Tíminn - 04.01.1919, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.01.1919, Blaðsíða 1
TÍMINN eð minsta kosti 80 blöð á ári, kostar 5 krónur árgangurinn. AFGREIDSLA i Reykjavik Laugaveg 18, simi 286, út um land i Laufási simi 91. III. ár. Reykjavík, 4. janúar 1919. Við áramótin. Allir íslendingar óska þess, að árið, sem nú fer í hönd, verði ekki eins og það sem liðið er. En það færði okkur tvöfaldan frið, heímsfriðinn og friðinn út á ▼ið fyrir okkur sjálfa. Þess vegna getum við tekið undir með Egg- ert Ólafssyni: »hitt sé grafið í gleymsku sjó«. Spurningin er nú sú, að hve miklu leyti við munum geta neytt blessunar friðarins þetta árið, sem er að byrja. Sú spurning er nú rædd í ölium löndum. Og yfir- leitt hníga svör allra í sömu átt: Árið muni miklu fremur mega teljast ófriðarár en friðar. Eftir- köst ófriðarins muni jatnvel geta orðið enn verri en ófriðurinn. Skai hér getið noklcurra atriða. Má taka til samanburðar þau stríð, sem nýlegast hafa verið háð, og sjá hve langur timi hefur liðið frá því, er síðasta orustan var háð, eða vopnahlé samið og þang- að til búið var að afvopna her- sveitirnar til fulls. Var það: í þrælastriðinu 17 mánuðir. í fransk-þýzka stríðinu 2 ár og 4 mánuðir. í spánsk-aineríkanska stríðinu 16 mánuðir. í Búastríðinu 10 mánuðir. í rússnesk-japanska stríðinu 13 mánuðir. Er það ljóst af þessum saman- burði, að ár líður a. m. k. þang- að til búið er að afvopna herina, sem barist hafa, þótt ekkert komi annað til greina sem lengir þann tima. — En nú eru allar horfur á því, að Bandamenn verði að senda mikið herlið, fyrst og fremst til Þýzkalands og Austurrikis, og það gæti orðið í velur, og því næst til Rússlands, til þess að koma þar á lögum og reglu og hjálpa þeim þjóðum sem þar búa, tit þess að koma á hjá sér því stjórnarfyrir- komulagi, sem þær kjósa sjálfar, en geta ekki fyrir yfirgangi upp- reistarmanna. Munu Bandamenn telja sér þá för sjálfsagt skylduverk, líkt og hver maður telur það siðteröilega skyldu sína, að hjálpa til að slökkva eld í húsi nágranna sins. Og i annan stað á hér við hið fornkveðna, að »nálægur veggur hilnar, þá er hinn næsti brennur«, og munu Bandamenn ekki vilja eiga Bolschevicka ráðandi við hlið- ina á sér og eiga það víst, að þeir noluðu gullið úr bönkunum, sem þeir taka traustataki, til þess að reyna að koma á stað sama óstjórnareldi á Frakklandi, Eng- landi og Ítalíu. Úrslit slíkrar sendiferðar mun ekki þurfa að telja vafasöm. En það er alveg óvíst, hve langan tíma hún muni taka, og eins hitt, hve mikið hún muni kosta. Og stríðið er ekki á enda fyr en hún er afstaðin. — Árið sem leið sendu Bandarikin tólf miljónir smálesta af matvöru til Norðurálfunnar. Var áætlað, ef stríðið hefði staðið enn eitt ár, hefði þurft að senda átján miljónir smálesta. Nú er það áætlað af hinurn fróðustu mönnum, að ekki muni veita af tuttugu miljónum smálesta af matvöru til Norður- álfunnar þetta árið, Þörfin vaxi svo mjög við friðinn. Sulturinn er langdrýgsti sam- herji Bolschevickanna. Það rekur ekki hvað sízt á eftir Bandaríkja- mönnum, að reyna að fullnægja matarþörfinni. Miðríkin opnast aftur eftir fjögra ára sult. Ekki hægt að gera ráð fyrir nema hlut- fallslega mjög litilli matarfram- leiðslu í Norðurálfunni, eins og ait er þar í garðinn búið. Er augljóst, hverjar afleiðingar hljóta að verða af þessu. Að lík indum verða örðngleikarnir að fá mat meiri í ár en nokkru sinni áður. Bandamenn munu vafalítið skamta mat handa öllum heimin um. Það er mjög vonlítið, að á árinu, sem nú fer i hönd, komist aftur á fullkomlega frjáls verzlun með matvöru — hvað sem öðru líður. Það er því siður en svo, að menn geti gert sér bjartar vonir um árið sem í hönd fer, þótt endanleg úrslit séu bundin á ófrið- inn. Ösanninðin utn Vikið var að því nýlega hér i blaðinu hversu stærsla og gagn- legasta bjargráðafyrirtækið sem ráðist liefir verið í hér á landi, landsverzlunin, hefir verið blj'gðun- arlaust rægð fyrir alrnenningi, og að ekki hafi verið svifist þesa að balda á lofti og margendurtaka alger ósannindi um stofnunina. Skulu nú hér rölc leidd að þeirri staðhæfingu, með því að bera saman ummæli þess blaðs sem hér á einkum hlut að máli, sem er Vísir, við þær upplýsingar sem Tíminn liefir aílað sér hjá for- sljórum landsverzlunarinnar. Skal þá fyrst að því vikið sem Vísir segir (12. júní) um landsverzl- unina