Assessorarnir í öngum sínum eða - 01.01.1879, Blaðsíða 1

Assessorarnir í öngum sínum eða  - 01.01.1879, Blaðsíða 1
ASSESSORARNIR í ÖNGUM SÍNUM EÐA „INTELLIGENTSIN“ GEGN „DÓNUNUM“. PÍSLARSAGA I BRJEFUM FRÁ N. N. TiL VINA SiNNA. 3. úígáfa aukin og endurbætt. (I. útgáfa uppseld á 3 klukkustundum). Mottoí „Öllu gamni fylgir ^ alvara nokkur“. Reykjavík, 31. des. 1878. fegar jeg um hádegisbilið var á gangi nálægt bæjarfógetakontórnum, mætti jeg kunningja mínum, og er það ungur efnilegur maður, sem talinn er góður smiður og einhver hinn bezti skrif- ari í Mýrasýslu, tók hann mig á ein- tal og sa.gðist vera nýkominn frá bæj- arfógetanum, sem hefði verið mjög reið- ur út af því, að sama morgun hafði verið slegið upp á götuhornin viðvörun gegn því, að kjósa Halldór K. í. í bæjar- stjórnina; en bæjarfógetinn vildi fyrir livern mun fá hann endurkosinn. Með- an við erum að tala um þetta og furða okkur á því, hvernig embættismaður, sem er hlaðinn svo mörgum störfum og bæjarfógetinn, gætifengið tíma til þess að rekast í það, sem hann varðaði ekk- ert um, kemur til mín Jón bóndi J>órð- ars.frá Hlíðarhúsum, og segist hafa kom- ið sjer saman við aðra bændur og tómt- húsmenn um, að eiga með sjer undir- búningsfund undir hinar í höndfarandi kosningar, og biður mig um að koma á þenna fund. Jeg var Jóni þegar samferða og var nafni hans ritar- inn kosinn fundarstjóri. Höfðingjarnir höfðu sent lögregluþjóna sína, en eng- inn amaðist við þeim, og hefi jeg aldrei komið á neinn fund, þar sem hægra var að stýra umræðunum, þar sem málæði var minna, og þar sem fund- armenn kæmu fram kurteisara, frjálslynd- ára og einarðlegra og gjörðu sjer minna mannamun en þar. Jeg gat því ekki annað en lofað að framkvæma beiðni fundarins til mín, sem var að skora með augl., er fest- ar yrðu upp ágötuhornin, ákjósendur að gefa eptirnefndum mönnum atkvæði sín : Guðmundi bónda J>órðarsyni á Hól, Agli borgara Egilssyni í Glasgow, Jóni ritara Jónssyni í Teitshúsi, Jóni bónda þ>órðarsyni í Hákoti og Pjetri bónda Gíslasyni í Ánanaustum. En framkvæmd á þessari ákvörðun var með nokkrum vandkvæðum, þar sem Theódór bæjarfógeti hafði látið rífa nið- ur auglýsingar þær, er áður voru komn- ar um að kjósa aðra en Halldór í bæjarstjómina, og mátti búast við, að hann ekki myndi hlífa meira auglýsing- um fundarins, úr því að fundurinn ekki vildi vita neitt af yfirkennaranum að segja. Jeg vonaði samt að herra Theó- dór, er sagður er maður fljótfær og lít- ið fróður i lögum, en meinlaus og rjett- sýnn, þegar vondir menn villa ekki sjónir fyrir honum, myndi sjá að sjer, og lofa auglýsingum fundarins að sitja, því fremur sem hann hafði látið nafn- laust brjef, ritað með auðþekktri hönd og innihaldandi áskorun um að kjósa Halldór, sitja óhreift á veitingahúsi því, þar sem höfðingjar bæjarins hafa amtsleyfi til að vera við toddy- og bjór- drykkju alla nóttina ; en hjer fór öðru- vísi, en jeg ætlaði, því óðara en fund- arauglýsingarnar voru komnar upp, voru þjónar bæjarfógetans, Ólafur, Jón og |>orsteinn komnir á staðinn, og bún- ir að hirða bæði pappírinn og naglana. Jeg íjet skrifa ný uppslög, og þegar Theó- dór eir.nig var búinn að bjarga þeim, Ijet jeg prenta áskorun fundarins í svo mörgum exemplörum, að Theódórgæti haft nóg, þó hann hirti ekki nema helminginn af þeim meðnöglunum,íupp- slög heilt ár, og svo að hann þyrfti ekki að skrifa auglýsingar sínar á grána, eins og hann er farinn að gjöra á þessum síðustu og verstu tímum. 1. janúar 1879. þ>egar jeg kom út í morgun voru fundar auglýsingarnar komnar upp al- staðar á ágætum hvítum pappír, sem hægt var að skrifa á hinumegin við hið prentaða, og með alveg óryðguðum nöglum, og var sagt, að þeir Ólafur Jón, Theódór og J>orsteinn hefðu verið að gjóta girndaraugum til þeirra, en ekki árætt að hirða þær enn þá, líklega vegna helginnar. J>jer vitið, að sá sið- ur kvað við gangast í höfuðstaðn- um að hýrast hver í sínu horni, fáir skipta sjer af náungum sínum, nema til þess að rífa þá niður, rægja þá og hæða, og þegar þeir finnast, þora þeir varla að tala hver við annan af hræðslu fyrir að hlaupa á sig, og verða fyrir hlátri, eða þá, af því að þeir þurfa að íhuga allt sem sjest á heimilinu, svo að þeir geti sagt frá þ ví aptur,þegar þeir finn- ast hjá Kristjáni karli á nóttunum, eða þeir halda „kjaptaklúbb11 heima hjá sjer. Að minnsta kosti er þessi bæjar- bragur sagður að vera ríkjandi hjá mörgum í hinum æðri „sferum11, og er því von, að aumingja fólkinu þar opt leiðist sárlega, og æfinlega tregi hina dýrðlegu Hafnarvist, og þeir ekki sízt, sem aldrei hafa komið út fyrir landsteina. Einnig er það skiljanlegt, að fólkið aldrei getur farið snemma áfætur, og þegarþað kem- ur saman, hefir ekki annað sjer til skemmt- unar, en að offylla sig með mat og drykk í hinum alræmdu átveizlum sínum. Jeg segi ekki þetta af eigin reynzlu, því jeg hef lifað hina síðustu vetur í sveit og utanlands, en margir merkir menn hafa sagt mjer þetta, og er þessi bæjarbragur talinn aðalástæðan til þess, að stúdentum og öðrum ungum mönn- um mjög sjaldan er boðið til höfð- ingjanna á kvöldin, og að þeim hættir við að leggjast í ómennsku og drykkjuslark fremur hjer, en í Kaup- mannahöfn, þar sem hið alkunna og elskulega hús þjóðmæringsins Jóns al- þingismanns Sigurðssonar stendur opið hverjum ungum íslendingi á hverju kvöldi. En þó fjelagslífi margra em- bættismanna og kaupmanna i höfuðstað íslands sje almennt lýst á þenna hátt, get jeg af eigin reynslu sagt, að nýtt

x

Assessorarnir í öngum sínum eða

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Assessorarnir í öngum sínum eða
https://timarit.is/publication/113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.