Hús & Búnaður - 01.03.1967, Blaðsíða 1

Hús & Búnaður - 01.03.1967, Blaðsíða 1
Hús&íl Búnaður MARZ 1967 LÁHDSBOKA'SAí ■' 272502 ÍSLAHDS Við kynnum hér vestur-þýzkar Leicht eldhús- innréttingar, sem nýlega eru komnar á mark- aðinn hér. Að því er bezt verður séð eru þœr einkar snotrar og bjóða upp á ýmsar nýjungar. Skápana, sem eru plasthúðaðir að utan og innan, er auðvelt að gera hreina, auk þess sem það sparar alla málningu og undirvinnu við innréttinguna. Skáparnir sjálfir fást í 5 litum en borðplatan í fjölmörgum og getur fólk valið sjálft eftir geðþótta og lit á veggjum. Skáparnir eru til í mismunandi stœrðum og gerðum, sem hœgt er að panta og auka við eftir þörfum og fjárhagslegri getu. Bezt vœri þó fyrir fólk, sem gœti ekki fengið alla inn- réttinguna i einu, að gera teikningu að henni fyrirfram. Skáparnir eru dregnir út og renna á sleðum svo þeir eru léttir þótt nokkur þungi hvili í þeim og ekki þarf að beygja sig inn undir borðið til að komast í hillurnar. Þessa skápa er einnig hœgt að fá með hentugum geymslurekkum eftir því til hvers á að nota þá. I hilluskápum er millibilið stillanlegt á fjöl- breyttan hátt. Skápalœsingar eru í lömunum °g standa því ekki til óþœginda út í skápana sjálfa, þegar tekið er út úr þeim eða látið inn I þá. Til að losna við skelli, þegar hurðun- um er lokað, er komið fyrir loftfylltum gúmmí- listum milli stafns og hurðar. Afgreiðslufrest- ur mun vera um 1 V2 — 2 mánuðir og er nauð- synlegt að fólk geri pantanir sínar í tíma. PÓLARIS H.F., HAFNARSTRÆTI 8, flytur þessar innréttingar inn og annast sölu á þeim ásamt rafmagnstœkjum, sem falla inn í þœr. Veitir fyrirtœkið nánari upplýsingar og fyrirgreiðslu. Símanúmerið er 21085. íér sjóið þið plastlistann, sem fellur upp að veggnum ofan við borðplötuna og lagar ig eftir honum þótt hann sé ósléttur eins og oft vill verða. Þetta er sérstaklega œtlað il að taka af hugsanlegar veggskekkjur. • fl'Wj

x

Hús & Búnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.