Tíminn - 12.03.1919, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.03.1919, Blaðsíða 2
66 TIMIN N fundahöld þar, sími, póststöð o. s. frv. Þar sem þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi, þar yrði þessu skipulagi ekki komið á. Mætti geta þess, að þar sem þetta væri látið svo óbundið, land- ið ræki ekki á eftir að öðru leyti en því að heita ríflegum styrk, þá þarf ekki að gera ráð fyrir, að þetta skipulag kæmist á fyrst um sinn nema t. d. á einum stað i sýslu. Væri þá sú leið opin, að nota skólahúsin og kenslukraftana nokkurn tíma á vetrinum (2—3 mánuði) til barnafræðslunnar, en hinn tímann til unglingafræðslu, enða væri þá það umdæmið þeim mun stærra, unglingarnir gætu sótt skólann úr allri sýslunni og víðar að, eftir því sem samkepni yrði milli skólanna, þann tíma sem sá skóli stæði. Mætti enn fremur minna á þá tilhögun, sem dæmi er til um, að sameina kirkju og skólabygging. Hvað ynnist við þetta skipulag? Eg vil vera svo bjartsýnn að trúa því að a. m. k. tvent ynnist. Fyrst og fremst það að fræðslan yrði að mun betri. Það afleita á- stand sem nú er um fræðsluna til sveita mundi batna að stórum mun og það ekki einungis þar sem þetta skipulag kæmist á. Þetta einmitt í sveitum, þar sem það á lengst i land að koma á hinu endanlega skipulagi, vegna örðugleika og kostnaðar. Þetta einmitt í sveitunum, sem hafa lagt til og munu leggja til hestu og heilbrigðustu starfskraft- ana hjá þjóðinni. Og er það ein aðalástæðan, að hraða sér að stíga þau skret þegar, sem unt er að stíga, um að menta og þar með koma fram á slarfssviðið þeim kröftum sem þar eru til. Og þelta er vitanlega aðalatriðið. Hitt er það sem veit að mann- inum sem með þetta starf færi. Með þvi tvennu, að launa hon- um svo sæmilega að hann gæti lifað, gæti átt ráð á að kaupa bæk- ur og tímarit, gæti átt ráð á að taka sér frí á sumrin, til mentun- ar og hressingar, og hinu að fá honum nógu stóran andlegan verka- hring, sem hann gæti unnið í allur og óskiftur, — með þessu tvennu segi eg, að ættu að skapast miklu betri skilyrði til þess, að þar sem þessi maður væri, ætti bygðarlagið virkilegan andlegan leiðtoga, mann sem bæði gæti og teldi sér skylt að vera forystumaður á andlega sviðinu allur og óskiftur. Og það verður aldrei metið hve mikið gott getur leitt af slíkum manni. Þessum tillögum er skotið fram án þess að þær séu gjörhugsaðar, til þess að koma hreifing á málið, til þess að menn ræði það á þess- um grundvelli, enda mun rúm iátið í té hér í blaðinu til þess að ræða málið með og móti. . Og það skal endurtekið sem áður er sagt, að þetta er ekki hugsað öðruvísi en sem bráðabirgða skipu- lag, og menn beðnir að athuga um leið og þeir dæma þessar til- lögur, ástandið eins og það er, og að undirstöðuatriði er það að það yrði lagt á vald héraðanna að koma á þessu skipulagi og á vald prestsins og kennarans að taka því. TJm skólamál. Skólamálin íslensku eru að miklu leyti í »grænum sjó«. Allir eru ó- ánægðir. Foreldrar barna og ung- linga, þeirra sem i skóla fara. Námsfólkið sjálft, og þá ekki síst kennararnir. Og ef skynbær gestur kæmi í bæinn, og rannsakaði hlut- ina eins og þeir eru, þá geri eg ráð fyrir að bonum fyndist óánægj- an á góðum rökum bygð. Að lík- indum hefir íslenska þjóðin versta skólafyrirkomulagið sem til er norðan Mundíufjalla. Sumir myndu