Helgarpósturinn - 07.04.1988, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 07.04.1988, Blaðsíða 16
BÍÓ Stjörnugjöf: O farðu ekki ★ sæmileg ★★ góð ★★★ágæt ★★★★! Regnboginn Síðasti keisarinn (The Last Emperor) ★★★★ Bless krakkar (Au revoir les enfants) ★★★ Hættuleg kynni (Fatal Attraction) ★★★ Hálendngurinn (Highlander) ★★★ Brennandi hjörtu (Flambeiede hjerter) ★★ Bíóhöllin Spaceball ★★★ Þrír menn og barn (Three Men and a Baby) ★★ Nútímastefnumót (Can't Buy Me Love) ★ Bióborgin Nuts ★★ Vtoll Street ★★ Stjörnubíó Einhver til að gæta mín (Someone To Watch Over Me) ★★ Laugarásbíó Hróp á frelsi (Cry Freedom) ★★★★ [>agnet ★★ Háskólabíó Trúfélagið (The Belia/ers) ★★ UM HELGINA Fyrir framan mig er óreglulegur hlaöi af upplýsingum, fréttatilkynn- ingum og boðsmiöum á menriingar- viöburöi út um allar trissur sem eng- inn hefði tíma til að sækja þó hann heföi þaö eitt aö fullri atvinnu. Segiö svo ekki að menningarlíf á íslandi fari halloka fyrir sjónvarpssýki og mynd- bandaglápi, eöa hvaö? Eftir á séö fara ekki saman magn og gæði, en úrvalið er a.m.k. mikið, sem þýðir aö fólk um allt land er aö skapa eitthvað, vinna með hugsun sína og reynslu og meðan svo er hef ég ekki áhyggj- ur af framtíð islenskrar menningar. En ég verð að vinna úr upplýsinga- flóðinu og talandi um sjónvarp er best að höggva þangað fyrst, í þeirri trú að þar leynist eitthvert fóður inn- an um afþreyinguna. Annars er afþreyingin nauðsynleg upp að vissu marki þegar maður vill vera stikkfrí. En afþreyingin má ekki verða stefna. Altso, sjónvarp. Á dagskrá Híkissjónvarps í kvöld er fyrrihluti heimildamyndar um - Finnland sem heitir Finnland yngst Norðurlanda (þetta er auðvitað rangt því islenska lýðveldið er 26 ár- um yngra). Á föstudagskvöld verður síðan bresk sakamálamynd með Sophiu Loren og James Coburn í að- alhlutverki. Sú heitir Vopnabrak (Firepower) og er frá 1979. Eitthvað fyrir aðdáendur stórstirna. Klukkan sextán á laugardag er Fræðsluvarp- ið á sínum stað, þarsem meðal ann- ars verður skákkennsla. Carl Sagan heldur áfram með þáttaröð sína Cosmos, þátturinn sem kemur manni i skemmtilega annarlegt al- heimsskap. Eftir Fyrirmyndarföður og Mann vikunnar er franskur skemmtiþáttur sem heitir Leiðin til frægðar og þar troða upp ekki minni stjörnur en Frank Sinatra og Sammy Davis. Bíómynd kvöldsins er banda- ríska sakamálamyndin Morö á mið- nætti (Murder by Death) með nöfn- unum Peter Sellers og Peter Falk í aðalhlutverkum. Myndin ku vera í léttum dúr. Á sunnudag hefjast fjög- urra liða úrslit í spurningaþætti Ómars Ragnarssonar Hvað held- urðu? Spennan eykst stöðugt. Að lokum vil ég benda á athygliverðan þátt á þriðjudagskvöldið sem heitir Öldin kennd við Ameríku (Ameri- can Century) og er þar á ferð þriðji þáttur af sex. Hann fjallar á skemmti- legan hátt um amerísku þjóðarsál- ina, skilning hennar á sjálfri sér og áhrif hennar á umheiminn. Þetta er kanadískur þáttur sem vakið hefur athygli víða um heim. Stöö tvö sýnir athygliverða bíómynd á laugardags- kvöldið sem heitir Algjörir byrjend- ur (Absolute Beginners) og fjallar um upphaf unglingaaldar i Bretlandi á sjötta áratugnum. Myndin er lita- glöð og frumleg og full af skemmti- legri músík. Ég hreifst mjög af henni þegar hún var sýnd í Háskólabíói fyr- ir nokkrum árum. Þarna verða líka stórstjörnur á borð við Sade, David Bowie og fleiri. I Rikisútvarpi á laugardag klukkan 16.30 er á dagskrá gamanleikritið Knock eða Sigur læknislistarinnar eftir Jules Romains í þýðingu Arnar Ólafssonar pg leikstjórn Benedikts Árnasonar. Á sunnudag eftir hádegi verður endurfluttur þáttur Jóns Ósk- ars um dadaisma. Þar verður