Nesfréttir - 04.03.1988, Blaðsíða 1

Nesfréttir - 04.03.1988, Blaðsíða 1
FRETTIR AUGLYSINGASIMI 611594 Gamla íbróttahúsið sprungið Nýtt íþróttahús innan árs Margur Scltirningurinn hefur að undanfömu fundið jörðina nötra undir fótum sér. Skýringin á því er einföld, framkvæmdir við byggingu nýs íþróttahúss era komnar á fullt skrið. Áætlað er að Ijúka framkvæmdum 2. janúar að ári og tekur því fram- kvæmdin 12 mánuði. Kostnaður við þessar framkvæmdir er gróflega reiknaður á bilinu 50 til 60 milljónir króna. Hugmyndin um byggingu nýs íþróttahúss kom upp á haustmánuð- um í beinu framhaldi af áhuga Hagvirkis á framkvæmdum á Kol- beinsstaðarlandinu. Bæjarfulltrúar lögðu þá fyrir Hagvirki hugmyndir sínar hvernig þeir vildu hafa íþrótta- húsið og gáfu þeir hjá Hagvirki í kjölfarið upp áætlaðan kostnað sem fór ekki út fyrir þau mörk er bæjar- fulltrúarnir höfðu gert sér í hugar- lund. Að svo búnu var hafist handa við framkvæmdir verksins. Það má geta þess að upphaflega hugmyndin var sú að byggt yrði við gamla íþróttahúsið en það reyndist álíka kostnaðarsamt og að reisa nýtt. [O^Ö kASA Hafin er bygging nýs íþróttahúss á Seltjamamesi. Á myndinni sjást starfsmenn Hagvirkis undirbúa sprengingar við gmnn íþróttabússins. Mannfjölgun aðeins 2% þrátt fyrir mikla uppbyggingu Grótta í 1. deild? - löglegt keppnishús Nú eygir 2. deildar lið Gróttu í handbolta góða von um að komast í 1. deildar slaginn og er því brýnt fyrir þá að hafa aðgang að löglegu keppnishúsi. Ennfremur er mikil gróska í yngri flokkunum. „Það var hálfgert loforð okkar ef Gróttustrákarnir kæmust upp í fyrstu deild yrði íþróttahúsið tilbú- ið“, sagði Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri í samtali við Nes-fréttir. „Gamla húsið er löngu búið að sprengja utan af sér. Það hefur þurft að úthýsa mörgum þeim sem til dæmis hafa haft áhuga á að spila badminton. Eftir sem áður munu skólaíþróttirnar rúmast í gamla íþróttahúsinu", sagði Sigurgeir enn- fremur. Ef fer sem horfir er ekki ólíklegt að íþróttahúsið á Seltjarnarnesinu verði eitt þeirra sem notuð verða undir heimsmeistarakeppnina í handknattleik 1994. Athygli hefur vakið að þrátt fyrir mikla uppbyggingu hér á Sel- tjarnarnesi að undanförnu hefur íbúum ekki fjölgað nema um rúm 2% á síðastliðnu ári, á tímabilinu frá 1. desember ’86 til 1. desember ’87 eða úr 3773 íbúum í 3849 íbúa. Skýringanna er meðal annars að leita í minnkandi barneignum ungs fólks. Sem dæmi má nefna- að í 100 fvrstu íbúðunum sem afhentar voru á Austurströndinni voru að- eins 50 börn. Þessi tala sýnir að það er af sem áður var, forgangsröðin hefur breyst. Nú er að færast í aukana að fólk eignist þak yfir höfuðið áður en það eignast börnin. Ennfremurermeginpartur þessa fólks að fljúga beint úr hreiðrum sínum hér af Seltjarnar- nesinu. Hálf milljón til L Leisertækni til L Skerðing um 4 milljónir L skóladagheimila læknismeðferðar hjá Seltjamarneskaupstað # Bls. 3 § Bls. 6 § Baksíða Nýtt blað á Nesinu Nes-fréttir er nýtt blað sem lítur dagsins Ijós í fyrsta sinn í dag, fimmtudag 3. mars. Blað þetta mun framvegis koma út á tveggja vikna fresti og verður því dreift á hvert heimili á Seltjarnarnesinu. Við sem að því stöndum stefnum að því að hafa allar almennar fréttir úr byggðarlaginu auk þess sem við reynum að láta í té upplýs- ingar um félags- og menningar- starfsemi, sem hér er starfrækt. En til þess þurfum við á ykkar vitneskju að halda bæjarbúar góðir. Þeim er hægt að koma á framfæri í síma 611594, alla daga vikunnar.. 1 Nes-fréttum er einnig kjör- ið tækifæri fyrir verslanir og fyrirtæki að auglýsa sig og starfsemi sína. Síminn þar er sá hinn sami eða 611594. í von um góðar undirtekir. Starfsmcnn Nes-frétta..

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.