Alþýðublaðið - 01.06.1939, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.06.1939, Blaðsíða 1
ðlpýðnf lokbSf éla i Reykjavíkur heldur skemtifund KXTSTJéRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGSFANDI: ALÞÝBUFlcOKKURÖfN XX. ÁRGANGU8 FIMTUDAGINN 1. JUNI 1939 133. TÖLUBLAÐ 'ommúnistar stoftvnðn alla bvgg- vliii hér I kæiin I morgnn. Peli» að frésmiðir og mérarar ÍBorgi pelm 1% af útborguðum ilnnulaunum verkamsnna. ALGER VINNUSTÖÐVUN við alla byggingarvinnu verkamanna hófst í morgun, en hefir staðið undan- farna daga hjá þeim verkamönnum, sem hafa unnið hjá írésmiðum. Það eru kommúnistarnir í Dagshrún, sem fyrir- skipað hafa þessa vinnustöðvun og gott dæmi um aðferðir þeirra í verkalýðsmálum. Deilan stendur raunverulega um það, að kommún- istar heimta að trésmiðir og múrarar afhenti skrifstofu Dagsbrúnar öll vinnulaun verkamanna, sem síðan greiði verkamönnunum kaup þeirra. Fyrir þetta heimta komm- únistar að trésmiðir og múrarar borgi Dagsbrún 1% af greiddum vinnulaunum, er renni í sjóð Dagsbrúnar. Þessu hafa trésmiðir og múrarar neitað. Pélshœr siúpstjóri á MáttfðtiDBm I bar- daga við fjórar stúlk nr á hafearbakk- aiiflm. IMORGUN um kl. 6 var hringt til lög- reglunnar og hún beðin að koma og stilla til friðar niður á hafnarbakka. Lögreglan fór þegar á vettvang og voru þar þá 3 karlmenn í bardaga við fjórar stúlkur og var einn karlmannarina á náttföt- unum. Hér liggur inni pólskur togari og höfðu 4 stúlk- ur farið um borð í hann í gær og verið þar í nótt. í morgun snemma hafði skipstjórinn orðið ósáttur við þær og lét hendur skipta. En er hann hrökk ekki við þeim, kallaði hann skipverja sína til að- stoðar og hlýddu tveir þeirra hrópi hans. Barst nú leikurinn upp á bryggj- una og þar stóð leikurinn sem hæst, þegar lögreglan kom að, og var skipstjór- jinn á náttfötunum éfin- um saman. Allt stríðsfólk- ið var ölvað, einkum skipstjórinn. — Var öllu hrúgað í Steininn. „Ein nótt er ei til enda trygg ....“ Hlutleysissáttntáli Baia Með þessu er raunverulega verið að stórhækka ársgjöld verkamanna til Dagsbrúnar. því að verkamenn geta ímyndað sér hvort, síðar meir, muni þetta gera auðveldara að fá kaup- hækkun. Þvert á móti, þessi krafa gerir alla baráttu fyrir umbótum á kaupinu miklu erf- iðari. En kommúnistarnir í Dagsbrún hafa og annað í hyggju. Innheimtan á ársgjöld- um verkamanna gengur afar slælega, þrátt fyrir mikla eyðslu í starfsmenn, og sjóðir Dags- brúnar eru tæmdir í pólitískar spekúlasjónir kommúnista. Með því að fá öll vinnulaun verka- manna í sínar hendur, geta kom- múnistar tekið ársgjöld verka- manna án þess að spyrja þá leyfis. Verkamenn í Dagsbrún eru andvígir þessu. í þessu máli kemur áþreifan- lega í Ijós skoðanamismunur Al- þýðuflokksmanna og kommún- ista á því, hvernig reka eigi starfsemi verkalýðsfélaganna. Alþýðuflokksmenn, sem hafa byggt upp öll verkalýðssamtök í landinu hafa alltaf viljað hafa kröfur samtakanna þann- ig, að almenningur, sem ann- ars er vinveittur samtökunum snérist ekki öndverður gegn þeim. Með þessu ætti — og hefir verið hægt, að byggja upp sam- tökin smátt og smátt og skapa eðlilegan þroska þeirra. Kommúnistar hafa alltaf talið þessa skoðun svik við verkalýð- inn og nú eru þeir — og hafa undanfarið verið að sýna sína aðferð. Sáttasemjari hefir. haft þetta mál til meðferðar undan- farið — og hefir enn ekki slept því frá sér, annars eru líkur fyrir því, að það fari til félags- dóms. Krafa kommúnista er ósanngjörn á hendur trésmiðum og múrurum — og hefir auk þess enga þýðingu fyrir verka- mennina sjálfa, nema til hins verra. filimnkeppnin i oær sfidi niðnrlægingn glmnnnar. -----»----- Ingimundur Guðmundsson glímukóngur Skúli Þorleifss. fékk fegurðarverðlaunin H ' LUTLEY SISS ATTM ALI milli Þýzkalands og Dan- merkur var undirritaður í Ber- lín í gær. Eins og áður hefir verið get- ið, bauð Hitler Norðurlöndun- um að gera við hvert þeirra um sig öryggissáttmála. Svíþjóð, Finnland og Noregur höfnuðu boðinu, en Danmörk tók því. | SLENZKA GLÍMAN er í niðurlægingu, það er ómögulegt að ganga fram hjá því — og Reykvíkingar kunna alls ekki að meta þessa fögru og gamalfrægu íþrótt. Allt þetta kom berlega fram í gærkvöldi á íþróttavellinum, þegar. íslandsglíman fór fram. Engin glíma var fögur eða snörp. Allar — eða svo að segja allar, voru linar, þreyt- andi og ,,bolóttar.“ Allir urðu fyrir vonbrigðum. Yeður var mjög óhagstætt, hvasst og kallt og er líklegt að það hafi haft áhrif á glímuna, — svo var mjög slæmur aðbúriaður á vell- inum. Meðal áhorfenda voru margir gamlir áhugamenn fyrir glímunni, þar á meðal Jóhannes bóndi á Borg og Hallgrímur Benediktsson. Jóhannes gekk út, þungur á brúnina, þegar skamt var liðið á glímuna, — og Hall- grímur hristi höfuðið. Þátttakendur 1 glímunni voru Sovétstjérnla ber káp- nna á báðnm ðxlum. ---»--- Viðræður við Þýzkaland jafnhliða samninga- nmleitununum við Bretland og Frakkland! ---»--- Ræða Molotovs í Moskva f gœr. 10 að tölu og varð Ingimundur Guðmundsson glímukóngur, en Skúli Þorleifsson fekk fegurð- arglímuverðlaunin. — Annars voru úrslitin þannig: Ingim. Guðmundsson Á. 9 vinn. Skúli Þorleifsson Á. 7 — Sig. Guðjónsson KV. 6 — Kjartan B. Guðjónss. Á. 6 — Jóhannes Ólafsson Á. 5 — Guðm. Hjálmarsson Á. 4 — Engilbert Jónasson KV. 3 — Sig. Hallbjörnsson Á. 3 — Har. Sigurðsson KV. 1 — Jóh. Bjarnason Á. 1 — Engin meiðsli urðu. Það þarf mikið átak til að endurvekja til- finningu fólksins fyrir þessari þjóðaríþrótt. Ef glíman er ekki vanrækt er hún fögur og glæsi- leg — en svona er hún aðeins til að gefa ranga hugmynd um hana. Drottningin er á leið til Kaupmannahafnar. Súðin er á leið til Seyðisfjarðar. STALIN. Frá fréttaritara AlþýðublaSsins. K.höfn í morgun. T\/í OLOTOV, forsætisráðherra og utanríkismálaráðherra sovétstjórnarinnar, hélt ræðu þá um utanríkismálin, sem boðuð hafði verið og menn hafa beðið með svo mikilli eftirvæntingu, í gærkveldi fyrir sovétþinginu í Moskva. Molotov tók það greinilega fram, að samningum Breta, Frakka og Rússa um þríveldabandalag væri ekki lokið og það virðist eftir allri ræðu hans algerlega undir