Tíminn - 05.03.1919, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.03.1919, Blaðsíða 1
TÍMINN að minsla kosii 80 blöð á ári, kostar 5 krónur árgangurinn. AFGREIÐSLA i Reykjavik Laugaveg 18, simi 286, út um land. i Laufási simi 91, *♦? III. ÁT. Reyfejavík, 5. niars 1919. 15. blað. Hnssneska bsttaa. Maður heitir Edward Ross. Hann ®r kennari í félagsfræði við há- skóla einn í Bandaríkjunum og nafnkendur fyrir rit um þau efni. Hann hefir nú nýverið dvalið all- lengi í Rússlandi til að sjá með eigin augum aðfarir byltingar- mannanna. Á leiðinni heim hittu hann að máli franskir blaðamenn og leituðu álits hans um það, hvort líklegt væri, að maximalista- hreyfingin bærist frá Rússiandi til jðnaðarlandanna í Mið-Evrópu og til Bandaríkjanna, svo að til borg- arastyrjaldar drægi í þeim löndum. Ross áleit þá hættu ekki ýkja- mikla. Ástæðurnar væru svo frá- munalega sérkennilegar í Rússlandi. Sameignarandinn væri þar gamall Og íótgróinn. Rjóðin að eðlisfari gæf og draumlynd. Kenningar Tol- stoys um að hver maður ætti að ráða fyrir sínum hag og ekki annara hefðu sproltið úr þessum jarðvegi, enda orðið þar vinsælast- ar og áhrifarnestar. Þjóðin væri vön harðstjórn, lítt ment og ger- samlega óæfð að fara með lýðfrelsi og hófleg sjálfbjargarsamtök. Þegar hungursneyðin herti að slíkri þjóð, væri síst að furða þó aðfarir múgs- ins yrðu lítt skipulegar. í Þýskalandi væri jarðvegurinn allur annar. Þýska alþýðan vön að ráða fram úr sínum málum innan verkalýðssamtakanna, blýta stjórn og skipulagi, vinna lengi og eftir föstum reglum, að því að ná settu marki. Að vísu gætti öfga- manna allmikið í þýsku bylting- unni, en þó vantaði bersýnilega þann frjósama jarðveg, sem félag- ar þeirra í Rússlandi fyndu í átt- högum sínum. í Frakklandi og Englandi væru örðugleikarnir fyrir byltingamenn þvi nær óyfirstíganlegir. Landslýð- urinn fagnaði sigrinum af alhuga. Engin fyrirsjáanleg neyð þrýsti að almenningi. Frá hálfu landstjórn- anna væri feiknamikið gert til að koma bermönnunum að lífvænlegri atvinnu. Hagsmunir fátækari stétt- anna væru svo trygðir, að þeim væri sýnilega alt annað en hagn- aður að friðslitum og blóðsúthell- ingum innanlands. En þótt ótrúlegt mætti virðast, þá myndi uppreistarandinn fremur geta blossað upp í Bandaríkjun- hm heldur en á hinum barmi Atlantshafsins. Þar væri alt undir Þvi komið, hversu auðvaldið ame- ríska tæki í strenginn. Verkkaup hafði hækkað feiknamikið á með- an stóð á styrjöldinni. Verkamönn- um liði nú betur en fyrir stríðið. En ef farið yrði að þrengja kosti þeirra, lækka lcaupið, og reyna að setja þá aftur í sömu spor, sem þeir slóðu í vorið 1914, þá færi hættan að nálgast. Verkföll og iðn- aðardeilur myndu skjólt fylgja, og erfitt að segja hvar látið yrði staðar numið. í Bandaríkjunum er auðurinn nú orðin mestur og misskiftastur. Það er líklega af því að dr. Ross treystir ekki fyllilega sanngirni og drengskap peningaburgeisanna, í landi sínu, úr því hann hann álít- ur þessu Qarlæga lýðveldi einna mesta hæltu búna, af neistunum, sem fljúga af bálinu mikla á rúss- nesku sléttunum. jHeiri jramkvsmðir, meiri tekjnr. Pað er ''næsta eftirtektavert að það er vegna fjármálastjórnarinn- ar, sem danska stjórnin hefir orðið að fara frá völdum. Mesti afburða- maðurinn í þeirri stjórn var þó fjármálaráðherrann. Og í flestum erlendum löndurn hefir einna mest verið krafisl af fjármálaráðherran- um. Og það verður eigi síður á þeim tímum sem nú fara í hönd, samliliða friðnum. Kröfurnar til Qármálastjórnar- innar hafa aldrei verið meiri en nú, að hún sé hvorttveggja í senn: hagsýn og um leið ötul að afla fjár handa ríkissjóði. Öll ríki lieimsins eru nú lang- samlega miklu skuldugri en þau hafa nokkru sinni verið og það af eðlileguin ástæðum. Þær skuldir verður að borga. í annan stað má gera ráð fyrir því að bandamenn leggi enn ein- hverskonar stiíðsskatt á hlutlausu þjóðirnar fyrir það, að »liafa unn- ið striðið fyrir þær«. Og verður að sjá við þvi, og ríkin að einhverju leyti líka að gera það. Loks verður það bráðnauðsynlegt til þess að standast þá samkepni sem nú hefst í heiminum, að rikin takist á hendur miklu meiri fram- kvæmdir en áður og það á mörg- um sviðum, styðja atvinnnvegi landsins og greiði fyrir þeim, og hjálpi til þess að allar auðs og orkulindir landanna verði notaðar á hinn fylsta og arðvænlegasta hátt. Alt á þelta við um okkar land og allra helst um