Tíminn - 02.05.1939, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.05.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1D. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1d. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA h. f. Símar 3948 og 3720. 23. árg. Reykjavík, þriðjudagmit 2. mai 1939 Fáránleg saga um að ,mann- úð sé bönnuð á íslandi* Fröken Katrín Thoroddsen og aðrlr efnaðri borgarar Iiafa næga möguleika til að sýna fátækum börnum mannúð. 50. blað / úthverfum Parísar er unnið að því af miklu kappi að grafa einskonar skotgrafir, og verður þar komið fyrir gas- og skotlieldum skýlum. Lengd grafanna skiptir tugum km. Á almenningur að flytja þangað, ef loft- árásir ber að höndum. Myndin gefur nokkra hugmund um þetta verk. Kommúnistar hafa að undanförnu lagt Hermann Jónasson forsætisráðherra sérstaklega í einelti í blöð- um sínum og eru árásar- efnin að jafnaði hin fárán- legustu. Eitt seinasta árás- arefnið er það, að forsæt- isráðherra hafi „bannað mannúð á íslandi“, þar sem ekki hafi verið leyfður inn- flutningur á Gyðingabörn- um til landsins! í þetta skiptið hefir blaðið notið hjálpar eins af læknum bæjarins, frk. Katrínar Thor- oddsen, sem í langri blaðagrein í kommúnistablaðinu 28. f. m. reynir að ófrægja forsætisráð- herann sem mest fyrir afskipti hans af þessu máli. Segist hún hafa ætlað að taka austurrískt Gyðingabarn til fósturs í 1—2 ár, en forsætisráðherra hafi neitað þvi um innflutningsleyfi eftir að hafa dregið svarið all- lengi. Telur hún þetta benda til þess að hann „sé eitthvað af- vegaleiddur andlega af dikta- torsdýrkun“ og ber sig mjög aumlega yfir því, að hafa misst aðstöðu til að svala mannúð sinni og hjálpfýsi við þá, sem illa eru staddir. Vegna þess að kommúnistar hafa reynt að koma ýmiskonar umtali af stað í sambandi við þessi skrif frk. Katrínar, hefir Aðalíundur Kaupfé- lags Þíngeyínga Viðskiptavelftan 1,4 millj. kr. síðasftl. ár Aðalfundur Kaupfélags Þing- eyinga var haldinn í Húsavík dagana 2. til 4. apríl. Pundinn sátu 43 fulltrúar frá 22 deildum, ásamt stjórn og endurskoðend- um. í upphafi fundarins var hins nýlátna öldungs Benedikts Jóns- sonar frá Auðnum minnst. Hann hafði nálega undantekningar- laust mætt á aðalfundum fé- lagsins frá stoínun þess 1882 og verið ritari þeirra alla þá stund. Setið í stjórn félagsins í 40 ár, unnið félaginu og unnað því — og félagsmenn unnað honum, og gert hann að heiðursfélaga. — Vörusala félagsins árið 1938 var 733 þús. kr. og hafði aukizt frá fyrra ári um 76 þús. kr. Vöruveltan öll nam 1460 þús kr. Pélagið lækkaði skuldir sínar út á við um 27 þús. kr. á árinu. Sjóðir jukust um 63 þús. kr. Skuldir viðskiptamanna lækk- uðu um 18 þús. kr. Tekjuafgangur ársins varð kr. 56,165.69. Fundurinn ákvað að úthluta 10% til félagsmanna af ágóðaskyldum vörum, eða um 32 þús. kr., 5% af því leggjast í stofnsjóð, en 5% verða útborg- að. Yfirfært til næsta árs 24 þús. kr. í félaginu eru nú 700 félagar. Sameiginleg kaffidrykkja var fundardagana fyrir fundarmenn og fundargesti og var undir borðum skemmt með ræðuhöld- um, kvæðalestri og söng. Auk þess hélt félagið tvö Skemti- kvöld fyrir félagsmenn og gesti þeirra. Sótti þau mikill mann- fjöldi. Þar var til skemmtunar: Kvikmyndasýningar, erindi og upplestur skáldsögu og kvæða. Tíminn aflað sér upplýsinga um, hvernig máli þessu væri varið: Skömmu fyrir seinustu ára- mót snéri Friðarvinafélagði sér til ríkisstjórnarinnar og bað um leyfi til að mega flytja hing- að nokkur Gyðingabörn (ekki 10 eins og frk. Katrín segir) frá Þýzkalandi, og hafa þau hér „um stundarsakir“. Forsætis- ráðherra sendi þá skeyti til sendiherra íslands í Kaup- mannahöfn og óskaði eftir vitn- eskju um afstöðu hinna Norð- urlandaríkjanna. í svari sendi- herrans kom það fram, að þessi mál væru yfirleitt i höndum einstakra félaga, sem sæju um móttöku barnanna, en innflutn- ingur þeirra væri af hálfu hins opinbera þeim takmörkunum bundinn, að aðeins væri um bráðabirgðadvöl að ræða og að börnunum væri tryggt innflutn- ingsleyfi til annars lands innan ákveðins tíma. Forsætisráðherra taldi sjálf- sagt, að ísland fylgdi í þessum efnum samskonar varúðarregl- um og hin Norðurlöndin. Hann lét því Friðarvinafélagið vita, að innflutningur á þýzkum Gyð- ingabörnum hingað yrði bund- inn þessum skilyrðum. Mun Friðarvinafélagið ekkert hafa gert til þess að reyna að full- nægja þessum skilyrðum og þegar það endurnýjaði umsókn sína, án þess að hafa gert nokk- uð til að fullnægja þeim, svar- aði forsætisráðherra henni auð- vitað neitandi. Barn það, sem Katrin Thor- oddsen ætlaði að taka, var með- al þeirra, sem Friðarvinafélagið óskaði eftir að mega flytja hing- að. Þegar athuguð eru bréfa- skiptin milli Friðarvinafélags- ins og forsætisráðherra, sézt að það er með öllu rangt, að nokk- ur dráttur hafi verið á svörum forsætisráðherra. Má bezt af þessu marka, hversu fjarri lagi eru þær á- sakanir, sem forsætisráðherra hefir orðið fyrir í þessu máli. Hann hefir gert það eitt, að fylgja þeim reglum, sem nábúa- Guðmundur Pálsson á Oddsflöt 1 Grunnavík skrifar Tímanum meðal annars: Vorvertíð hófst hér eftir pásk- ana. Gera menn sér vonir um bætta afkomu sjávarútvegsins vegna gengis- lækkunarinnar, en sumir sjómenn ótt- ast þó, að talsverður hluti hagnaðar- ins lenti hjá fiskkaupmönnum, þar eð fiskurinn er seldur blautur hér við Djúp, og vonast eftir, að ríkisstjórnin hafi eftirlit með því að slíkt hendi ekki. Fimm hreyfilbátar eru gerðir út í Grunnavíkurhreppi, og hefir verið tekið upp útræði frá Grunnavík, sem er yzti hluti hreppsins. Hefir það gefizt ! vel, þrátt fyrir illa aðstöðu til þess að landa fiski. Hefir enn engin lend- ingarbót verið gerð hér eins og í flest- um öðrum verstöðvum. Hafa ýms verðmæti farið hér forgörðum, svo sem lifur og gota. Þrátt fyrir erfiðleika hafa hlutir Grunnvíkinga sízt verið lægri en annarra við Djúp. Áður fyrr var farið til vers í Hnífsdal eða Bolungarvík á vori hverju og hafði það tíðkazt frá ómunatíð. Fyrir aldar- fjórðungi áttu útvegsbændur í Grunna- víkurhreppi sjálfir verbúðir vestur í Kálfadal, undir miðri Óshlíð, milli Bol- ungarvíkur og Hnífsdal. Var sótt það- an til fiskjar á árabátum, bæði vetur og vor. — Sími var á síðastliðnu ári lagður um nokkurn hluta hreppsins þjóðir okkar hafa sett, en þær eru taldar víðsýnni og frjáls- lyndari í þessum málum en flestar þjóðir aðrar. Innflutn- ingur barnanna hefir hinsveg- ar strandað á því, að Friðar- vinafélagið hefir ekki fullnægt