af þessum stað- reyndum draga þá ályktun að við æltum að leggja niður alt skóla- hald. Helsta röksemdin gegn þvi er sú, að þó að við höfum lélega skóla, þá hafa margar þjóðir góða skóla. Gengileysi okkar i þessum efnum er því að kenna, að við höfum kastað höndum til fram- kvæmdanna í uppeldismálum. Lán- að erlent form, en ekki andann, sem einn gaf forminu gildi. Þeir einir hafa bjargfasta ótrú á allri aðhlynning frá rikisvaldsins hálfu, skólum og uppeldi til handa, sem eru þaulkunnugir göllum íslensku skólanna, en vita lítið eða ekki neitt um reynslu annara þjóða í þessu efni. Ef skaplega væri að farið, myndi skólahald geta borið óvenjulega mikinn árangur hér á landi. Veld- ur því námfýsi, fróðleiksfýsn og bókelska þjóðarinnar. Ekki skortir heldur aðsókn að mentastofnunum okkar. Allar holur fullar, jafnvel þar sem vistin þykir vest. Þessi einkenni mættu verða að hinu mesta liði, ef reynt væri, áður langt líður að koma í verk óhjá- kvæmilegum endurbótum. Myndi sjálfstæði landsins og framtíðar- gengi i litilli hættu, ef vel og heppi- lega yrði ráðið fram úr mentamál- unum. Umræður eru fyrst stigið. Siðan koma framkvæmdirnar.1) 1) Helstu umbótatillögur nýfram- komnar eru i greinum Arnórs Sigur- jónssonar og Þórólfs Sigurðssonar í nýútkomnu hefti Réttar. Enn fremur grein Árna Þorvaldssonar i Iðunni og Eydals í Degi. Verður síðar vikið að sumum peirra. Tvö nýmæli hafa komið fram í skólamálunum á síðustu árum. Bæði merkileg, Virðast í fljótu bragði ósamrýmanleg eins og eld- ur og vatn, en eru þaö þó ekki, ef betur er að gáð. Önnur krafan er sú, að mentamálsfrömuðir lands- ins verði að taka tillit til islenskra staðhátta og þjóðreynslu. Er þar einkum átt við sjálfmentun almenn- ings, sem eigi rætur jafn langt aftur í tímann og sagælandsins nær. Hún sé að mörgu leyti einstæð í sinni röð, og henni eigi íslenskt þjóðerni líf sitt að þakka. Þvi er haldið fram, að það væri þjóðar- ólán, ef þessi þráður yrði slitinn, og misheppileg skólavist látin vera einvöld um uppeldi þjóðarinnar. Hin krafan er sú, • að tekið sé fult tillit til helstu erlendra fyrir- mynda. Ekki megi láta sér nægja að líkja eftir okkar bálfskapaða skólafyrirkomulagi. Fyrirmyndir séu altaf að skapast með mentuðu þjóðunum. Það megi þó varla minna vera, en að það besta sem til er, sé þekt hér, og reynt að færa sér í nyt þær fvrirmyndir. Ekkert virðist sanngjarnara, en að vel sé tekið í báðar þessar kröfur. Sjálfsmentin íslenska er merkileg. Hún þarf að fá nægi- legan stuðning, til að geta notið sín fyllilega. 1 því efni er þjóðlega fyrirmyndin best. En af því að sjálfmentun getur ekki útrýmt skól- unum, heldur hefir sitt sérstaka svið, er ekki annars kostur, en að freista að gera þá skóla sem til eru sæmilega úr garði. Þar koma erlendu fyrirmyndirnar meir til greina. íslenska reynslan er á því sviði ærið veigalítil. Af nýungum úr erlendum skóla- mála-hreyfingum, sem borist hafa hingað til lands, og vakið nokkra eftirtekt, má einkum nefna tvent. Annað eru rannsóknir um líkamlega og sálarlega þróun barna og ung- S álar rannsóknar ýéla gið og kirkjan. Tiðindum þykir það sæta, að stofnað er sálarrannsóknafélag I höf- nðstaðnum. Munu margir gleðjast yfir stofnun þess, því megni það, að ná því markmiði, er það stefnir að, skiftir það miklu fyrir allar sannleiksleitandi sálir; síst