Alþýðublaðið - 02.08.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGINN 2. ágúst 1939 175. TÖLUBLAÐ
leroaiog verzinnarmanna
ridegi peirra um helgina
Farið verður íil Vestm.eyja, í Þjórsárdal,
að Gullfossi og Geysi og í Borgarfjörð.
\T ERZLUNARMENN
® gangast nú, eins og að
undanförnu, fyrir hátíðahöld-
um og skemmtiferðum á frí-
degi verzlunarmanna um
næstkomandi helgi. En að
þessu sinni eru þau fjöl-
breyttari en nokkru sinni áð-
ur. Verða farnar skemmti-
ferðir til Vestmannaeyja,
Þjórsárdals, Gullfoss og
Geysis, og í Borgarfjörð, en
að Eiði verða skemmtanir á
sunnudag og mánudag.
Til Vestmannaeyja verður far-
ið með Gullfossi áföstudagskvöld
o;g svo til baka annaðhvort með
Lyra á mánudag eða Brúarfossi
á þriðjudag. Sé farið með skip-
um Eimskipafélagsins báðar leið-
ir er fargjaldið 14 kr., en ann-
ars 17 krónur fyrir báðar ferð-
irnar.
Hefir fjöldi manns pegar til-
kynnt pátttöku sína, og búast má.
við, að margir eigi pað eftir, því
að marga mun fýsla að koma til
Vestmannaeyja og kynnast hinum
frægu þjóðhátíðardögum þeirra,
sem fram eiga að fara þar um
helgina.
I Þjórsárdals-, Gullfoss- og
Geysis-ferðina verður farið héð-
an eftir hádegi á laugardag og
ekið alla leið til Þjórsárdals, en
á sunnudag verður farið til Gull-
'fóss og Geysis, og í heimleið-
i*mi á mánudag verður ekið um
Grafning og Þingvöll.
Borgarfjarðarförm. Á laugar-
dag klukkan 3 e. h. fer Lax-
foss til Borgarness, og verður þá
um kvöldið dansskemtun í Ung-
matmafélagshúsinu í Borgarnesi.
Á sunnudag verður skemmtun
við hina frægu Þverárrétt.
Skemmtunin að Eiði. Enn hef-
ir ekki fullkomlega verið ráðið
með skemmtiatriði þar, en það
mun verða tilkynnt síðar í vik-
unni.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
verzlunarmenn hafa svo fjöl-
breytt og skemmtileg hátíðahöld
á frídegi verzlunarmanna, og má
búast við að margir rnunu taka
þátt í þessum skemmtiferðum,
því að jafnframt því, að farið
er til einhverra fegurstu staða
hér sunnanlands, þá eru ferðirnar
einnig mjög ódýrar. Þjórsárdals-
förin kostar 22 krónur, Borgar-
fjarðarferðin 11 krónur og eins
og áður segir 14 og 17 krónur
fargjaldið til Vestmannaeyja, eft-
ir því, hvort farið er með Lyra
eða Brúarfossi.
Þeir vilja fá frjálsar hendur til þess að flytja
vopn til borgarinnar frá Austur-Prússlandi.
-------«-------
LONDON i moigun F.Ú.
SEINASTA KRAFA nazistaií Danzig er sú, að allir
pólskir íollverðir á landamærum fríríkisins og Aust-
ur-Prússlands verði kallaðir þaðan á brott. Krafa þessi er
hirt í blöðum nazista.
Fyrstu fangabúðirnar hafa nú verið opnaðar í Danzig.
Um 100 Gyðingar, sem þar eru, hafa verið teknir til að vinna
að því að koma þar upp hermannaskálum.
Tilkynnt er í Varsjá, að 100
menn hafi verið handteknir í
sókn, sem lögreglan í Austur-
Galizíu hefir hafið til þess að
hnekkja starfsemi úkranskra
þjóðernissinna þar. Hinir hand-
teknu eru sakaðir um imdirróð-
ur, sem hættulegur sé einingu
og sjálfstæði pólska ríkisins.
isflrðingar Sara ésigr~
aðir heim til ísafjarðar.