alment, sem er það, að okurverð sé á vörum landsverzlunar og að þrásinnis hafi orðið uppvíst um feikna verðmnn á vörum kaup- manna og landsverzlunar, þannig að heildsalar hafi f fyrstu sett miklu lægra verð en landsverzlun á sömu vörur. Þessi fullyrðing blaðsins er eins og flest annað úr þeirri átt ekki annað en órökstuddur sleggjudóm- ur, því að þó að svo kunni að vera að einhver kaupmaður hafi einhverntíma selt einhverja vöru litið eitt lægra verði en landsverzl- un, þá er ekki óalgengt að nota slíka aðferð sem auglýsingu og vinna þá hallann upp á öðrum vörulegundum. Hinsvegar gat og átt sér stað, að vörur, er keyptar voru inn löngu áður en lands- verzlunin gerði innkaup sín, væri hægt að selja að skaðlausu lægra verði en vörur landsverzlunar- innar. En það er tilgangslítið að deila um verðlag einstakra vörutegunda í það og það skiítið. Hitt er meg- inatriði málsins, að i regndinni hefir almenningi, vegna afskifta landsverzlunar, gefist kostur á að kaupa allflestar nauðsynjavörnr miklu lægra verði heldur en orðið hefði án íhlutunar þings og stjárn- ar um verzlunina. Órækasta sönn- unin fyrir þessu er, að landsverzl- uninni hafa borist víðs vegar að ummæli merkra manna, þar sem þeir fullyrða, að verð landsverzl- unarvara hafi verið 20—30°/o Iægra en vöruverð ýinsra kaupmanna, enda er það í fullu samræmi við ummæli þingmanna um verðlagið. Um slíkan verðmun getur nú varla verið að ræða eftir að Iandsverzl- un hefir ákveðið hámarksúlsölu- verð á nauðsynjavörum. Hinn 17. júní kemst Vísir að þeirri niðurstöðu, að landsverzl- unin selji hverja smálest af kol- um 100 kr. ol' dýrt. Þessa full- yrðing endurtekur blaðið svo hvað eftir annað. Telur það alkunnugt, að þetta sé svona. Hver er sannleikurinu? Hann er þessi: Meðalverð 16 kolafarma á höfn á íslandi: Smálestin kr. 284,70 Vörutollur og hafnargjöld — Uppskipun, lóðargjald, heirnflutningur eða út- skipun................— Rýrnun 2°/o . . . um — Vaxtatap 30/0 - • - — — Reksturskostnaöur 2°/o . — 3,50 12,00 6,00 9,00 6,00 Samtais kr. 321,20 Vefengi Vísir, ef hann treystir 1. blað. sér til, þetta verðlag af hálfu for- stjóranna. Kolin hafa nú lengi verið seld á 325 kr. smálestin. Álagning landsverzlunarinnar er kr. 3,80, en Vísir segir að hún sé 100 kr., og fullyrðir það hvað eftir annað. Það mun ekki ofmælt, og er þó langt jafnað, að hér sé um að ræða einhver ófyrirleitnustu ósann- indi sem höfð hafa verið að vopni í íslensku stjórnmálalífi. Má benda á það, í sambandi við kolaverðið, að aðalkolaverzbmin hér í Reykjavík hefir takmarkað mjög verzlun sina vegna þess að hún hefir ekki séð sér fært að selja kol sama verði og Iands- verzlunin. Gott sýnishorn af tillögum Visis um landsverzlunina, og þeim af- leiðingum sem af hefði orðið, ef fylgt hefði verið, getur að líta 16. ágúst. Þá telnr Vísir það höfuð- synd í kolamálinu að landsverzl- unin aflaði sér ekki nægilegs skipa- kosts til þess að flytja kolabirgðir til landsins, þegar hinn ótakmark- aði kafbátahernaður hófst. Hæfi- legur kolaforði til ársins hafði þá verið áællaður 60 þús. smálesiir. Vísir mundi kjósa svo vitra stjórn, að hún hefði birgt landið til tveggja ára þ. e. með 120 þús. smálestum. Á þeim tima sem hér er um að ræða, sló svo miklum óhug á sæ- ! farandi þjóðir heimsins að skipa- göngur hættu að mestu milli vmsrs landa. Langmestum erfiðleikum var þó bundið að halda uppi sara- göngum við England, þar sem kaf- bátahættan var inest. Undir þessum kringumstæðum vildi Vísir láta landsverzlun útvega svo sem 120—200 skip til Eng- landsferða og laka 20—30 miljón króna lán til þess og kolakaup- anna. Hvað virðist mönnum um slika tiilögu? Kunnugir mei n geta giskað á hvað Vísir hefði sagt ef iands- stjórn og landsverzlunar hefðu iekið slíkt upp hjá sjálfum sér, Hinn 9. april gerir Visir sements- kaup landsins að umtalsefni. Blaðið heldur því fram að landsverzlun- in kaupi aðallega sement frá Bandaríkjunum, þótt hver tunna þaðan komin sé 20—30 kr. dýrari en frá Danmörku. Ennfremur gef- ur blaðið það í skyn að íslenzka stjórnin hali fengið dönsk.u stjórn- ina til þess að hindra sements- flutninga hingað til lands frá Dan- mörku, til þess að hið ódýra danska sement hindraði ekki okur landsvejrzlunarinnar. Hið sanná i þessu máli er, að í fyrstu þegar landsverzlunin Uátaöi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.