fjallað um upphaf og viðgang hreyfingar- innar sem stofnuð var á kaffihúsi í Zúrich árið 1916 í kringum tvitugan Rúmena, Tristan Tzara að nafni. Þátt- urinn heitir því skemmtilega rétt- nefni Þið vftið víst ekki hvað við er- um að gera". Á sunnudagskvöld hefst lestur nýrrar útvarpssögu, en hún heitir Móðir snillingsins, eftir Ólöfu frá Hlöðum. Af „frjálsu" út- varpsstöðvunum hefur Útvarp Rót vakið mikla athygli fyrir fjölbreytta og oft vandaða dagskrá, djarfar til- raunir í dagskrárgerð og ekki síður grasrótaruppbyggingu sína. Á dag- skrá Rótar um helgina eru bók- menntaþættir, landafræðiþættir, samfélagsleg umfjöllun, pólitiskar lesningar, barnaútvarp og tónlist svo fátt eitt sé talið af afar fjölbreyttri og þéttri dagskrá Rótarfólks. Tónlistar- rásirnar eru með sina vönu menn á sínum vanalegu póstum, Þorstein J. Vilhjálmsson, Hallgrím Thorsteins- son, Pétur Stein Guðmundsson og þannig mætti lengi telja. Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir barna- leikritið Emil i Kattholti í Bæjarbíói á laugardag og sunnudag klukkan 14.00 og 17.00. Gránufjelagið sýnir Beckett-leikritið Endatafl í bakhúsi á Laugavegi 32 í kvöld og á sunnudag klukkan 16.00. Frú Emilía sýnir líka í bakhúsi við Laugaveginn, númer 50b reyndar, leikritið Kontrabass- ann eftir Patrick Súskind á föstu- dags- og sunnudagskvöld klukkan 21.00. íslenska óperan sýnir Don Giovanni á föstudags- og laugar- dagskvöld klukkan 20.00. Sýninga- fjöldi er takmarkaður svq óperuunn- endur skyldu drífa sig á fyrra fallinu. Þjóðleikhúsið sýnir Vesalingana á föstudags- og laugardagskvöld, Hugarburð í kvöld og sunnudags- kvöld og sömu kvöld á litla sviðinu eru síðustu sýnimar á Bílaverk- stæði Badda eftir Ólaf Hauk Símon- arson. Sýningar þess nálgast nú tí- unda tuginn. Væntanlegt leikrit á fjalir Þjóðleikhúss er gamanleikurinn Lygarinn eftir Carlo Goldoni, meist- ara ítalskra gamanleikja. Frumsýn- ing þess verður 21. april. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Sildina áfram við góðar undirtektir í leikskemmunni á Bráöræöisholti, en í leikskemmunni er einnig starfraekt veitingahús í tengslum við sýninguna. Þar sem Djöflaeyjan rís er þar einnig til sýn- ingar. í Iðnó er allra síðasta sýning á Degi vonar á sunnudagskvöldiö. Hjá Leikfélagi Akureyrar verða síð- ustu sýningar á Horft af brúnni eftir Arthur Miller, nánar tiltekið á föstu- dags- og laugardagskvöld klukkan 20.30. á sunnudag klukkan 16.00 verða Ijóð Einars Benediktssonar lesin í sérstakri dagskrá um skáldið og lesarar eru Arnar Jónsson, Hall- mar Sigurðsson, María Sigurðar- dóttir og Kristján Franklín Magnús. Brúðuleikhúsið Sögusvuntan sýnir Smjorbitasögu á Fríkirkjuvegi 11 á sunnudag klukkan 15.00. Brúðunum stjórnar Hallveig Thorlacius. Nóg um sjónleiki. Við erum rík af myndlistarfólki og sýningar eru fjölmargar um þessar mundir. Fyrst skal nefna sýningu Gunnars Arnar í Gallerí Glugganum á Akureyri sem verður opnuð 8. apríl. Gunnar hefur sýnt i mörgum stór- borgum heimsins; Tókýó, New York, Sao Paulo og Chicago, en Guggen- heim-safnið í New York hefur til dæmis keypt af honum verk. Á morgun opnar Ásta Guðrún Eyvind- ardóttir málverkasýningu í Hafnar- galleríi, Hafnarstraeti 4. Sýningin er opin á verslunartíma. Listasafn ís- lands er opið sem áður um helgina frá klukkan 11.00 til 17.00. Mynd aprilmánaðar er íslandslag eftir Svavar Guðnason. Leiðsögn um sýninguna Aldarspegil er á sunnu- dögum klukkan 13.30. Galleri Borg sýnir nú leirlistaverk Guðnýjar Magnúsdóttur og grafíkmyndir Þórðar Hall. Ég yrði ekki hlessa þó Snæfellsjökull sæist þar svona inn á milli. Myndlistarsalurinn Nýhöfn við Hafnarstræti