Hádegisblaðið - 13.09.1940, Page 1

Hádegisblaðið - 13.09.1940, Page 1
I. árg. • Föstudaginn 13. september 1940. 1. tbl. Lítið Mað — Þetta litla dagblaö er að þrennu leýti frábrugðið öðrum dagblöðum, er út hafa komið hér á landi. f fyrsta lagi er það ó- pólitískt og lítur á landsmála- stefnur og flokkaskiptingu sér óviðkomandi. f öðru lagi óskar það ckki eftir föstum áskrif- endum og getur því miður ekki orðið við slíkum tilmælum. í þriðja lagi býður það engum að birta auglýsingar, nema hlutað- eigendur komi þeim sjálfir á framfæri við blaðið. Hádegisblaðinu er fyrst og fremst ætlað að vera fréttablað, og hvað viðvíkur flutningi er- lendra frétta, mun það Ieggja sig fram um öflun nætur- og morgunfrétta, og skýra frá at- burðum þess tímabils, sem ávalt er óbrúað milli morgunblaða, sem prentuð eru síðla kvölds og fyrri hluta nætur og nónblað- anna, sem verið er að prenta allan morguninn og nokkuð fram yfir miöjan dag. En láti sér einhver fátt um finnast og á- líti það ekki ómaksins vert að fylla þetta skarð, og sízt á þess- um róstu tímum, þegar allar fréttir séu lognar, og alltaf log- ið eins, þá er eitt ráð öruggt til að verða ekki fyrir óþægindum af þessu meinlausa blaði, nefni- lega að lesa það alls ekki. í tilliti til innlendra frétta munum við leitast við, og leggja á það alveg sérstaka áherzlu, að flytja frásagnir af þeim atburð- um og hræringum þjóðlífsins, sem hinum blöðunum sézt yfir, eða þykja ekki þess virði, að þeirra sé getið. í fámcnnu og flokkspólitískt fjötruðu landi sem íslandi er hundsun og yfir- hilmingar þekktari fyrirbrigði en margir hyggja í flutningi frétta. Stundum Ieynir sér ekki Þýzkar spreagjuflupélar gerðu ákafar árásir á London ! nótt. London í morgun kl. 8. Þýzkar flugvélar gerðu árás á London í nótt, og er það sjötta nóttin í röð, sem Þjóðverjar eru á sveimi yfir London. I þetta skipti urðu þýzku flugvélarnar að fljúga mjög hátt sökum ákafrar skothríðar úr loftvarnabyssum, og tókst fá- um þeirra að komast inn yfir borgina sjálfa. arfbundið, þegjandi samkomu- lag um þögnina. Það cr nú einu sinni svona. Á þessu er til önn- ur skýring, og hún er sú, að oft geta verið um það skiptar skoð- anir, hvau teljast skuli til frétta. Þegar einhver deyr eru það jafnan mikil tíðindi fyrir ættingja og vini hins látna. Þeg- ar barn fæðist er það mikill við- burður fyrir einhverja, stund- um marga. Þegar fólk stofnar til hjúskapar staðnæmast hugir margra við brúöarbeðinn. Það eru gómsætar fréttir. Þetta eru allt fréttir, sem og hver frásögn úr persónulífi þegnanna í fámennu landi, þar sem flestir þekkja flesta. Dánar- tilkynningar og hjúskaparfréttir eru vinsælasta efni, sem íslenzk blöð flytja. Og svo eru sorgbitn- ir vandamenn Iátnir horfast í augu við dýra auglýsingareikn- inga! Við flytjum ókeypis and- látsfréttir, en ekki „minningar- orð.“ Og við getum þess, þegar vinir ykkar eignast erfingja. Nýja heimsborgara eiga blöðin að bjóða velkomna í veröldina. En við slíku verður ekki tekið í síma. í trausti þess, að hvað frétt- ir snertir sé ávallt af nógu að taka, leggur þetta litla blað úr hlaði. Ef það getur ekki lifað, þá hverfur það aftur til dauð- ans. S. B. Enn hafa engar fréttir verið birtar um tjón af völdum árás- ar þessarar, en talið er, að það sé mjög lítið. Nokkrir eldar komu upp, en voru slökktir jafnharðan. Samgöngur í borg- inni eru með eðlilegum hætti. Árásiruar stóðu yfir frá því í gærkveldi og fram á dag. Klukkan rúmlega 7, þegar fólk var á leið til vinnu sinnar í London, var enn gefið merki um loftárás. Næturárásir Þjóðverja á aðr- ar borgir í Englandi voru minni en undanfarnar nætur. Nokkr- ar skemmdir hafa orðið á hús- um, en um manntjón er ekki getið. Þýzk flugvél var skötin niður yfir borg einni í Wales og lenti hún á húsi og eyðilagði það. I Midlands stóðu árásirnar lengur en nokkru sinni áður, án þess að valda þó verulegu tjóni. í þeim hluta landsins var nokkrum hvinsprengjum varp- að. Sprenging í púðurverksmiðju. Það er nú kunnugt, að 50 manns fórust, en 200 særðust Frh. á 3. síðu.

x

Hádegisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hádegisblaðið
https://timarit.is/publication/1054

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.