Baldursbrá - 19.10.1934, Page 1

Baldursbrá - 19.10.1934, Page 1
1. Ár. Winnipeg, Manitoba, 19. október, 1934. Nr. 1. AVARPSORÐ Um leið og þetta litla blað heilsar tilvonandi lesendum sínum þykir bað viðeigandi að skýra frá erind- inu. Þessi ávarpsorð eru því fremur stíluð til hinna fullorðnu en til u'ngl- inganna sjálfra. Þjóðræknisfélagið hefir á ýmsan hátt gert tilraunir til þess að varð- veita íslenzka tungu hér vestan hafs. Hafa þær tilraunir sumar hepnart vel, en sumar miður, eins og gefur að skilja, því málefnið er afar erfitt viðfangs. Til þess hafa stjórnendur Þjóð- ræknisfélagsins fundið að varanleg áhrif þessara tilrauna geta því að- eins átt sér stað að þau nái til hinna ungu; því það er eins satt nú, sem skáldið kvað og það var þá að: “Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ert þú á framtíðarvegi”. Með þetta fyrir au'gum hefir Þjóðræknisfélagið gengist fyrir ís- lenzku kenslu í heimahúsum í all- mörg ár að undanförnu með tals- verðum árangri. En í fyrra var breytt þannig um kensluaðferð hér í Winnipeg að stofnaður var til þess reglulegur ungmennaskóli. Hepnaðist þetta svo vel að félagið hefir ákveðið að halda þeirri aðferð áfram; og með aðstoð fórnfúsra og góðra kennara má mikils vænta af því starfi. En það kom í Ijós við kensluna ' að ekki var völ á hentugum bókum eða blöðum til lestu'rs í sambandi við það starf. Auðvitað eru ágæt ungmennarit gefin út á íslandi — miklu full- komnari en hér eru föng á að gefa út — en sökum ólíkra staðhátta eru. þau rit ekki eins fullnægjandi hér vestra. Því hefir oft verið hreift áður að útgáfa ungmennarita væri hér nauðsynleg. Nú í sumar kaus Þjóð- ræknisféagið nefnd manna lil þess' að íhuga málið og veitti henni fult vald til þess að hefjast handa ef hún sæi. sér það fært. Hefir nú þessi nefnd ráðist í það fyrir hönd fé- lagsins, að stofna þetta litla blað. Er til þess ætlast og vonast að það megi vekja löngun og áhuga hjá hinum ungu til þess: að læra að lesa og tala íslenzkt mál; en með L

x

Baldursbrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldursbrá
https://timarit.is/publication/1042

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.