þeim skilyrðum, sem hliðstæð félög hafa uppfyllt annarsstað- ar á Norðurlöndum. Og svo að lokum þetta: Um það geta vissulega allir verið sammála, að þýzkir Gyð- ingar hafa verið miklu harð- ræði beittir og hafa fulla þörf fyrir hjálp. Alveg sérstaklega gildir þetta um börnin, sem verst þola erfiðleikana og hafa minnsta getu til að bjarga sér. En hins verður jafnframt að minnast, að möguleikar okkar til aðstoðar eru þeim takmörk- um bundnir, að hjálpin verði ekki á kostnað þeirra einstakl- inga hjá okkur, sem ekki eru síður þurfandi fyrir aðstoð. Þótt það sé gott og göfugmannlegt að hjálpa útlendu fólki, stend- ur hitt samt vafalaust nær, að hjálpa fyrst þeim, sem eru þess þurfandi hér. Það vill því miður stundum henda, þegar menn sýna mann- úð, a$ þeim sé það nokkurt á- nægjuefni að því sé veitt at- (Framh. á 4. síðu) og voru þá tuttugu og þrjú ár liðin síðan sú símalagning kom fjrst til tals á Alþingi. r r r Þegar fiskimálanefnd úthlutaði í vetur ríkisstyrkjunum til vélbátasmíða, hlaut Þorleifur Þorleifsson útgerðar- maður í Dalvík styrk til byggingar 24 smálesta vélbát. Er bátur sá nú í smíð- um hjá Gunnari Jónssyni á Akur- eyri. Auk þessa báts má gera ráð fyrir, að fengnir verði til verstöðvarinnar tveir aðrir bátar áður en sfldveiðar hefjast. r r r Refaeldi er víða stundað í Dölum og fer vaxandi Eru silfurrefir lang- algengastir, en nokkuð er einnig af blárefum og Alaskarefum. í Laxárdals- hreppi einum eru nú fimmtán refabú og eru 4—12 dýr í hverjum refagarði, auk refagarðsins í Ljárskógum, sem lengi hefir verið rekinn af sérfróðum mönnum, fyrst Jóni Guðmundssyni og síðan Guðmundi syni hans, og þeim bræðrum. Á síðastliðnu hausti var stofnað Loðdýraræktarfélag Laxdæla. Rekur það félagsbú. Var því valinn staður að Sauðhúsum og byrjað með sex dýr. Formaður félagsins er Sig- tryggur Jónsson hreppstjóri á Hrapps- stöðum. Gibralftar Seinustu vikurnar hafa heimsblöðin næstum daglega flutt fréttir um stórfelldan vig- búnað Breta í Gibraltar. Er engu líkara en enska stjórnin geri sér far um að láta birtast' sem greinilegastar frásagnir um her- varnir Breta þar. Það er enn ekki fullkomlega kunnugt, hvað veldur þessum opinskáa fréttaflutningi um við- búnað Breta í Gibraltar. En mörg blöðin setja hann í sam- band við heimför Petain mar- skálks frá Spáni. Eins og kunn- ugt er, skipaði franska stjórnin þennan frægasta núlifandi hershöfðingja Frakka sendi- herra sinn þar. Var hann m. a. valinn fyrir þá sök, að hann var persónulegur vinur Francos. En hann hvarf heim eftir skamma dvöl á Spáni og hefir ekki farið þangað aftur. Þykjast blöðin hafa komizt á snoðir um, að hann hafi flutt frönsku stjórn- inni þau tíðindi, að ótrúlega mikill herafli væri hafður við landamæri Frakklands og Gi- braltar. Jaxnframt hefði hann talið, að vonlaust væri um að Spánn fengist til fylgis við Breta og Frakka. Búnaðarfélagið í Gaulverjabæjar- hreppi átti fimmtíu ára starfs að minnast í vetur og var það gert i byrj- un aprílmánaðar með samkomu í ung- mennafélagshúsinu hjá Gaulverjabæ. Þegar félagið var stofnað, var ákveðið, að hver félagsmaður skyldi árlega leggja 25 aura í sjóð, sem yrði síðar meir varið til verðlauna þeim, er fram úr sköruðu í einni eða annarri grein búnaðar. Nú