem gítarleikar- inn góðkunni Björn Thoroddsen hefur boðið okkur að hlýða á. Sjálfur þenur hann gítarinn, Gammafélagi hans Stefán S. Stef- ánsson blæs í saxófón, Kjartan Valdimarsson, er numið hefur við Berkeley í Boston, var við hljóm- borðið og Mezzodrengirnir Jó- hann Ásmundsson og Gunnlaug- ur Briem á bassa og trommur. Tónleikarnir hófust á Draumi Bjössa, sem er einskonar kynning- arlag hans, og síðan var leitað fanga í Björn Thoroddsens samlede værker". Einn ópus af nýju kvartettplötunni, Fönkið í bænum, hljómaði mun betur þarna en á skífunni, rýþminn kraftmeiri og blástur Stefáns með ágætum. Svo kom Halldór Pálsson á sviðið og blés ísbrjótssömbuna hans Bjössa fyrst en síðan ballöðu: All of You eftir Cole Porter. Það gerði hann með slíkum ágætum að lengi verður munað þó undir- leikurinn hefði mátt vera ögn mildari: þetta var ballaða en ekki fönkópus. Ég hef ekki heyrt í Hall- dóri í rúman áratug og hann hefur eflst og þroskast í list sinni frá því hann hélt utan, þó minnst fengi maður að heyra þarna. Halldór þyrfti að blása eitt kvöld með gömlu félögunum úr Jazzklúbbi Reykjavíkur. Þegar Björn og félagar höfðu lokið leik sínum var komið að Óð- mönnum. Framúrstefnugrúppan gamla er farin að láta á sjá sem vonlegt er, enda gítarleikarinn Finnur Torfi Stefánsson búinn að leggja hljóðfærinu og strýkur í þess stað fiðlu og hittir því ekki Jó- hann G. og Ólaf Garðarsson í tón- leik á síðkvöldum. Það var gaman að heyra þá í Cream-skapi í blús- um meistaranna: Crossroads eftir - Robert Johnson og I’m So Glad eftir Skip James. Svo bættist Hall- dór Pálsson í hópinn og léð sveit- inni atvinnumannayfirbragð. Það var dálítið gaman að frjálsa spun- anum hjá þeim í lokin. Finnur Torfi upplýsti að stundum hefðu Óðmenn spunnið frjálst og látið tóntegundir og form lönd og leið. Ég man ekki til þess að íslenskir djassleikarar hafi leikið frjálst á þessum árum (frekar en í dag), svo þarna voru hinir sönnu fulltrúar „avantgardsins" í íslenskri rýþma- tónlist komnir fram í sviðsljósið. Sykurmolarnir voru síðastir á dagskrá og trúir stefnu sinni; aðal- atriðið er ekki að geta það heldur gera það, blés Einar Örn í trompet- inn. Og það furðulega gerðist: honum tókst að lyfta afmælinu með blæstrinum: það sem ég man best af Sykurmolasúpunni er þessi trompetblástur svo og trommu- leikur Sigtryggs. í minningu Sveins Ólafssonar Sveinn Ólafsson, saxófónleikari og lágfiðluleikari, er allur. Með honum er genginn góður drengur og tónlistarmaður; sagnasjór og húmoristi. Sveinn var í hópi fyrstu Islendinga er léku djass — svo stutt er saga þeirrar tónlistar hér- lendis. Hann fæddist á Bíldudal ár- ið 1913 og flutti til Reykjavíkur 1926. Á fiðlu lærði hann hjá Þór- arni Guðmundssyni og á saxófón hjá Jack Quinet, sem var þá með hljómsveit á Hótel Borg. Sveinn lék fyrst með Árna Björnssyni á Hótel Birninum í Hafnarfirði árið 1933, ári síðar leikur hann í Iðnó með Aage Lorange. 1936 leikur hann í hljómsveit Rosburrys á Hót- el Borg og síðan með Carl Billich á Hótel íslandi þar til hann heldur til Danmerkur 1938. Þá var með honum í för Vilhjálmur hertinn Guðjónsson, en þeir voru einna helstir íslenskra djassleikara þar til Gunnar Ormslev og unga kynslóð- in komu til sögunnar. Heimkomn- ir léku þeir í hörkubandi á Borg- inni sem Jack Quinet stjórnaði. Þar léku einnig Þórir Jónsson, Jó- hannes Eggertsson og Páll Dal- man, hörku trompetisti vestur-ís- lenskur. Sveinn hélt aftur til Danmerkur 1946 að læra meira í lágfiðluleik og þar heyrði hann