Tíminn - 07.09.1918, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.09.1918, Blaðsíða 1
TÍMINN kemur i'it einu sinni i mku og kostar t kr, árgangurínn. AFGREIÐSLA i ^egkjavik Laagaveg 18, simi 286, út um land i Laafási, simi 91. II. ár. Rcykjavík, 7. september 1918. 37. blað. bída. Þegar hinn alkunni íslandsvinur Dr. Kálund ferðaðist um landið til að safna í bók sína fanst hon- urn einna mest bera á þeim anda hjá þjóöinni er l\Tsti sér í orðtæk- inu illkunna: »Sjaldan er breyting til batnaðar«. Var er bægt að hugsa sér meira vonleysi, meiri hugsjóna örbirgð, meira úrkul allra framfara en hugsun máltækisins ber með sér. Þótt stutt sé komið síðan, mun sá hugsunarbáttur ráðinn af dögum. — Breytingar þær er menn nú hugsa sér gagngerðastar, er menn vænta sér mest af í náinni framtíð, eru samgöngutækin innanlands. Til þess að þær geti komist á verður allur almenningur að skilja live stórfeld bót það er fyrir alt þjóðlíf vort að samgöngurnar batni. Best er hægt að sjá og skilja gagn samgöngubótanna með því að taka líf annara þjóða til sam- anburðar. En þar eð allur almenn- ingur fær eigi séð það með eigin augum, verða þeir er lengra hafa komist að segja frá. — Þá borið er saraan líf íslenzku þjóðarinnar og annara þjóða er njóta venjulegra samgangna, rekur maður fyrst augun í hve ótrúlega mikill hluti af íslenskri mannsæfi gengur í að bíða. Menn bíða eftir skipum, pósti, góðu veðri, góðu færi, logni, byr, — bíða mánuðum saraan, svo æfi þeirra sem láta sér ekki nægja með að híma á næstu þúfum og taka það sem tilviljunin færir þeim í hendur, æfi þeirra framtakssamari fer að miklu leyti í að bíða. ))Þolinmæðin þrautir vinnur all- ar« — segir annað andstyggilegt íslenzkt máltæki. Það er værukoddi þeirra sem fæddir eru og aldir upp til að bíða. Eigi verður fanð hér útí að rekja nein dæmi því til sönnunar, hversu níðdrepandi það er öllu framtaki að mannsæfin er bútuð í óteljandi biðir í landi sem eigi er stærra en það, að maður ætti vel flesta daga ársins að geta háttað á gagnstæðu landsborni enmogunrekkjanstóð. — En gagnleg heilabrot væri það lesendum Tímans að gera sér í hug- arlund hver og einn hve mikil tíma- töf það er árlega, verkatöf og pen- ingaþjófur að samgöngur vorar eru enn svo lélegar. Hvers vegna stækkar Reykjavík? Þar fer minstur tími af manns- æfinni í að bíða. — Þinghelgi. Eitthvert órækasta merki um siðferðisþroska sérhverrar þjóðar er það, hversu háar kröfur hún setur sjálfri sér og einkanlega þeim rnönnum, sem falin eru hin á- byrgðarmestu trúnaðarstörf. Og í annan stað hversu hún metur helgi hinna æðstu og þýðingarmestu stofnana sem hún hefir reist sér. Þessum mælikvarða getum við rnælt forfeður okkar. Þinghelgin var rík hjá þeim. »Skal réttur manns hálfu aulcast meðan á þingi er«. Grið og friður var sett um þingið. Það má rekja hvert dæmið á fætur öðru um það, að að sama skapi og menn tóku að óvirða þinghelgi og kirkjufrið, að sama skapi óx óöldin í landinu og siðir spiltust. Þá var sá hugsunarháttur ríkjandi orðinn sem lýsir sér í orðum Böðvars Ásbjarnarsonar við Þorgils Oddason: »hirta ek aldregi þótt þú dræpir hann (Hafliða Más- son) í kirkjufriði eða þinghelg- inni«, — og er þá glötun vís. Spiltri þjóð er enginn hlutur eða staður heilagur. Það er einkenni á óspiltri þjóð að hún á einhvern reit eða stofn- un sem hún metur helga og þolir ekki að svívirt sé. Hún metur þá menn »varga í véum« sem þann reit svívirða. Hugmyndir manna breytast, eink- um að forminu til. Þinghelgin forna var einkum fólgin í griðum lífs og lima. Þinghelgin í augum þroskaðs nútíðarmanns, er meðal annars mótuð af þeirri hugsun sem lá á bakvið þegar Jesús frá Nasaret rak víxlarana og dúfnasalana út úr helgum stað þjóðar sinnar. Meðan menn sitja á þingi, í skjóli réttar sem er aukinn að helmingi, verður og að gera kröf- ur til þeirra, sem auknar eru að helmingi. Prang og fjárglæfrar eru blettur á hverjum manni. En sá þingmað- ur sem slíkt stundar í skjóli þing- helginnar er »vargur í véum«. Hann hefir svívirt helgan reit þjóðar sinnar. Það er prófsteinn á þroska þjóðarinnar hvort hún þolir það. Þingnrennirnir íslenzku sem síld- ina seldu, undir því yfirskyni að vera einungis að bjarga þjóð sinni, en notuðu um leið tækifærið til þess að auðga sjálfa sig stórkost- lega, — þeir hafa drýgt nákvæm- lega hið sama og víxlararnir i musterinu, þeir hafa gert bænhús að