eru ársvextir sjóðsins orðnir 70 krónur á árl og upphæðin öll um 1600 krónur. Á afmælishátíðinni var fimm mönnum veitt 25 króna verð- laun úr sjóðnum, ásamt heiðursskjali. Jafnframt var ársgjaldið til sjóðsins hækkað í 50 aura. Heiðursverðlaunin hlutu: Halldór Jónsson bóndi i Króki fyrir hænsnarækt, Sturla Jónsson bóndi í Fljótshólum fyrir grænmetis- rækt, Jón Jónsson bóndi á Vestri- Loftsstöðum fyrir kartöflurækt, ungfrú Guðbjörg Jónsdóttir á Syðra-Velli fyrir að kenna fólki matreiðslu og neyzlu grænmetis og fyrir vefnaðarkennslu og Jason Steinþórsson bóndi í Vorsabæ fyrir lagningu Vorsabæjarvegar og bú- hyggindi alla tíð. Stjórn búnaðarfélags- ins skipa Dagur Brynjólfsson hrepp- stjóri í Gaulverjabæ, Jason í Vorsabæ og Guðmundur Jónsson bóndi á Syðra- Velli. og Spánn Strax eftir þessa heimkomu Petains marskálks byrjuðu frá- sagnirnar um viðbúnað Breta í Gibraltar. Herstyrkur Breta þar hefir einnig verið stórum auk- inn. Sum blöðin telja, að Bretar hafi fengið fregnir um þær ráðagerðir ítala, að reynt yrði að taka Gibraltar með skyndi- árás áður en ítalska herliðið færi heim frá Spáni. Hvað, sem hæft kann að vera í því, er hitt víst, að bæði í ítölskum og þýzk- um blöðum hafa komið fram raddir um það, að Gibraltar ætti að tilheyra Spánverjum og það væri blettur á sjálfstæði þeirra, að þessi þýðingarmikli staður væri í höndum erlendrar þjóðar. Gibraltar er eitt þýðingar- mesta vígi enska heimsveldis- ins. Sökum yfirráða sinna þar og við Suezskurðinn geta Bretar lokað Miðjarðarhafinu hvenær, sem þeim þóknast. Það væri því engin furða þó keppinautar þeirra vildu ná Gibraltar úr höndum þeirra. Þótt Gibraltar sé ekki við mjósta hluta sundsins, er tengir Miðjarðarhafið og Atlanzhafið, er þaðan langbezt aðstaða til að hindra umferðina. Frá Gibralt- ar til stranda Afríku, er um 23 km. Gibraltar er hálend kletta- eyja, um 5 ferkm. að ummáli, og er tengd við meginlandið með mjóum granda. Það er því til- tölulega auðvelt að verjast það- an, hvort heldur, sem þangað er sótt af sjó eða landi. Gibraltar hefir lotið yfirráðum Breta síð- að 1704 og hafa Spánverjar gert margar árangurslausar tilraun- ir til að hrekja Breta þaðan, einkum á 18. öld. Bretar hafa byggt þar öflug hafnarmann- virki, bæði fyrir herskip og verzlunarflota. Er Gibraltarhöfn mikið notuð af verzlunarskipum Englendinga. íbúar Gibraltar eru um 20 þús. Það eru einkum loftvarnirnar, sem Bretar hafa eflt á Gibralt- ar seinustu vikurnar. í mörgum heimsblöðum er viðbúnaður Breta á Gibraltar einkum túlkaður á þann hátt, að hann stafi ekki fyrst og fremst af ófriðarhættunni, held- ur af breyttu viðhorfi á Spáni. Hingað til hefir verið góð sam- búð milli Breta og Spánverja og margir áratugir liðnir síðan, að Spánverjar hreyfðu seinast kröfunni um Gibraltar. Nú hef- ir ný stjórn, sem á keppinautum Breta völd sín að þakka, hafizt til yfirráða á Spáni. Bretar hafa að vísu sótt eftir vinfengi henn- ar og treyst í þeim efnum á fjármagn sitt. Viðbúnaður þeirra á Gibraltar virðist á ýms- (Framh. á 4. siðu) w A víðavangi Blöð Sj álfstæðisflokksins og ýmsir af foringjum hans hafa undanfarið rætt það af tals- verðri alvöru að berjast þurfi gegn dýrtíðinni. í því sambandi þykir rétt að minna á tillögu, sem