----*---
Fyrsta skipti í sögunni vinna uÞ
anbæjarmenn knattspyrnnmét.
r
SFIRÐINGAR hafa unnið 1.
flokks mótið. Þeir taka
heim með sér til ísafjarðar Vík-
ingsbikarinn, sem keppt er um
á þessu móti. Þetta er fyrsta
sinni, sem utanbæjarmenn
vinna knattspyrnumót hér og
skilja Reykvíkinga eftir í smán
— enda rigndi smáninni yfir þá
í gærkveldi í lok leiksins.
Það var raunverulega úrslita-
leikur 1. flokks mótsins, sem fór
fram í gærkveldi milli ísfirð-
inga og Vals, og ísfirðingar unnu
með 2 mörkum gegn 1, og þetta
eina mark Vals var úr víta-
spyrnu. Veður var mjög gott,
þar til allra síðast. ísfirðingar
léku gegn sól í fyrri hálfleik og
lá knötturinn oftast á þeim, en
vörn þeirra er afarsterk, enda
er a. m. k. miðframvörðurinn,
Ágúst Leós, tvímælalaust meist-
araflokksmaður. Hann var alls
staðar nálægur, og öll upphlaup
strönduðu á honum. Þá sýndu
þeir Jónas Magnússon (kallaður
„Mósokki11 á vellinum vegna
sokkanna, sem. hann var í) og
Högni Helgason ágætan leik —
og þó sérstaklega Jónas.
Ekkert mark var sett í f.yrri
hálfleik. I síðari hálfleik voru
Frh. á 4. síSu.
Konungshjónin frá Albaníu á flótta sínum um Evrópu.
Myndin er tekin í Stokkhólmi, þégar þau komu þangað á dögunum. Til hægri við Zogu konung er
Geraldine, drottning hans. En báðum megin við þau eru systur konungsins þrjár, sem vöktu mikla
eftirtekt í Kaupmannahöfn fyrir tveimur eða þremur árum, þegar þær voru þar á skemmtiferðalagi.
Ifýjar viðtækar heimild-
iidtr fyrír pólskn stjórn-
ina.
LONDON í gærkveldi. FÚ.
Forsætisráðherra Póllands gaf
í dag út eftirfarandi tilskipan-
ir-
1) Heimilt er að láta herrétt
taka til meðferðar öll þau mál,
sem varða á einhvern hátt ör-
yggi ríkisins, jafnt á friðar-
tímum sem ófriðar.
2) Heimilt er að taka til
notkunar handa hernum hvers
konar ökutæki og hesta, eftir
því sem þörf gerist.
3) Allir Pólverjar, karlar. og
konur, verða að láta skrá sig til
þjóðvarnarstarfa, ef til ófriðar
kemur.
Pfzku blaöaáráslruar á
Pðlverja byrja á aý.
LONDON 1 gærkveldi. FÚ.
Þýzku blöðin hafa á ný tekið
upp árásir á Pólland, og eru nú
þær sakir bornar á Pólverja, að
þeír hafi rofið pólsk-þýzka
verzlunarsamninginn.
Enn fremur eru margir Pól-
verjar sakaðir um njósnarstarf-
semi. Loks eru Pólverjar taldir
fara illa með Þjóðverja, sem bú-
settir eru í Póllandi.
Skærnr á laadamærnm
Dngverjalands »g Rám-
enin.
LONDON í morgun F.Ú.
Árekstrar hafa að undanförnu
verið tíðir á landamærum Rúm-
eniu og Ungverjalands.
Ungverjaland hefir nú stungið
upp á því, að skipuð verði ung-
versk- r úmen sk herfo ringj anef n d
til þess að leiða deiluna til lykta
og koma aftur á kyrrð við landa-
n'lærin.
