Hádegisblaðið

Issue

Hádegisblaðið - 17.02.1933, Page 1

Hádegisblaðið - 17.02.1933, Page 1
Nokkur orð til lesendanna. Amcr'?kur fíUBmaður sem guö Indíána. Ura leið og Hádegisblaðið hefur göngu sína, viljura vjer raeð nokkr- um orðum vekja athygli lesend- anna á atefnu blaðsins. Hádegisblnðið rnun verða algjör- lega sjálf8tætt og óháð öllum stjórnraálaflokkum. Það er lengi búið að vanta hjer slíkt blað, en úr þeirri vöntun er Hádegisblað inu ætlað að bæta. Sjerstakbga nú á seinni timum hefir borið rnjög A því, hve dagblöðin hafa verið einkennilega samtaka ura að þeg-ja. ura ýras mál, sera hafa borist raanna á milli, ef þau að einhverju leyti hafa snert óþægilega kaun hinna hærri stjetta. Þetta hefir þau skaðlegu áhrif, að almenningur er farinn að líta svo á, að það beri að taka vægari tökum á yfirsjón- um þeirra, sem hærra eru settir, heldur en hinna, sem lægra eru settir í þjóðfjolaginu. Hádegisblað- ið mun í þessu efni ekki fara i manngreinarálit. Það mun stinga á kílunura þar sem þau eru. án tillits til hver það er, sem i hlut á. Svo best er hægt að byggja upp heilbrigt þjóðfjelag, að meinsemdir þesa sjeu upprættar, hvar sem þær koma fram, en ekki yfir þær breitt, ef þær eru á vissum stöð um. Afleiðing sliks verður sjúkt og siðspillandi almenningsálit. 0g almenningaálitið er þegar orðið sýkt. Þeir menn, sem eru hærra settir í þjóðfjelaginu, álfta sig hafa rjett til að gera ýmislegt ósæmi- legt, án þess að fá jafn þunga refsingu fyrir og hinir, sem lægra standa í mannfjelagsstiganum. Al- menningur er líka farinn að trúa þessu, að svona eigi það l klega að vera. Sýnir það ljóslega þessi visa 8káldsins: Stelirðu litlu og standirðu lágt, i steininn þú settur veiður, en steliiðu míklu og standirðu hátt, í srjórnarráðið ferðu. Svona hug unarháttur er sið- spilling. Sje rjett að opinbera mis- gjörðir þeirra, sem lægri stjettun- um tilheyra, er eklci slður ástæða til að opinbera misgjörðir þr-irra, er í opinberum trúnaðarstöðum eru fyrir þjóðfjelngið. Ffádegisbla'ið mun láta sig miklu skifta öll menningar- og framfara- mál. Það mun flytja hlutlausa frá- sögn af gangi þingmála, eftir því sem rúm vinst til. Verður því handhægt fyrir þá, sem viÞ’a kynna sjer gang þingsins, að kaupa og lesa Hádegisblaðíð. Þvi það eru fæstir, sem hafa tfma til að sitja niður á þingi og hlusta á það, sem. þar fer fram, en hin bæjarblöðin flytja meira og minna litaðar frá- sagnir um þingmálin, eins og við er að búast, þar sem þau tilheyra slnum stjórnmálaflokkinum hvert. Hádegisblaðið flytureinnigfregn- ir af innlendum og erlendum við- burðum, er einhvers eru veiðir. I bl. ðinu verður altaf ein framhalds- saga, skemtileg og spennandi, og auk þess smásögur og skrltlur, eftir því sem rúm vinst til. Yfir- leitt munum vjer kappkosta að gera blaðið sem skemtilegast og fjölbreyttast að efni. Virðinga: fylst. Útgef. Fyrir ð árum, þegar allir stóðu á öndlnni vegna Atlantshafeflugs Lindberghs, lagði annar amerisk- ur flugmaður of stað 1 flugleið- angur. Flugmaðurinn hjet Paui Redfern. Ætlaði hann að fljúga l’rá Brunswick til Rio de Janeiro, og er sú leið 7U00 km. Hann komst aldrei til ákvörðunarstað- arins, og epurðist ekkert til hans frá þvi hann lagði af stað í flug- leiðangurinn, Nú alveg nýlega hefir það þó kornið í l.ós, að flugmaðurinn muni lifa í besta gengi í frum- 8kógum Brasillu, hjá viltum Indí- ána þjóðflokki, sem heldur honum sem fanga, en tilbiður hann sem guð einn. Landkönnuður nokkur og vjel- stjóri að nafni Charles Hasler var nýlega á ferð um Amasónrikið, þar heyrði hann sagt frá Indiána-þjóð- flokki, er tilbæði hvítan guð, sem hefði komið fljúgandi til þeirra ‘á stórum, suðandi fugli, sem hafði sveimað lengi yfir frumskóg- inum áður en hann befði sesUí rjóður i skóginum. Við eftirgrensl- anir Haslers, kom í ljós, að þetta hafði skeð fyrir 5 árum. Þykist hann viss um að hjer sje um að ræða flugmanninn Paul- Redfern. Leynilegur leiðangur, sem í eru suður-amerískir landkönnuðir, hef- ur þegar lagt af stað til að gera tilraun til að ræna Paul Redfern frá Indiánunum og koma honum aftur til menningarinnar.

x

Hádegisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hádegisblaðið
https://timarit.is/publication/1053

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.