Jónas Jónsson flutti í bæj- arstjórn Reykjavíkur á síðast- liðnum vetri. Hún var um bygg- ingu fisksölustöðvar hér í bæn- um. Með þeim móti ætti að vera hægt að tryggja bæjarbúum ó- dýrari og betri fisk, án þess að hlutur framleiðendanna þyrfti að minnka. Máli þessu mun hafa verið vísað til bæjarráðs og það óskað eftir áliti hafnar- nefndar. Síðan hefir ekkert um það heyrzt. Vonandi láta nú forvígismenn Sjálfstæðisflokks- ins ekki staðar numið við orðin tóm, heldur taka þetta mál og fleiri, sem miða að minni dýr- tíð í bænum, til athugunar og framkvæmda. * * * Bæjarflokkarnir, Sjálfstæðis- flokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Kommúnistaflokkurinn, reyndu eftir megni að hagnýta sér há- tíðisdag verkamanna í gær til að þykjast hver um sig vera hinn eini sanni velunnari verka- manna. En í öllum blöðunum, sem þeir gáfu út, og öllum ræð- um, sem þeir létu flytja, virt- ist gengið út frá því, að verka- menn ættu alltaf að vera þjón- ar, annaðhvort hjá einkafyrir- tækjum eða ríkinu, en aldrei sínir eigin húsbændur. Þessum mönnum virtist alls ekki geta dottið í hug, að verkamenn gætu orðið eigendur þeirra fyrirtækja, sem þeir ynnu við, og þyrftu þess vegna ekki að deila stöðugt um sitt daglega brauð við mis- jafnlega góðgjarna jxfirboðara. Getur þetta virkilega stafað af því, að þessir stjórnmálafor- ingjar séu enn haldnir af þeim fordómi, að verkamannastéttin sé einhver undirmálsstétt, sem ekki geti þrifizt nema í þjóns- aðstöðu? Hvort, sem svo er, og hvað sem þessir flokksleiðtogar kunna á annað borð að hugsa, ættu verkamenn að reyna að skapa sér þann metnað, að hætta að vilja hlíta því hlut- skipti að vera stöðugt þjónar, en stefna hinsvegar að því marki, að gerast sjálfstæðir þátttak- endur og meðeigendur í at- vinnurekstrinum og afnema þannig það skipulag, sem við- heldur stöðugum deilum milli atvinnuveitenda og verka- manna. * * * Formaður bifreiðastjórafé- lagsins Hreyfill, Hjörtur B. Helgason, skrifar grein í komm- únistablaðið, þar sem hann kvartar sáran undan þrælatök- um olíuhringanna. En allir vita hver er aðalfulltrúi þessara út- lendu auðhringa hér á landi. Lýsir formaður Hreyfils baráttu og örðugleikum Nafta við að halda benzínverðinu niðri og viðurkennir að ríkið hafi verið þar einn bezti aðilinn. Helzta vonin nú sé að samvinnufélögin geti eitthvað reist rönd við græðgí hinna erlendu auðkónga og leppa þeirra hér á landi. Eft- ir þessu að dæma virðast ekki allir kommúnistar vera jafn- blindir á heppilega handleiðslu olíukóngsins í hagsmunamálum fátækra alþýðumanna. * * * Garðar Þorsteinsson hefir ekki þótt neitt sérstaklega þinglegur í framkomu sinni á Alþingi. Þetta keyrði þó svo úr hófi fram seinasta þingdaginn, að Pétur Ottesen, sem hefir setið lengst af sj álfstæðismönnum á þingi, fann sig tilknúðan að rísa á fætur og veita Garðari áminn- ingu fyrir óþinglega framkomu. Lét hann m. a. ummælt á þá leið, að framkoma Garðars hefði verið með þeim hætti, að það væri blettur á þessari virðuleg- ustu stofnun þjóðarinnar að (Framh. á 4. siðu) A KROSSGÖTUM Úr Grunnavíkurhreppi. — Aukning á bátastóli Dalvíkinga. — Refaeldi í Döl- um. — Búnaðarfélagið í Gaulverjabæjarhreppi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.