Bóndinn - 25.10.1943, Page 1

Bóndinn - 25.10.1943, Page 1
i.Jk. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Bjarnason Simi 5550 PRENTSMIÐJAN EDDA H.F. 1. tölublað BLAÐ UM FRAMLEIÐSUUMÁL Reykjavík, 25. okt. 1943 AAAAAAAAAi Traustir skulu horn- steinar hárra sala. í kili skal kjörviður. Bóndi er bústólpi, — bú er landstólpi — því skal hann virður vel. ''w'V'ir'W'V'W'Vyr'W'* 1. árgangur Áuarp til lesendla Mjólkursamlag Kjalarnesþings mótmælír 0 Fulltrúafundur Mjólkursamlags Kjalarnesþings, sem haldinn var 22. þ. m. samþykkti eftirfarandi tillögu: „Vegna framkominna frumvarpa og þingsálykt- unartillagna um sölu mjólkur, rjóma o. fl., þar sem framkvæma á eignarán gagnvart bændastéttinni og svipta hana umráðarétti framleiðslu sinnar, — um rannsóknarnefnd á fyrirtæki þeirra, — um einhliða verðlagningarákvæði á framleiðsluvörum þeirra, þar sem bændur verða ávalt í minni hluta, þá vill fulltrúaráð Mjólkursamlags Kjalarnesþings mótmœla þeim árásum innan Alþingis, sem þann- ig er stefnt gegn bændum, til að eyðileggja félags- samtök þeirra og sölsa undir sig eignir þeirra, — og munu bœndur eigi taka slíku þegjandi og hafa alls ekki í huga að láta skammta sér annan og minni rétt en öðrum stéttum landsins ‘ Ólafur Bjarnason, Brautarholti: Sameinaðir stöndum vér, sundraðir íöllum vér Heiðraði samborgari! Þú munt vafalaust viður- kenna, að dagblöðin í Reykja- vík móti skoðanir þínar, að talsverðu leyti, bæði á málefn- um, mönnum og stofnunum. Og þar sem þú ert trúr og ein- lægur í starfi þínu og villt því, að þér sé treyst, þá munt þú einnig álíta, að þeir, sem rita í dagblöðin, skýri hvert mál af sams konar einlægni og trú- mennsku. Sú röskun í þjóðlífi okkar, sem styrjöldin hefur haft í för með sér, veitir okkur annars vegar ýmis gæði, t. d. atvinnu, peninga og almenna velmegun, en hins vegar margs konar vandamál, s. s. dýrtíð, skort margra verðmæta, aðþrengingu framleiðsluháttanna, miklar byltingar í hugarfari fólksins, — rótleysi, öfgar og siðferðis- hnignun. — Öll þjóðin hefur fyllzt ótta, gagnrýni og ásökun- um. En í raun og veru er fæst- um ljóst, hvað það er, sem þarf að óttast, hverja að gagnrýna og ásaka. Undanfarna mánuði hefur staðið óvenjulega mikill styr milli flokkanna og málgagna þeirra um þessi helztu vandamál þjóðarinnar. Og það, sem mest einkennir þessar deilur á síð- ustu tímum, eru hinar dæma- lausu og ósvífnu árásir nokk- urra málgagna og manna á annan stærsta atvinnuveg okk- ar, landbúnaðinn. Það hefur verið reynt að telja fólki trú um, að það séu fyrst og fremst bændurnir, sem eigi meginsök á vandamálum þjóð- félagsins. Og það er ekki látið nægja að skella skuld dýrtíðarinnar, að mestu leyti, á herðar landbún- aðacins, heldur er þeirri skoðun einnig þrálátlega haldið að fólkinu, að bændur séu siðlaus- ir í vöruvöndun, ófyrirleitnir í verðlagningu afurða sinna, og, jafnvel, gleðjist af strákslegri hefnigirni gagnvart neytendum, þegar ekla er á landbúnaðarvör- um. Þá eru þeir einnig taldir vera gegnsýrðir af pólitískri spillingu, mútuþegar og ölmusu- lýður. Til að undirstrika þá alvöru og hættu, sem neytendum á að stafa af bændum og stofnunum þeirra, er nú borið fram frum- varp á alþingi þess efnis að taka af þeim þá stofnun, sem annast sölu, vinnslu og dreif- ingu mjólkurafurðanna. Þessa stofnun hafa bændurnir sjálfir byggt upp og skipulagt. Það er engu líkara, en að þeir menn, sem að þessum áróðri standa, vilji skapa moldviðri til að villa fólkinu sýn og reyna að brjála dómgreind þess í þeim tilgangi að samstilla gagnrýni þess og andúð gegn bændum, en standa sjálfir í skjólinu og vega aftan að þeim. „Bóndinn“ kemur nú til þín, borgari góður, og biður þig um athygli. Hann treystir á dóm- greind þína og sanngirni. Hann er ópólitískur, og að honum standa menn úr fleiri en einum stjórnmálaflokki, eins og sjá má af efni hans. Hann vill leitast yið að skýra eins hlutlaust og rétt frá málum um landbúnað og aðrar atvinnugreinar, sem ýmis áróðurstæki, skæðar tung- ur, blöð og tímarit hafa túlkað fyrir þér undanfarna mánuði á svo villandi og ófyrirleitinn hátt, að hliðstæður eru vand- fundnar. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um það, hve oft „Bónd- inn“ muni út koma, eða hve um- fangsmikið hvert blað verður. Markmið hans er hvorki að eyða pappír né orðum, en honum er ætlað að fara á kreik og stíga á vogarskálina með sannleikan- um, þegar „hinu ósanna“ þefur verið léð svo mikið lið í mála- flutningi gegn landbúnaði og Það er svo að heyra frá Al- þingi og af blöðum höfuðstað- arins, að mjólkin og mjólkur- skipulagið sé nú mesta og erfið- astá vandamálið í þjóðfélaginu. Á þessum hættulegu tímum, þegar heimsófriður geisar, og fjölmennt setulið í landinu ógn- ar þjóðerni voru, og mjög horfir til beggja vona um það, hvort hægt muni að fullnægja þörfum landsmanna á brýnustu nauð- synjum, þá heyrast hatursfull- ar og illvígar raddir úr þingsöl- um um framleiðslu bændanna, félagsskap þeirra og skipulag. öðrum heilbrigðum framleiðslu- háttum, að til háska horfir fyrir þjóðfélagið. » Gunnar Bjarnason. Mjólkin er sögð slæm vara, neytendur fái ekki nóg af henni, og auk þess sé hún allt of dýr. Deilur þessar taka á sig ýmsar kynjamyndir, samfara hinum ó- trúlegustu hugarórum um margs konar óþægindi og jafn- vel hættur fyrir neytendur, og síðast en ekki sízt, um ímynd- aðan ofbeldisvilja bændanna, sem hafa í sínum höndum sölu og dreifingu mjólkurinnar. Við bændur hlustum á þessar hatramlegu ásakanir, sem birt- ast í ræðum og ritum, og rann- sökum hvað satt geti verið í þessu, og hverjar ástæður geti legið að baki þessum harðsnúna áróðri. Hvort hugsanlegt sé, að verið sé að skapa andúð og hat- (Framh. á 3. siOu)

x

Bóndinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bóndinn
https://timarit.is/publication/1089

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.