síðasta atriðið. Eigi íslenska þjóðin að standast í þeirri samkepni sem nú stend- ur fyrir dyrum, verður ríkið að stofna til miklu meiri framkvæmda en nokkru sinni áður, til þess að gera mönnum auðveldara að nota auðsuppsprettur landsins, til þess að hleypa nýju fjöri í atvinnu- vegina. Á þelta einkum við um land- búnaöinn sem er að verða á eftir, sem á við miklu erfiðari aðstöðu að búa. Þelta á við um samgöngurnar sem rakið er og hefir verið ræki- lega hér í blaðinu. Þetta á við um menlamálin, og ríður allra mest á því að sú hlið framkvæmdanna sé ekki vanrækt, um að gera þjóðina hæfa í sam- kepninni við aðiar þjóðir. Ríkið þarf að framkvæma miklu meira en áður. En til þess að geta framkvæmt svo mikið sem þarf, þarf rikið miklu meira fé en áður. Við verðum að leggja það á okkur að bera meiri byrðar en áður, og það verður að finna nýj- ar og réttlátar leiðar um að láta þær byrðar koma niður á lands- menn, samhliða hinu, sem lang- flestir munu nú orðnir sammála um, að hætta verður að taka fé í landssjóð með þeim óréttlátu að- ferðum sem nú tíðkast. Án þess að þetta verði gert, er alt skraf um framkvæmdir sem koma verði í verk, fánýtt bjal, loflkastalar sem aldrei koma við jörð. Þess vegna er það nú mesta lífs- nauðsyn fyrir íslensku.þjóðina að eignast hagsýna fjármálastjórn, sem um leið er framsýn og ötul að afla landinu tekna og vill fara rétt- látar leiðar í þeirri fjáröflun. Pess vegna er það eitthvert allra mesta nauðsynjamál, að fjármála- sljórnin leggi fyrir næsta alþingi rækilegar tiliögur um þá stefnu sem ber að hefja um að auka tekjur landsins að miklum mun. þjóðin hlýtur að gera þá kröfu til fjármálastjórnar og þings, að það verði gert sem unt er og á sem réttlátastan hátt, sem gera þarf lil þess, að gera ríkið hæft til þess að leysa af hendi þær skyld- ur sem á það leggjast, að það hafi það fyrsta sem til þess þaif — nóg fé. Landssjóðinn íslenska vanlar fé til miklu íleiri mála en nú hafa verið talin. Ekki síst þeirrar hættu að minnast, að þjóðin er óðum að missa úr þjónustu sinni marga nýta menn, vegna þess að lands- sjóður er orðinn langar leiðar á eftir einstaklingum, um að launa starfsmönnum sinum sæmilega. Sá hugsunarháttur er að deyja, að vilja skorast undan öllum gjöld- um. Menn vita það nú orðið að það sem borgar sig verst er það, að láta hjá líða að hefjast handa um þær framkvæmdir sem gefa margfaldan arð. Þess vegna mun þjóðin una því illa ef ekki er hugsað fyrir því, að afla þess fjár handa landssjóði sem þarf til þess að hrinda þeim verk- um í framkvæmd sem margfalda möguleikana til að lifa í Iandinu. Og hún mun fús leggja á sig að bera þá skatta, sem hún fær marg- faldlega endurgoldna. Nýir tímar. Nær hvervetna sem litast er um I sveitum hérlendis, gefur að líta talsverðar umbætur, sem orðið hafa að mestu leyti nú á síðustu árum; umbætur sem eru að verða varan- legar. Með því að telja þær var- anlegar, er ekki eingöngu átt við það, að mörg umbótaverkin þurfa nú minna viðhald og eru varan- legri en áður hefir verið, heldur og lika átt við það, að þessi verk eða framkvæmdir eru að ná fót- festu, eru að verða bundnar við venjur og dagleg störf manna. Landið sýnir það sjálft og bú- fénaðurinn, að landbúnaðurinn stendur hér ekki á gömlum merg, að neinu verulegu, hvorki i auð- söfnun eða framkvæmdum. Og sögubrot landbúnaðarins herma okkur, að viðleilnin til umbóta er, í framkvæmdum og máli — alt fram að síðustu tímum — að eins hjá fáutn mönnum. í*að mun láta nærri, að byrjun 20. aldarinnar, sé aðal-upphaf búnaðarmenningar íslenskra bænda. Hart nær að aldamótum þessum lá það i landi hér, til sveita, að vistir fólks voru mjög litlar tíma úr árinu. í manna minnum er það, að menn urðu að fella gripi að vorinu, til að seðja hungur silt. horfellir búfjár víða árlegir við- burðir, og ræktað land nær ekkert, þótt borið væri tað á hóla og karga-þýfi og garðholur væru við suma bæi, húsin voru köld og svo illa bygð, að þau þurftu oft árlega viðgerð. Sveitafólk það, sem nú lifir hér, á efri árum, er flest alið upp við sult og seyru og í bernsku þess hrundu börnin niður tyrir kuldasakir og vanhirðu. Á þessu öllu var hjarðmanna-bragur. Nú er öldin önnur: Sultur hjá fólki mun vart finnast til sveita, kuldinn viðast rekinn á dyr út úr- bæjunum, ræktað Iand vex hröð- um fetum og horfellirinn fer bráð- um fyrir kattarnef.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.