hælinn lagt, hver árangur verður af þeim. Mikill hluti ræðunnar fór í það að gagnrýna önnur ríki, ekki aðeins fasistaríkin, heldur og lýðræðisríkin, og vakti það sérstaklega eftirtekt, að hann kvað sovétstjórnina gera ráð fyrir því, að viðræður myndu innan skamms verða teknar upp við Þýzkaland um nýjan viðskiftasáttmála milli þess og Rússlands og teldi hún, að áframhaldandi samningaumleitanir milli Rússa, Breta og Frakka þyrftu ekki að standa í vegi fyrir, að slíkar viðræð- ur yrðu teknar upp. SkityrM Mssa. Um samxxingaumleitanir Rússa, Frakka og Breta sagði Molotov, að af Rússa hálfu væru sett þrju ófrávíkjanleg skilyrði fyrir þríveldabanda- lagi: 1) Að sáttmálinn sé urn varn- arbandalag og gagnkvæxna að- stoð. 2) Að ákvæði hans nái til allra ríkja, sem eiga lönd að Sovét-Rússlandi. 3) Að svo tryggilega og vand- lega sé gengið frá ákvæðum sáttmálans um aðstoð þríveld- anna hvort við annað, að engin undanbrögð séu möguleg, ef til árásar komi á eitthvert þeirra, eða eitthvert þeirra ríkja, sem verndar eigi að njóta sam- kvæxnt honum. Molotov kvað Rússa vera reiðubúna til þess að halda á- fram umræðum um samtök MOLOTOV. gegn hvers konar ágengni og ofbeldi, en Sovét-Rússland yrði þó að fara gætilega í að bindast samtökum við önnur ríki. Því næst kom hann með sömu Fram fer tíl Dat merkar. Hefir kappleiki á 4 stððum. 20 félagar i fðrtaBi. TT N ATTSPYRNUFÉLAG- X*. ID Fram fer næstkom- andi mánudgskvöld áleiðis til Danmerkur og heyir þar a. m. k. 4 kappleiki: í Sorö, Rönne, Odense og Tönder. Ef til vill verður einn kapp- leikur í Kaupmannahöfn, en það er erfitt að koma því við vegn ýmissa kappleika, sem fara fram um sama leyti. Þessir menn fara með: Brynjólfur Jóhannesson, far- arstjóri, Hermann Lindemann, þjálfari, Jón Magnússon, Sig- urður Halldórsson, Gunnlaugur Jónsson, Sigurjón Sigurðsson, Sigurður Jónsson, Sæmundur Gíslason, Högni Ágústsson, Frh. á 4. síðu. mótbárurnar gegn samningstil- boðum Breta, sem þegar eru þektar: að þau hefðu ekki haft inni að halda nein ákvæði um aðstoð handa Rússlandi, ef á það yrði ráðist, og ekki heldur nein ákvæði um vernd fyrir sum nágrannalönd Rússlands, svo sem Eystrasaltslöndin Eist- land, Lettland og Lithauen. En þessi atriði væri nú verið að ræða og samningaumleitunun- um miðaði áfram. AflUfl vUskiitl við fas- istarikin. Þá kom Molotov að viðskift- unum við Þýzkaland, sem áður er um getið. Sagði hann að við- ræður um viðskifti Rússlands og Þýzkalands hefðu fallið nið- ur í bili, en myndu brátt verða teknar upp á ný og ættu sam- komulagsumleitanir Rússa, Breta og Frakka ekki að þurfa að spilla því, að þeim yrði hald- ið áfx-am. Viðskifti Rússlands og Italíu kvað hann hafa aukist. í garð Japana andaði hins vegar mjög kalt í ræðu Molo- tovs, og fór hann hinum háðu- legustu orðum um kröfur Jdp- ana til Ytri-Mongoliu. Japanir yrðu að gera sér það ljóst, sagði hann, að Sovét-Rúss- land myndi verja landamæri sín í Austur-Asíu með engu minna harðfylgi en landanxæri sín í Evrópu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.