ræningjabæli, þeir hafa gert helgað þing íslendinga að prang- arabúð. Því miður er enginn einn mað- ur til á íslandi með því siðferði- lega áhrifavaldi, þeirri djörfung og einbeitni sem nægi til þess að stej'pa niður gróða þeirra, hrinda um borðum þeirra og reka þá með kaðlasvipu út úr þinghelginni — þegar í stað. Ekki fyrst og fremst til þess að veita mönnunum makleg málagjöld. Heldur til þess að vekja meðvitund þjóðarinnar, um það hver hætla er á ferðum sé þetta liðið. Að það væri hið órækasta spillingarmerki að líða það. í stað þess verður að koma sam- huga dómur þjóðarinnar: Þig hafið rofið þinghelgi okkar. Þið hafið brugðist þingmannsskyldum ykkar. Við getum ekki tekið af ykkur gróða ykkar sem þið komust yfir sitjandi á þingbekk í skjóli þing- helginnar. En við tökum af ykkur það traust sem góðum þingmanni ber. Ut af þinpaMSíWiani. I. Hr. ritstj. Tryggvi Þórhallsson! í tilefni af umræðum þeim, sem orðið hafa í heiðruðu blaði yðar út af síldarkaupum okkar Borgfirð- inga í sumar, leyfi eg mér hér með að rita yður þessar línur til þess að skýra afstöðu mína í því máli, þar sem eg, vegna Kaupfé- lags Borgfirðinga, varð til þess að kaupa 1500 tunnur af »Þingmanna- síldinni«. Saga málsins, að því er mig snertir, er í stuttu máli svo: Um mánaðamótin júní og júlí síðastl. hringdi hr. alþingismaður Hjörtur Snorrason til min og spurði mig hvort Kaupfélagið hefði gert nokkr- ar ráðstafanir til þess að tryggja héraðinu fóðurbætir fyrir komandi vetur. Kvað eg nei við þvi. Sagði hann þá eitthvað á þá leið, að sér og fleiri þingmönnum væri mikið áhyggjuefni hve útlitið væri ískyggi- legt með grasvöxt. Það væri fyrir- sjáanlegt að til stórra vandræða horfði. ef ekki væri aðgert í tíma. Hann kvaðst hafa átt tal um þetta við Guðmund bónda á Lundum og Jón í Deildartungu og væru þeir þess mjög hvetjandi að kej'pt væri síld handa héraðinu, og sagð- ist hann hafa komið því til leiðar að Borgfirðingar ættu kost á að kaupa 2000 tunnur af síld frá fyrra ári. Af þeim hefði suður-Borgar- fjarðarhérað þegar trj’gt sér 500 og væru þá eftir 1500 tunnur er hann taldi sjálfsagt að Kaupfélagið festi kaup á lianda öðrum héröðum sýslunnar. Lagði hann áherslu á að þetta mál þyldi enga bið, þar eð búast mætti við að síldin yrði öðrum seld ef eg ekki tæki strax ákvörðun um kaupin og þá mundi engin síld verða fáanleg síðar. Eg spurði hann þá um verð á síld- inni og tjáði hann mér að það væri kr. 20 — pr. tunnu á Reykj- arfirði, en að hann hefði beztu vonir um að landsstjórnin mundi sjá svo um að við fengjum hana flutta alla leið upp í Borgarnes fyrir lægra flutningsgjald en al- ment gerðist. Eg gekk út frá því, að hér væri að ræða um ráðstaf- anir sem þingið væri að gera og að hr. Hjörtur Snorrason væri sem talsmaður héraðsins að tryggja oklcur þessa síld og vildi eg því ekki láta mitt ógert til þess að héraðið gæti orðið káupanna að- njótandi, þó lét eg þess getið, að mér þætti verðið of hátt. Endaði samtal okkar á því að Hjörtur kvaðst skyldi reyna að þoka einhverju til um verðið, ef unt væri. Seinna um daginn var eg svo aftur kallaður í símann af alþing- ismanninum og Iét hann mig þá vita að sér hefði tekist að fá verð- ið fært niður í kr. 18,50 pr. tunnu, og talaðist þá svo til milli okkar að eg reyndi að festa kaup á þess- um 1500 tunnum og skj'ldi eg koma til Reykjavíkur með fyrstu ferð til þessa að útvega bankalán til kaupanna. Fór eg svo til Rej'kja- víkur fám dögum síðar og tókst þá enn að færa verðið niður. í kr. 18,25 pr. tunnu, gegn þvi að eg greiddi andvirðið, þegar fyrirfram. Áður en eg fór »suður« átti eg tal við ýmsa máismetaudi bændur í Borgarfirði um þessi kaup (þar á méðal við Sigurð bónda Féldsted í Ferjukoti) og voru þeir þess hvetjandi að eg léti þetta tækifæri ekki ónotað, þar sem sjáanlegt væri að þing og stjórn vildi láta málið til sín taka og hefði gert ráðstaf- anir til að tryggja hinum ýmsu héruðuín lándsins brezku síldina sem hér lægi, vegna hinna fyrir- sjáanlegu fóðurvaiidræða, og þá mætti jafnframt ganga út frá að verðlagið væri svo lágt sem koslur væri á. Enn fremur liafði eg átt tal við Bjarna hónda á Geitabergi, sem eg vissi að átti að veita þeim 500 tunnum móttöku er suðurhéraðið átti að fá, tjáði lianri mér að hr. Pétur Ottesen hefði kvatt þá mjög lil þessara kaupa og væru þau gerð fyrir milligöngu hans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.