opnará laugardag sýn- ingu á verkum Gerðar Helgadóttur myndhöggvara í tilefni af þvi að 11. april hefði listakonan orðið sextug. Lista- og menningarráð Kópavogs stendur að sýningunni. í leiðinni væri í lagi að rölta út i Tryggvagötu, en þar er mósaíkverk Gerðar afar áberandi á Tollstöðinni. í Gallerí Svörtu á hvítu við Laufásveg sýnir norski listamaðurinn Zakarías verk sín og í Norræna húsinu sýnir Björg Þorsteinsdóttir málverk og teikn- ingar. Breska hljómsveitin Shark Taboo heldurtónleika i Lækjartungli í kvöld, 7. apríl, ásamt Mússólíni og á mánu- daginn 11. apríl i Duus-húsi ásamt fíbet Tabú. Hljómsveitin hefur ný- lega sent frá sér sex laga míníbreið- skífu undir heitinu „Everyone's a Freak" sem varla þarf að þýða. Púnktur og basta. GUGGE HEDRENIUS Á HÓTEL ÍSLANDI 7. APRIL Um mánaðamótin heldur stórsveit sænska píanistans, tónskáldsins og hljómsveitarstjórans Gugge Hedrenius vestur um haf í mikla tónleikaför um þver og endilöng Bandaríkin. Með aðstoð Gunnars Reynis Sveinssonar, tónskálds og góðvinar Gugga, tókst að fá hljómsveitina til að fljúga vestur með Flugleiðum í stað SAS og gera stuttan stans á íslandi og leika á Hótel íslandi. EFTIR VERNHARÐ LINNET Gugge Hedrenius Big Blues Band er ein af helstu stórsveitum Evrópu og Guggi hefur leitt þá sveit í sautján ár. Margir helstu djassleikarar heims hafa komið í heimsókn til Gugga og ferðast með bandinu, s.s. Hank Crawford, Mel Lewis og Jimmy Wintherspoon, og svo hafa sænsku topparnir verið í bandinu; Jannie Schaffer og Pétur Östlund og allir sem leika með því núna: Willie Cook, Rolf Ericson, Bosse Broberg og Thomas Driving trompetleikar- ar; básúnublásararnir Ulf Johanson, Dicken Hedrenius og Lennart Löf- gren; saxófónkýlararnir Brent Rosengren, John Högman, Warner Finer og Lákan Levin; hrynsveitina skipa svo Guggi sjálfur á píanó, Lasse Lundström á bassa og Mans Ekman á trommur; söngvari er Claes Janson. Willie Cook er trúlega þekktasti blásarinn í sveitinni. Hann er nú hálfsjötugur og lék í æsku með Jay McShann, Earl Hines og Dizzy Gillespie. Þekktastur er hann þó fyr- ir trompetleik sinn með Duke Ellington og hann fer á kostum með Gugga í Ellington-ópusum eins og Things Ain’t What They Used To Be. Rolf Ericson er jafnvel eins þekktur og Willie Cook. Hann fæddist í Stokkhólmi árið 1922 og tuttugu og fimm ára gamall flutti hann til Bandaríkjanna. Þar lék hann með Woody Herman, Harry James, Gerry Mulligan, Charles Mingus og Duke Ellington. 1965 sneri hann aft- ur til Svíþjóðar en hefur haft aðal- stöðvar sinar í Berlín eftir 1970. Af og til spilar hann með Gugga — sér í lagi þegar mikið liggur við eins og nú þegar Guggi er að halda í enn eina tónleikaför sína um Bandarík- in. Aðrir stjörnueinleikarar í sveit- irini, eins og Brent Rosengren og Bosse Broberg, eru á aldur við hljómsveitarstjórann: um fimmtugt. Bosse lék m.a. með hljómsveit Reds Mitchell: Communication, þar var Pétur Östlund á trommur. Brent er af mörgum talin einn helsti saxófón- leikari Evrópu, hvort sem hann blæs með Doug Raney og Horace Parlan eða tyrkjadjasssveitinni Sveda. Það er mikill fengur að fá stórsveit Gugga til íslands. Það er ekki oft að evrópskar stórsveitir eru á ferð yfir hafið og án þess er vonlaust að fá þær hingað. Ferðakostnaðurinn yrði of mikill. Jazzvakning er ekki úr öllum æðum dauð en síðustu tón- leikar hennar voru með St. Louis Kings of Rhythm. Sveit Gugga er vel heima i blúsum en aðal hennar er stórsveitarsveiflan eins og við þekkjum hana best frá Count Basie og Duke Ellington. It Don’t Mean a Thing !f It Ain’t Got That Swing! 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.