1400 ána gamalt vxkingaskip
hefir fundizt í jörðu á austur-
strönd Englands. Eru í skipinu
vopn og margir skartgripir úr
gulli, sem að líkindum hafa ver-
ið í eign einhvers konungs eða
stórhöfðingja. Er talið, að gripir
þessir séu rúmlega 25 milljón
króna virði. Skipið og gripirrfir
eru sennilaga danskir að upp-
runa. F.O.
Arthur Greiser
forseti nazistasenatsins í Danzig.
liðinn sólarhrino
SÖLTUNIN gengur ennþá
mjög treglega. Þó er talin
töluverð síld úti fyrir, en hún
er mjög dreifð.
Síðastliðinn sólarhring voru
saltaðar á Siglufirði 600 tunn-
ur (fg 34 tunnur á Djúpuvík.
Nokkur skip komu inn í gær
og nótt með slatta, sem þau
fengu í herpinót. Jón Þorláks-
son kom með 41 mál, Muggur
með 148, Bangsi 25, Þórir 5 og
Geir með 55 mál.
Flugvélin kom í gærkveldi úr
leitarflugi. Sá hún litla síld, en
áta var heldur að glæðast.
Gldsvoði í gærkveldi
i prjénastofnnni
Iðunni.
Albert Forster
foringi nazistaflokksins i Danzig.
GÆRKVELDI kl. 8,25 kom
upp eldur á Laugavegi 7,
timburhúsi, eign Benedikts S.
Þórarinssonar. Var húsið mann-
laust, þegar eldurinn kom upp.
Efri hæð hússins hefir á leigu
prjónastofan Iðunn, en eigandi
hennar er frú Viktoría Bjarna-
dóttir, Miðstræti 8 B. Á sömu
hæð er einnig gólfdreglagerð.
Eldurinn kom upp í herberg-
inu norðan megin við vestur-
gafl, en þar var vörugeymsla
prjónastofunnar og enn fremur
var herbergið notað sem strau-
stofa. í herberginu var geymt
mikið af útlendu garni allavega
litu.
Hafði þar verið skilið eftir
straujárn á borði og gleymzt að
taka af því strauminn. Brenndi
það gat á borðið og kviknaði því
næst í herberginu.
Brann herbergið innan og
eyðilögðust vörurnar að mestu,
en þær voru lágt vátryggðar.
í hinum herbergjunum urðu
skemmdir af völdum reyks og
vatns, en vélar og áhöld munu
vera óskemmd að mestu.
RAssar taka á máti her-
foringjnm Breta og Frakka
með lýjnm blaðadylgjnm.
Saka ónefndar auðvaidsþjóðir um að
vilja velta allri áhættu á Rússland!
LONDON i gærkveldi.
RÚSSNESKA blaðið „Prav-
da“ birti í gær grein, þar
sem á það er bent, að „möndul-
veldin“, það er Þýzkaland og
Ítalía, kyndi undir eldum nýrr-
ar heimsstyrjaldar. Bætir blað-
ið því við, að þær þjóðir, sem
koma vilji í veg fyrir þessa
styrjöld, verði að vera ákveðnar
og sterkar fyrir og hvergi láta
und.an síga.
I greininni eru ónefndar auð-
valdsþjóðir sakaðar um, að þær
reyni að hliðra sér hjá að taka
þátt í slíkri tilraun og leitist við
\
að velta allri
Sovétríkin.
byrðinni yfir á
Brezhn berforingjarnir
farnir frá London.
LONDON 1 gærkv- F.Ú.
Fulltrúar Bretlands við herfor-
ingjatimræðurnar í Moskva leggja
af stað til Parísar á morgun til
þess að ráðgast við fulltrúa
Frakklands, sem til Moskva fara.
Daginn eftir fara þeir allir af
stað áleiðis til Moskva.
Frh. á 4, síðu.