ætti kirkjunni að vera það tjón, að visindalegar sannanir fengjust fyrir einu af þýðingarmestu grundvallar- atriðunum í kenningu hennar, o: kenningunni um lif og sjálfstæði mannsandans eftir andlátið. ís- lenska kirkjan hefir hingað til lát- ið stefnuna afskiftalausa og mun væntanlega gera það enn fyrst um sinn. Stefnan er kornung, og því varla þess að vænta, að hún hafi vfsindalegar staðreyndir að bjóða. Þótt einstöku vísindamenn hafi hallast að henni, og það sumir ekki fyr en sorg og ástvina-missir þrengdi að bjarta þeirra, þá verð- ur kirkjan að sjálfsögðu, að gæta allrar varúðar, áður en hún tekur gildar staðhæfingar þeirra, og fer að breyta boðskap sínum um þetta efni, o: prédika skoðun í stað trúar. Forvígismenn »spíritista«-stefnunn- ar, ættu að láta sér nægja, að kirkjan sýnir þeira fult umburðarlyndi, meðan starfsemi þeirra er á þessu bernskustigi. En þar sem kirkjan hefir nú sýnt stefnunni þetta um- burðarlyndi, undrar mig það næsta, hve kalt andar í garð kirkjunnar í ræðum þeim, er haldnar voru við stofnun sálrannsóknafélagsins um daginn í Reykjavík. Tveir af aðal-ræðumönnunum, Einar H. Kvaran og Þórður Sveinsson, gera ástand kirkjunnar þar að umtals- efni og kveða þann dóm upp yfir því, að það sé kolsvart gróðurlaust flag. Hvað felst í þessum dómi? — Að kristindómurinn, í þeirri mynd, sem hann er nú boðaður, sé svift- ur sínu upprunalega lifsafli, og veiti því dauða en ekki Hfi inn í sálir mannanna. Að alt trúarlif- sé þvi aldauða í landinu. Að engin sál lifi nú framar i Iífssamfélagi við guð. Að hvergi verði vart við kærleiks- ávexti kristindómsins í lífi manna. Að bænir manna séu kraftlaust andlaust orðagjálfur, eða eigi sér ekki stað. Að alt hið góða, fagra og göf- uga, sem kristindómurinn fyrrum glæddi í hjörtum manna, merkist nú ekki framar; í akri bjartnanna geti ekkert að líta annað en dautt, kolsvart og gróðurlaust flag. Enn fremur segir Þórður Sveins- son, að þekking kirkjunnar á ósýni- legum heimi og sambandi við hann sé glötuð. Hvilíkur ógna dómur. Sem betur fer er það gefið i skyn, að lífsstefnan sjálf, kristindómur- inn, og höfundur hennar eigi hér ekki sök að máli, og hlýtur því sökinni að vera beint að boðber- um hennar, og þá í raun og veru öllum þeim, er kenna sig við hana, en auðvitað hlýtur þó klerkastéttin að bera þyngstu ábvrgðina. — Mér kemur ekki til hugar að mót- mæla þvi, að vér verkamenn kirkj- unnar séum veikir, breiskir og ó- fullkomnir. En að starfsemi vor hafi verið svo meingölluð frá rót- um, að hún hafi þvf einu til vegar komið, að gjörspilla gróðurmagni kristindómsins i mannshjörtunum,. því leyfi eg mér að mótmæla ein- dregið, sem allsendis staðlausura sleggjudómi. Og þá kröfu ætti að mega gera til hinna heiðruðu ræðu- manna, þar sem þeir eru bæði gáfaðir, mentaðir og sannleikselsk- andi, að þeir slengdu ekki fram slíkum dómum. Það lætur að Hkindum, að oss prestunum ætti að vera kunnugra um hið andlega ástand kirkjunnar en öðrum. Nú get eg flutt hinum heiðruðu ræðumönnum þau gleöi- tiðindi, að dómur þeirra urn á- stand kirkjunnar er fjarri öllu lagi. — Eg kalla þetta gleðitiðindibæði af því, að eg býst við að hjörtu ræðumannanna hafi fylst djúpri hrygð er þeir kváðu upp þenna óttalega dauðadóm yfir kirkjunni* og af því bæði mér og^ öðrum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.