Don Redman- bandið og hitti Don Bayas, sem blés í þessum mjúka og volduga hawkinsstíl eins og Sveinn. Sveinn lék í Útvarpshljómsveit- inni og allt frá stofnun Sinfóníunn- ar strauk hann þar fyrstu lágfiðlu. Ég heyrði Svein blása eitt kvöld fyrir nokkrum árum á Hótel Sögu. Jazzklúbbur Reykjavíkur var þar með tónleika og Sveinn leit inn með saxófóninn eftir að hafa leik- ið með Sinfóníunni. Enn var tónn- inn mikill og breiður — þeir gleymdu aldrei blæstrinum kapp- arnir sem ólust upp fyrir daga raf- væðingarinnar. Sem betur fer var blástur hans hljóðritaður og má heyra hann í þættinum Sveiflunni á rás 2 nk. mánudagskvöld. Sveinn var heiðursfélagi Jazz- sambands íslands ásamt Jóni Múla Árnasyni og að leiðarlokum færa íslenskir tónlistarunnendur hon- um þakkir fyrir ómetanlegt fram- lag til íslenskrar tónlistarsögu. Friedrich Diirrenmatt Friedrich Durrenmatt (f. 1921) er heimsþekkt leikritaskáld, en hefur einnig og ekki síður fengist við skáldsagnagerð og smásagna. Rómúlus mikli var fyrsta verkið sem vakti á honum athygli utan heima- landsins, Sviss, en það skrifaði hann árið 1956. Aður hafði hann skrifað fjölda verka og var orðinn vel virtur heima fyrir. Dúrrenmatt er af prestaættum og á háskólaárum sínum lagði hann m.a. stund á guðfræði, þó meginvið- fangsefni hans væru heimspeki og bókmenntir. Hann komst einhverju sinni svo að orði um sjálfan sig að hann væri rótslitinn mótmælandi sem dáðist að trú því hann hefði sjálfur glatað henni. Skilningur á verkum hans byrjar því í þeim punkti að lífssýn hans byggist á guð- fræði undir sterkum áhrifum frá Kirkegaard og Kafka, sérstaklega í upphafi ferilsins. Öndvert við Brecht, sem trúði á skynsemi mannsins og gæsku og þannig á möguleikann á breyttu samfélagi, heldur Dúrrenmatt því fram að heiminum verði ekki breytt. Heim- ur Dúrrenmatts er ófreskja sem menn verða að sætta sig við en mega aldrei láta undan. Hann lítur á mannkynið sem misheppnaða til- raun af hálfu guðs og heldur því fram að ást guðs sé alls ekki nægjan- leg til að bjarga heiminum, það sýni núverandi ástand. í greinum sínum um leikhúsið hef- ur Dúrrenmatt gefið leikritun sinni heitið tragíkómík. Hið tragíska er örlög mannsins og um leið aðstæð- ur hans — kómíkin kemur fram þeg- ar hann reynir, án árangurs, að flýja örlög sín með nýjum, en misheppn- uðum áætlunum og framkvæmd- um. Segja má að allt þetta komi fram í Rómúlusi mikla, sem ætti þar af leiðandi að gefa góðan þverskurð af hugarheimi Friedrichs Dúrren- matt. Ung nordisk musik Fimmiudagur 17. sept. Tónlistarskólinn í Reykjavík, kl. 16.30 Flutt verða verk eftir Ari Vakkil- ainen, Fleming Hansen, Atla lng- ólfsson, Melin frá Svíþjóð og Schatt- hun frá Noregi. Guðni Franzson leik- ur á þessum tónleikum verk Atla fyrir einleiksklarinett og tekur þátt i flutningi verksins eftir Hansen, Fimmtudagur 17. sept. Menntaskólinn v/Hamrahlíð kl. 20.30 Verk eftir Kahrs, Koskinen, Isaks- son, Engström, Tryggva M. Bald- vinsson og Strubbe-Tegelbjærg. Slagverkið verður áberandi á þessum tónleikum, er i aðalhlut- verki í þremur verkum af 6. Laugardagur 19. sept. Skálholt kl. 17.00 Einskonar grand finale músíkhá- tíðarinnar. Robert Aitken, heims- þekktur kanadískur flautuleikari, leikur fjögur verk fyrir flautu. Síðan leikur György Geiger trompetleik- ari einleik með strengjasveit músík- hátíðarinnar verk eftir ungverska tónskáldið László Dubrovay, Con- certo no. 3. Stjórnandi verður Mark Reedman. HELGARPÓSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.